07. maí 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar tekin til starfa
Ný ráðuneytisstofnun; Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF), tók formlega til starfa í dag. Stofnunin mun í byrjun sinna stjórnsýsluverkefnum og eftirliti á sviði félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga, auk afmarkaðs eftirlits á sviði barnaverndar.