Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Félagsleg aðstoð
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Félagsleg aðstoð
Um félagslega aðstoð er fjallað í lögum um félagslega aðstoð. Bætur félagslegrar aðstoðar eru mæðra- og feðralaun, barnalífeyrir vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18–20 ára, umönnunargreiðslur, makabætur, umönnunarbætur, dánarbætur, endurhæfingarlífeyrir, heimilisuppbót, frekari uppbætur, styrkir vegna kaupa á bifreið, uppbót vegna kaupa á bifreið, uppbót vegna reksturs bifreiðar og endurgreiðsla umtalsverðs kostnaðar við læknishjálp og lyf.
Bætur félagslegrar aðstoðar greiðast eingöngu þeim sem lögheimili eiga hér á landi og að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna og reglugerða sem settar eru með stoð í þeim