Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1651–1700 af 3871
    Raða eftir:
    18. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Frumvörp til nýrra jafnréttislaga samþykkt á Alþingi

    Frumvörp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til nýrra jafnréttislaga voru samþykkt á Alþingi í gær.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    964/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Kærð var afgreiðsla Garðabæjar á beiðni kæranda um að fá afhent öll gögn frá forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs sveitarfélagsins og varða kæranda, eiginkonu hans og dætur á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefndin fékk hvorki ráðið af ákvörðun sveitarfélagsins né gögnum málsins að að lagt hafi verið mat á beiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga eða eftir atvikum annarra laga. Úrskurðarnefndin taldi beiðni kæranda því ekki hafa hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni er fært að endurskoða og lagði því fyrir vseitarfélagið að taka málið til nýrrar meðferðar.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    963/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Kærð var afgreiðsla Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um upplýsingar um heildarlaun framkvæmdarstjóra félagsins og upplýsingar um samanburð á launum framkvæmdarstjóra og framkvæmdarstjóra annarra tilgreindra fyrirtækja. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að samkvæmt 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga bæri að veita upplýsingar um launakjör æðstu stjórnenda og upplýsingar um menntun þeirra. Synjun félagsins var því felld úr gildi og lagt fyrir Herjólf að veita umbeðnar upplýsingar. Að öðru leyti var kæru kæranda vísað frá.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    962/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði frá kæru kæranda sem laut að því hvort Vestmannaeyjabæ væri skylt að veita aðgang að tölvu og prentara til að nálgast skjöl og upplýsingar á vefsíðu sveitarfélagsins þar sem ágreiningsefnið félli utan við úrskurðarvald úrskurðarnefndarinnar.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    961/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020.

    Kærð var synjun mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni A, fréttamanns, um aðgang að greinargerð starfshóps um varðveislu handrita á Íslandi. Úrskurðarnefndin taldi ljóst, m.a. af fyrirsögn greinargerðarinnar og innihald hennar, að hún hafi verið tekið saman fyrir fund ríkisstjórnar og því undanþegin upplýsingarétti almennings með vísan til 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Synjun ráðuneytisins á afhendingu greinargerðarinnar var því staðfest.

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    960/2020. Úrskurður frá 17. desember 2020

    Kærð var synjun Hjúkrunarheimilisins Skjóls á beiðni kæranda, blaðamanns, á beiðni hans um aðgang að atvikaskrá heimilisins og upplýsingum um tiltekna starfsmenn. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að atvikaskráin hefði að geyma upplýsingar sem teldust sjúkrarskrárupplýsingar. Um aðgang sjúklings og aðstandenda til sjúkraskrár færi samkvæmt lögum um sjúkraskrár. Um aðgang annarra að slíkum upplýsingum færi hins vegar samkvæmt almennum ákvæðum upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að ekki yrði séð að lagt hefði verið mat á beiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga og taldi beiðni kæranda því ekki hafa hlotið þá efnislegu meðferð á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni er fært að endurskoða og lagði því fyrir Hjúkrunarheimilið að taka málið til nýrrar meðferðar.…

    17. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Nýr kynningarvefur Grænvangs

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði í dag nýjan kynningarvef Green by Iceland þar sem sérþekkingu Íslands á sviði endurnýjanlegrar orku og grænna lausna er miðlað til fyrirtækja og stjórnvalda á erlendum vettvangi.

    16. des. 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Lokauppgjör um sanngirnisbætur samþykkt

    Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um sanngirnisbætur til fólks sem á barnsaldri sætti misgjörðum á stofnunum fyrir fötluð börn varð að lögum í dag.

    12. des. 2020Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ný markmið kynnt á leiðtogafundi í dag

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnir í dag ný markmið Íslands í loftslagsmálum á sérstökum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna en streymt verður frá fundinum sem hefst klukkan tvö.

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Ríkisstjórn, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt: Stefnan mörkuð til 2030

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynntu í dag Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030.

    10. des. 2020Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur erindi á málþingi um endurskoðun stjórnarskrár

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður meðal þátttakenda á rafrænu málþingi lagadeildar Háskólans á Akureyri sem fram fer í dag í tilefni útgáfu nýrrar bókar um endurskoðun stjórnarskrár. Erindi Katrínar ber yfirskriftina Hefur stjórnarskrárvinna skilað einhverju?

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Stelpur rokka og loftslagsverkfall hljóta Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs 2020

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs á Nauthóli í gær. ​

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál

    Ný metnaðarfull markmið í loftslagsmálum kynnt

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun kynna ný metnaðarfull markmið Íslands í loftslagsmálum á leiðtogafundi laugardaginn 12. desember. Uppfært markmið Íslands kveður á um 55% samdrátt í losun gróðarhúsalofttegunda fyrir 2030 í samfloti með Noregi og ESB.

    08. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Forsætisráðuneytið

    Verði ykkur að góðu: Kynning á Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynna nýja Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030, fimmtudaginn 10.desember kl 11:30. Kynningin verður í beinu streymi og má fylgjast með henni hér.

    04. des. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Litakóðunarkerfi tekið upp vegna COVID-19

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.

    03. des. 2020Forsætisráðuneytið

    Aukaþing SÞ um COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar í kvöld sérstakt aukaþing Sameinuðu þjóðanna um COVID-19.

    03. des. 2020Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Covid-19, Utanríkismál

    Katrín ræddi við Morrison

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti símafund með Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, í gær.

    30. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Málþing um opið lýðræði

    Þann 4. desember næstkomandi kl. 13:00-16:00 fer fram opið málþing á vefnum á vegum Efnahags- og framafarastofnunar Evrópu (OECD), forsætisráðuneytisins og rannsóknarverkefnisins Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð. Viðfangsefnið er að gera grein fyrir nýjungum í framkvæmd opins lýðræðis, einkum með hliðsjón af þeim hættum sem steðja að lýðræðiskerfum samtímans.

    27. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Fjölþætt viðbrögð við skýrslum rannsóknarnefnda Alþingis

    Forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu, um ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008, orsakir falls sparisjóðanna og erfiðleika Íbúðalánasjóðs og viðbrögð við þeim.

    27. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Innlend hjálparsamtök styrkt

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að veita samtals 5 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til tíu innlendra hjálparsamtaka sem starfa hér á landi en sú venja hefur skapast á undanförnum árum að ríkisstjórnin styrki slík samtök í aðdraganda jóla.

    27. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    939/2020. Úrskurður frá 27. nóvember 2020

    Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnum er vörðuðu samningu lagafrumvarps. Um var að ræða nokkuð magn gagna sem synjað var um aðgang að á þeim grundvelli að um væri að ræða vinnugögn sem heimilt væri að undanþiggja með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, um væri að ræða gögn sem felld yrðu undir 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. upplýsingalaga og 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga auk þess sem óheimilt væri að veita aðgang að hluta gagnanna með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að, staðfesti synjun ráðuneytisins að hluta, felldi ákvörðunina úr gildi varðandi önnur gögn og vísaði hluta beiðninnar aftur til ráðuneytisins til nýrrar meðferðar.

    25. nóv. 2020Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Nýtt mælaborð um aðgerðir í jafnréttismálum

    Mælaborð um aðgerðir í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023 er komið út á vef Stjórnarráðsins.

    25. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar ráðstefnu UNESCO á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hélt í dag ávarp við opnun ráðstefnu Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem haldin er í tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    951/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um synjun beiðni um aðgang að gögnum sem varða ríkisaðstoðarmál sem var til meðferðar hjá eftirlitsstofnun EFTA. Synjunin byggðist á 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 en samkvæmt greininni er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Við mat á því hvort umrædd gögn yrðu felld undir undanþáguna horfði úrskurðarnefndin m.a. til þess að málinu var ekki lokið af hálfu ESA og þannig væri ekki útilokað að afhending gagnanna gæti valdið tjóni. Var ákvörðun ráðuneytisins því staðfest.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    950/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Kærð var afgreiðsla yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á beiðni kæranda um aðgang að gögnum kjörstjórnarinnar í tengslum við forsetakosningar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að óháð því hvort starfsemi yfirkjörstjórna falli undir stjórnsýslu Alþingis eða ekki væri afgreiðsla yfirkjörstjórnar á beiðni um aðgang að gögnum á grundvelli upplýsingalaga ekki kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sbr. 4. mgr. 2. gr. upplýsingalaga. Varð því að vísa kærunni frá.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    949/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurða nr. 934/2020, 936/2020 og 941/2020 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    948/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 779/2019 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    947/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Deilt um afgreiðslu Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að fundargerðum félagsins en í svari til kæranda var bent á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar þar sem nálgast mátti fundargerðirnar. Úrskurðarnefndin taldi afgreiðslu Herjólfs vera fullnægjandi með vísan til 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga. Þar sem ekki var um að ræða synjun um aðgang að gögnum var málinu vísað frá.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    946/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Kærð var afgreiðsla Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um fjölda ökutækja eða farþega sem ferðast um þjóðveg 1. Herjólfur svaraði kæranda því að umbeðnar upplýsingar væru ekki fyrirliggjandi hjá félaginu og benti honum á að beina beiðninni til Vegagerðarinnar. Þar sem ekki lá fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    23. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    945/2020. Úrskurður frá 23. nóvember 2020

    Í málinu var deilt um afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um upplýsingar um ábendingu til stofnunarinnar vegna búsetu hans erlendis. Í svörum stofnunarinnar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál kom fram að engin slík ábending væri fyrirliggjandi í málinu enda hefði stofnunin nálgast upplýsingar um búsetu kæranda með eigin eftirliti. Að mati nefndarinnar var ekki um að ræða synjun um aðgang að fyrirliggjandi gögnum, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, og var málinu vísað frá.

    21. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Desemberviðbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að greiða umsækjendum um alþjóðlega vernd viðbót við fastar framfærslugreiðslur í desember. Greiðslan nemur 10 þúsund krónum fyrir fullorðinn einstakling og 5 þúsund krónum fyrir barn.

    21. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fræðsluátak um gervigreind

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að ráðist verði í fræðsluátak fyrir almenning um gervigreind. Er það í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni.

    20. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Viðspyrna fyrir Ísland: Viðspyrnustyrkir og stuðningur við atvinnuleitendur, lífeyrisþega, barnafjölskyldur og félagslega viðkvæma hópa

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða sérstakt viðbótarálag á grunnbætur atvinnuleysistrygginga á næsta ári sem koma á til móts við þann stóra hóp sem á næstu mánuðum fellur út af tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Álagið hljóðar uppá 2,5% og kemur til viðbótar þeirri 3,6%​hækkun sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Með þessu nemur heildarhækkun grunnbóta 6,2% og þær verða því 307.403 kr. ​

    20. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Óbreytt fyrirkomulag á landamærum til 1. febrúar

    Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar í morgun. Þar var ennfremur tekin sú ákvörðun að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið COVID-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild og veiti undanþágu frá þeim kröfum sem annars eru gerðar.

    19. nóv. 2020Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Kapphlaupið að kolefnishlutleysi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í dag þátt í lokaumræðum ráðstefnunnar Race to Zero Dialogues en hún hefur staðið yfir undanfarna tíu daga og hefur það að meginmarkmiði að þrýsta á hraðari umskipti yfir í efnahagslíf án kolefnislosunar á grunni loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna.

    18. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra meðal gesta á CARE verðlaunaafhendingunni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er meðal þeirra sem fram koma á árlegri verðlaunaafhendingu bandarísku mannúðarsamtakanna CARE í kvöld en þau eru ein stærstu og elstu þróunar- og mannúðarsamtök heims.

    17. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Í fótspor Árna Magnússonar í Vesturheimi

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að styrkja uppbyggingu og hönnun nýs gagnagrunns fyrir stafrænar handritamyndir af íslenskum menningarminjum í Norður-Ameríku um fimm milljónir.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    944/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Deilt var um synjun Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um samantekt með auglýsingakostnaði félagsins, sundurliðuðum eftir fjölmiðlum á tilteknu tímabili. Eins og atvikum málsins var háttað féllst úrskurðarnefnd um upplýsingamál á þá staðhæfingu Herjólfs að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi, sbr. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, og að félaginu væri ekki skylt að taka gögnin saman. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    943/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að dómi Félagsdóms varðandi lögmæti verkfalls á Herjólfi. Í svari félagsins við beiðni kæranda var bent á hvar dóminn væri að finna á vef Félagsdóms. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Herjólfi hefði verið heimilt að afgreiða beiðni með því að vísa á vef Félagsdóms, sbr. 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga. Þar sem ekki lá fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    942/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að ferilskrá framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga nær réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um störf. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að ferilskrá framkvæmdastjórans væri gagn í máli sem varðaði umsókn hans um starf hjá Herjólfi og var synjun félagsins því staðfest.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    941/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar synjaði kæranda um aðgang að gögnum sem tengdust máli kæranda og sonar hans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda kunna að eiga rétt til gagnanna á grundvelli 2. mgr. 2. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 45. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Yrði því ágreiningur um aðgang að gögnunum borinn undir úrskurðarnefnd velferðarmála en ekki úrskurðarnefnd um upplýsingamál, sbr. 6. gr. laga nr. 80/2002, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    940/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Vinnueftirlitsins á beiðni kæranda um aðgang að ábendingum og kvörtunum sem borist hefðu stofnuninni vegna tiltekins vinnustaðar. Vinnueftirlitið kvað engin slík gögn liggja fyrir hjá stofnuninni. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þær fullyrðingar Vinnueftirlitsins. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um aðgang að gögnum var kærunni vísað frá.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    938/2020. Úrskurður frá 30. október 2020

    Kærð var afgreiðsla Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á beiðni um aðgang að gögnum. KMÍ afhenti kæranda gögn við meðferð málsins og staðhæfði að frekari gögn væru ekki fyrirliggjandi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til þess að draga þá staðhæfingu í efa og var því kærunni vísað frá.

    16. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    GRECO birtir eftirfylgniskýrslu um Ísland

    Samtök ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO), hafa í dag birt eftirfylgniskýrslu ​um aðgerðir Íslands í fimmtu úttekt samtakanna á aðildarríkjunum.

    09. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Fjölmennasti ársfundur Heimsráðs kvenleiðtoga frá upphafi

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði ársfundi Heimsráðs kvenleiðtoga (Council of Women World Leaders) í Hörpu í dag. Sérstök umræða fór fram um aukið kynbundið ofbeldi vegna heimsfaraldurs COVID-19 þar sem Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women var frummælandi ásamt forsætisráðherra

    09. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra opnar Heimsþing kvenleiðtoga

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði Heimsþing kvenleiðtoga í Hörpu í dag. Forsætisráðherra bauð kvenleiðtoga velkomna sem allar taka þátt rafrænt að þessu sinni.

    05. nóv. 2020Forsætisráðuneytið

    Ný stefna í málefnum hinsegin fólks samþykkt á fundi norrænna ráðherra jafnréttismála

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og ráðherra jafnréttismála, sat fjarfund norrænna jafnréttisráðherra í dag.

    03. nóv. 2020Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu vegna COVID-19

    nóvember 2020 / Forsætisráðuneytið Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu vegna COVID-19 Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 sem settur var á laggirnar í apríl 2020 liggur nú fyrir. Í skýrslunni er fjallað um mikilvægi upplýsingamiðlunar og lýðheilsu, nýtt tækniumhverfi og miðlun upplýsinga, samstarf hópsins við Vísindavef Háskóla Íslands og alþjóðasamstarf á þessu sviði

    03. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ríkisstjórnin skilgreinir forgangsmál vegna hagsmunagæslu gagnvart ESB

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun lista yfir forgangsmál hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu 2020-21. Á listanum eru einkum mál sem eru í undirbúningi á vettvangi ESB og þar sem íslenskir hagsmunir eru sérstaklega í húfi.

    02. nóv. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    937/2020. Úrskurður frá 20. október 2020

    Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðar nr. 927/2020 var hafnað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki uppfyllt og að ekki væru rökstuddar vísbendingar um að á úrskurðinum væru verulegir annmarkar að lögum.

    • First
    • Prev
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • 36
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband