Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1401–1450 af 3225
    Raða eftir:
    19. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Netöryggi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ísland aðili að netvarnarsetri Atlantshafsbandalagsins

    Ísland varð fyrr í þessari viku formlegur aðili að netöryggissetri Atlantshafsbandalagsins (NATO Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence) í Tallin í Eistlandi. Fáni Íslands var dreginn að húni við hátíðlega athöfn 16. maí þar sem Harald Aspelund, sendiherra Íslands gagnvart Eistlandi, flutti ávarp.

    17. maí 2023Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ályktanir í þágu Úkraínu og lýðræðis samþykktar á leiðtogafundi

    Leiðtogar aðildarríkja Evrópuráðsins samþykktu Reykjavíkuryfirlýsinguna á fundi sínum í Reykjavík í dag og settu á stofn alþjóðlega tjónaskrá fyrir Úkraínu. Stuðningur við Úkraínu, ályktun í þágu úkraínskra barna, og skuldbinding ríkjanna við mannréttindi, lýðræði og réttarríkið voru megináherslur yfirlýsingarinnar. Þá skuldbinda aðildarríkin sig með yfirlýsingunni til að framfylgja að fullu ákvörðunum Mannréttindadómstóls Evrópu. Leiðtogafundinum er formlega lokið og hafa Lettar nú tekið við formennsku í Evrópuráðinu.

    17. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík

    17 maí 2023 / Utanríkisráðuneytið Ávarp á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík Leiðtogafundur Evrópuráðsins Ávarp utanríkisráðherra Closing session May 2023 Thank you chair, Madam Secretary General, Excellencies, ladies, and gentlemen. Europe is united around Ukraine

    17. maí 2023Utanríkisráðuneytið

    Bein útsending frá leiðtogafundi Evrópuráðsins - Dagur tvö

    maí 2023 / Utanríkisráðuneytið Bein útsending frá leiðtogafundi Evrópuráðsins - Dagur tvö RHÓ

    16. maí 2023Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins hafinn

    Ábyrgðarskylda vegna Úkraínu og grundvallargildi Evrópuráðsins eru meginumfjöllunarefni leiðtogafundar Evrópuráðsins sem hófst í Reykjavík í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði áherslu á ríkan stuðning Evrópuráðsins og aðildarríkjanna við Úkraínu í ávarpi sem hún flutti við opnunarathöfnina.​

    16. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Bein útsending frá leiðtogafundi Evrópuráðsins

    Hér má fylgjast með leiðtogafundi Evrópuráðsins í beinni útsendingu.

    14. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Bretar sinna loftrýmisgæslu við Ísland

    Í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík dagana 16.-17. maí sinnir flugsveit breska flughersins loftrýmisgæslu við Ísland.

    13. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópuráðið, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Vel heppnaðri ráðstefnu IDAHOT+ Forum lokið

    Árlegri ráðstefnu IDAHOT+ Forum lauk í Hörpu í gær en um er að ræða einn mikilvægasta vettvang hinsegin málefna í Evrópu. Ráðstefnan var liður í formennsku Íslands Evrópuráðinu sem lýkur á leiðtogafundinum í næstu viku. Utanríkisráðherra brýndi í ávarpi sínu komandi formennskuríki til að láta sig málefni hinsegin fólks sérstaklega varða.

    12. maí 2023Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins framundan í Reykjavík

    Fjórði leiðtogafundur í sögu Evrópuráðsins fer fram í Reykjavík í næstu viku. Fyrir fundinum liggur að samþykkja formlega gerð sérstakrar skrár vegna þess tjóns sem innrás Rússlands hefur valdið Úkraínu og árétta mikilvægi þeirra gilda sem Evrópuráðið stendur vörð um. Mikill viðbúnaður er vegna fundarins og má búast við talsverðri röskun á umferð meðan hann stendur yfir.

    12. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Gjöf Íslands til Evrópuráðsins vegna leiðtogafundarins

    Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins gefur Ísland ráðherranefnd ráðsins útskorinn fundarhamar eftir listakonuna Sigríði Kristjánsdóttur. Fyrirmynd hamarsins er frægur fundarhamar Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara.

    08. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Menningarmál

    Íslandsdagur í Strassborg

    Íslenskar bókmenntir og kvikmyndir voru hafðar í öndvegi á Íslandsdeginum svokallaða sem haldinn var um helgina í Strassborg í tilefni af formennsku Íslands í Evrópuráðinu. Íslandsdagurinn var lokaviðburður menningardagskrár formennskunnar sem staðið hefur yfir í Strassborg frá því að Ísland tók við henni í nóvember síðastliðnum.

    05. maí 2023Utanríkisráðuneytið

    Yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi

    Christopher G. Cavoli, yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (SACEUR), er hér á landi í stuttri heimsókn. Hann átti í dag fund með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadótur utanríkisráðherra og kynnti sér starfsemi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli.

    05. maí 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Fjármálareglur, vistvænt flugvélaeldsneyti, launagagnsæi, netöryggi, lyfjalög o.fl.

    Að þessu sinni er fjallað um endurskoðun á fjármálareglum Evrópusambandsins (ESB), samkomulag um tillögu um vistvænt flugvélaeldsneyti, tilskipun um launagagnsæi, tillögur um aukna samstöðu á sviði netöryggismála, endurskoðun lyfjalöggjafar, nýjar tillögur á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar, aðgerðir gegn spillingu, útvíkkun á regluverki um landfræðilega vernd vöruheita, óformlegan fund félags- og vinnumarkaðsráðherra ESB og skýrslu um netöryggisógnir sem steðja að samgöngum.

    05. maí 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Fjármálareglur, vistvænt flugvélaeldsneyti, launagagnsæi, netöryggi, lyfjalög o.fl.

    Að þessu sinni er fjallað um endurskoðun á fjármálareglum Evrópusambandsins (ESB), samkomulag um tillögu um vistvænt flugvélaeldsneyti, tilskipun um launagagnsæi, tillögur um aukna samstöðu á sviði netöryggismála, endurskoðun lyfjalöggjafar, nýjar tillögur á sviði hugverka- og einkaleyfisréttar, aðgerðir gegn spillingu, útvíkkun á regluverki um landfræðilega vernd vöruheita, óformlegan fund félags- og vinnumarkaðsráðherra ESB og skýrslu um netöryggisógnir sem steðja að samgöngum.

    05. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Góður árangur Íslands í frammistöðumati ESA

    ​Innleiðingarhalli Íslands hefur minnkað um helming á undanförnum misserum,​úr tveimur prósentum í eitt prósent. Þetta kemur fram í nýbirtu frammistöðumati frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Til samanburðar var árangur Noregs 1,5 prósent og Liechtenstein 0,4 prósent.

    05. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fastafloti Atlantshafsbandalagsins með viðkomu á Íslandi

    Fimm skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins hafa nú skamma viðdvöl í Reykjavíkuhöfn. Skipin tóku þátt í kafbátaleitaræfingunni Dynamic Mongoose sem lýkur formlega í dag.

    03. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Sameiginlegt lið Íslands og Svíþjóðar sigurvegari netvarnaæfingar Atlantshafsbandalagsins

    Sameiginlegt lið Íslands og Svíþjóðar bar sigur úr býtum á netvarnaræfingunni Skjaldborg (Locked Shields) sem fram fór á dögunum. Æfingin var skipulögð og haldin af netöryggissetri Atlantshafsbandalagsins í Tallinn í Eistlandi og er þetta í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt.

    02. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Nýsköpun

    Ari Kristinn í stjórn nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins

    Ari Kristinn Jónsson, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík og forstjóri netöryggisfyrirtækisins AwareGO hefur verið kosinn í stjórn nýs nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins (NATO Innovation Fund). Skrifað verður undir formlega stofnun sjóðsins á leiðtogafundi bandalagsins í Vilníus í júlí næstkomandi.

    28. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar NB8-ríkjanna í Odesa í Úkraínu

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja heimsóttu í dag úkraínsku hafnarborgina Odesa til að árétta stuðning sinn við stjórnvöld í landinu og undirstrika mikilvægi þess að kornútflutningur frá borginni gangi hindranalaust fyrir sig.

    28. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 28. apríl 2023

    apríl 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 28. apríl 2023 Er föstudagur? Ef svarið er já þá lítum yfir liðna viku í leik og störfum í utanríkisþjónustunni

    27. apr. 2023Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherrar NB8-ríkjanna heimsóttu Moldóvu

    Aukinn stuðningur Norðurlanda og Eystrasaltsríkja við Moldóvu, öryggismál í Evrópu og aðild Moldóvu að Evrópusambandinu voru aðalumræðuefnin á fundum utanríkisráðherra NB8-ríkjanna með leiðtogum Moldóvu í Chisinau í dag.

    27. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Alþjóðamál

    Áyktun um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins samþykkt

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær ályktun um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins með 122 atkvæðum. Ísland og Írland leiddu samningaviðræðurnar um ályktunardrögin sameiginlega en Ísland tók við formennsku í Evrópuráðinu af Írlandi í nóvember síðastliðnum.

    26. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Bandarískur kafbátur í þjónustuheimsókn

    Fyrsta þjónustuheimsókn kafbáts á vegum bandaríska sjóhersins í íslenska landhelgi fór fram fyrr í dag. Vel gekk að flytja kost um borð í bátinn.

    25. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg

    25 apríl 2023 / Utanríkisráðuneytið Ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg Thank you, Mr. President, Madam Secretary General, Madam Secretary General of the Assembly, Distinguished Parliamentarians, It is an honour and a pleasure to address you today. We are in the final stages of the Icelandic Presidency of the Council of Europe

    25. apr. 2023Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins lagði þunga áherslu á grunngildi Evrópuráðsins, mannréttindi, lýðræði og réttarríki, er hún ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg í dag. Í ræðu sinni sagði utanríkisráðherra að þessi grunngildi ættu að vera leiðarljós í allri ákvarðanatöku, ekki aðeins á alvarlegum umbrotatímum eins og nú þegar stríð geisar í Evrópu.

    25. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Umsækjendur um stöðu fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins

    Alls barst 21 umsókn um stöðu fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins sem auglýst var þann 22 mars 2023 en umsóknarfrestur rann út 12. apríl sl. Einn umsækjandi dró umsóknina til baka.

    24. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Utanríkismál

    Leiðtogafundurinn og formennska Íslands til umræðu á fundi utanríkisráðherra ESB

    Undirbúningur fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík dagana 16. og 17. maí var aðalumfjöllunarefni fundar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og utanríkisráðsherra Evrópusambandsins sem haldinn var í Lúxemborg í dag.

    24. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Kafbátaleitaræfingin Dynamic Mongoose 2023 hafin

    Kafbátaeftirlitsæfingin Dynamic Mongoose 2023 fer fram dagana 24. apríl til 5. maí á hafsvæðinu milli Íslands og Noregs. Æfingin er á vegum Atlantshafsbandalagsins en Ísland er að þessu sinni gestgjafaríki hennar.

    24. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Rætt um þróun öryggismála og vaxandi varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna

    Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Washington föstudaginn 21. apríl. Öryggishorfur í kjölfar árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu, ásamt auknum varnarviðbúnaði Atlanthafsbandalagsins og varnarsamvinna ríkjanna voru meðal helstu umræðuefna fundarins.

    21. apr. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka

    Að þessu sinni er fjallað um endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka, samþykkt Evrópuþingsins á breytingum á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug, löggjafartillögur um hálfleiðara, breytingar á tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa, uppbyggingu innviða fyrir endurnýjanlega orkugjafa, aðgerðir til að draga úr kolefnislosun í sjóflutningum, aukið gagnsæi og minni reglubyrði með aukinni notkun rafrænna lausna í stjórnsýslu á sviði félagaréttar, samræmdar kröfur um akstur vinnuvéla á vegum, tilmæli um eflingu menntunar og þjálfunar á sviði stafrænnar færni, býflugnavænan landbúnað, nýja stefnumörkun um dróna og útboð á uppbyggingu öryggisfjarskipta um gervihnetti.

    21. apr. 2023Annað, Brussel-vaktin, Utanríkisráðuneytið

    Endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka

    Að þessu sinni er fjallað um endurskoðun á lagaumhverfi evrópskra viðskiptabanka, samþykkt Evrópuþingsins á breytingum á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug, löggjafartillögur um hálfleiðara, breytingar á tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa, uppbyggingu innviða fyrir endurnýjanlega orkugjafa, aðgerðir til að draga úr kolefnislosun í sjóflutningum, aukið gagnsæi og minni reglubyrði með aukinni notkun rafrænna lausna í stjórnsýslu á sviði félagaréttar, samræmdar kröfur um akstur vinnuvéla á vegum, tilmæli um eflingu menntunar og þjálfunar á sviði stafrænnar færni, býflugnavænan landbúnað, nýja stefnumörkun um dróna og útboð á uppbyggingu öryggisfjarskipta um gervihnetti.

    21. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 21. apríl 2023

    apríl 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 21. apríl 2023 Heil og sæl, Upplýsingadeildin heilsar ykkur á þessum fyrsta föstudegi sumars með sól í sinni

    21. apr. 2023Utanríkisráðuneytið

    Alþjóðamálin í brennidepli á ráðstefnu síðasta vetrardag

    Veigamiklir valkostir og afdrifaríkar ákvarðanir sem ríki heim og almenningur standa stöðugt frammi fyrir voru ofarlega á baugi í opnunarávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur á ráðstefnunni Alþjóðasamvinna á krossgötum sem fram fór í vikunni.

    19. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Upplýsingar um götulokanir vegna leiðtogafundar

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu dagana 16. og 17. maí næstkomandi. Um 40 leiðtogar hafa boðað komu sína og ljóst að umfang á öryggisráðstöfunum verður mikið. Svæðið í kringum Hörpu og í Kvosinni verður lokað fyrir umferð almennra ökutækja, nema viðbragðsaðila, frá kl. 23 mánudaginn 15. maí til kl. 18 miðvikudaginn 17. maí. Mynd af lokunarsvæðinu má finna hér neðar í fréttinni.

    19. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp á ráðstefnunni Alþjóðasamvinna á krossgötum

    19 apríl 2023 / Utanríkisráðuneytið Ávarp á ráðstefnunni Alþjóðasamvinna á krossgötum Kæru ráðstefnugestir. Eins og góð venja hefur skapast til þá hittumst við hér á síðasta degi vetrar í Norræna húsinu til þess að ræða stöðu alþjóðamála undir yfirskriftinni: Alþjóðasamvinna á krossgötum - hvert stefnir Ísland? Mér finnst það áhugavert að Alþjóðamálastofnun hefur notast við þessa yfirskrift að minnsta kosti í nokkur síðustu ár: Alþjóðasamvinna á krossgötum. Tekur aldrei við beinn og breiður vegur þar sem framtíðin er fyrirsjáanleg - að minnsta kosti næsta árið? Stöndum við sífellt á krossgötum? Maður spyr sig… og í ýmsum skilningi er það vitaskuld málið

    18. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Bandarískir kafbátar í þjónustuheimsókn

    Utanríkisráðherra hefur tilkynnt stjórnvöldum í Bandaríkjunum að kjarnorkuknúnum kafbátum bandaríska sjóhersins verði heimilt að hafa stutta viðkomu við Ísland til að taka á móti kosti og skipta út áhafnarmeðlimum. Þessi ákvörðun utanríkisráðherra er liður í stefnu íslenskra stjórnvalda að styðja við aukið eftirlit og viðbragðsgetu bandalagsríkja á Norður-Atlantshafi.

    17. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, UN Women, UNICEF, Utanríkismál

    Nýir rammasamningar við landsnefndir UN Women og UNICEF og Félag Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra hefur undirritað rammasamninga við landsnefndir UN Women og UNICEF á Íslandi auk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Samningarnir ná til kynningar- og fræðslumála á sviði alþjóðlegar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Leiðtogar Evrópuráðsins lýsa yfir áhyggjum af heilsu Navalní

    Þungum áhyggjum af hrakandi heilsu rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní og illri meðferð rússneskra stjórnvalda á honum eru látnar í ljós í yfirlýsingu sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, Tiny Kox forseti Evrópuráðsþingsins og Marija Pejčinović Burić, aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins hafa sent frá sér. ​

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 14. apríl 2023

    apríl 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 14. apríl 2023 Heil og sæl! Upplýsingadeildin heilsar ykkur endurnærð eftir páskafrí og flytur ykkur fréttir af því helsta sem átt hefur sér stað í utanríkisþjónustunni á undanförnum vikum

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styrkir sjóði Alþjóðabankans um enduruppbyggingu í Úkraínu

    Ísland hefur ákveðið að leggja Úkraínu til 700 milljónir króna í gegnum sjóði Alþjóðabankans og var greint frá þeirri ákvörðun á fundi um málefni Úkraínu sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington D.C. á miðvikudag.

    13. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styrkir innviðaverkefni UNDP í Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld ætla að veita 72 milljónum króna til innviðaverkefnis Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu. Markmiðið er að styrkja grunnorkuinnviði í landinu sem eru víða í lamasessi vegna árása Rússlands.

    12. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Rætt um þróun öryggismála í Norður-Evrópu

    Yfirmenn herafla þátttökuríkja í sameiginlegu viðbragðssveitarinni (Joint Expeditionary Force, JEF) ræddu þróun öryggismála og samstarf um viðbúnað og viðbragð á Norður-Atlantshafi, norðurslóðum og Eystrasalti á fundi í Helsinki í dag.

    11. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Jákvæð niðurstaða í jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands var tekin fyrir á fundi nefndarinnar í París fyrir helgi. Niðurstöðurnar eru afar jákvæðar fyrir Ísland en þar kemur meðal annars fram að með skýrri og einbeittri nálgun á tiltekin málefnasvið, stofnanir og samstarfslönd, hafi Ísland nýtt styrkleika sína í þróunarsamvinnu og hámarkað framlag sitt til málaflokksins þrátt fyrir smæð.

    05. apr. 2023Utanríkisráðuneytið

    Sögulegum utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins lokið

    Sögulegum fundi Atlantshafsbandalagsins, þar sem Finnland tók í fyrsta sinn þátt sem bandalagsríki, lauk í Brussel í dag. Stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu vegna innrásar Rússlands var sem fyrr í brennidepli sem og undirbúningur fyrir leiðtogafund í Vilníus í júlí.

    04. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Ályktun um stöðu mannréttinda í Íran samþykkt

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag árlega ályktun um ástand mannréttinda í Íran sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram. Ályktunin tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og gefa mannréttindaráðinu reglubundna skýrslu um ástand mannréttindamála í Íran.

    31. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Ár liðið frá voðaverkunum í Bucha

    Fórnarlamba voðaverka rússneska hersins í úkraínska bænum Bucha var minnst á ráðstefnu sem haldin var í Kænugarði í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ávarpaði ráðstefnuna.

    31. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 31. mars 2023

    mars 2023 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 31. mars 2023 Heil og sæl! Við heilsum ykkur héðan af Rauðarstígnum á síðasta degi marsmánaðar og færum ykkur það helsta sem hefur átt sér stað á vettvangi utanríkisþjónustunnar síðustu tvær vikurnar

    30. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Úkraína, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjórar NB8-ríkjanna ræddu stöðuna vegna Úkraínu

    Stuðningur við Úkraínu vegna innrásar Rússlands og staða alþjóðakerfisins voru helstu umfjöllunarefnin á fundi ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) sem fram fór í Ríga í Lettlandi í gær. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.

    30. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Washington DC, Sendiskrifstofa

    Íslandsvinahópur bandarískra þingmanna stofnaður

    Stofnfundur sérstaks Íslandsvinahóps meðal þingmanna fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, svokallaðs Iceland Caucus, fór fram í dag. Í forsvari fyrir hópnum eru þau Chellie Pingree, þingkona Demókrataflokksins frá Maine, og Greg Murphy en hann er þingmaður Repúblikanaflokksins frá Norður Karólínu.

    29. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við friðaruppbyggingu og sáttamiðlun á vegum Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa gert nýjan fjögurra ára samstarfssamning við skrifstofu alþjóðastjórnmála og friðaruppbyggingar hjá Sameinuðu þjóðunum, Department of Political and Peacebuilding Affairs, DPPA. Framlag Íslands verður tvöfalt hærra en fyrri samningur og framlagið nemur 20 milljónum króna á ári í takt við langtímaáætlun DPPA, sem gildir næstu fjögur árin, 2023-2026.

    • First
    • Prev
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband