11. jún. 2018Dómsmálaráðuneytið, Persónuréttur, Utanríkismál
Persónuvernd í millibilsástandi
EFTA hefur nú birt tilkynningu á vefsvæði sínu sem skýrir stöðu persónuverndar í EFTA-ríkjunum innan EES, þ.e. Íslandi, Noregi og Liechtenstein, þar til almenna persónuverndarreglugerð ESB hefur verið tekin upp í EES samninginn. Samhliða þessu hefur Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins tekið upp tilvísun til þess texta á vefsvæðum sínum þar sem fjallað er um þýðingu og áhrif hinnar nýju löggjafar innan sambandsins.