Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1751–1800 af 3871
    Raða eftir:
    08. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    921/2020. Úrskurður frá 28. ágúst 2020

    Deilt var um afgreiðslu Landsnets á beiðni um aðgang að gögnum varðandi undirbúning og samráðsferli fyrirhugaðrar lagningar jarðstrengs. Landsnet vísaði kæranda á þau gögn sem þegar höfðu verið gerð aðgengileg en synjaði honum um tvö minnisblöð sem það taldi til vinnugagna, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 6. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin féllst á það með Landsneti að umbeðin gögn væru vinnugögn í skilningi 8. gr. upplýsingalaga og þar með undanþegin upplýsingarétti.

    08. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    920/2020. Úrskurður frá 14. júlí 2020

    Staðfest var synjun Herjólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að einingarverðum fyrirtækja vegna kaupa Herjólfs ohf. á raforku en aðrar upplýsingar í tilboðunum höfðu verið birtar opinberlega.

    06. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Norðurland fær Demantshring

    Demantshringurinn, ný 250 kílómetra ferðamannaleið sem tengir saman fjölda áfangastaða á Norðurlandi, var opnaður með formlegum hætti í dag. ​

    04. sep. 2020Forsætisráðuneytið

    Ársskýrsla umboðsmanns barna 2019 komin út

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, áttu fund í dag þar sem umboðsmaður barna kynnti ársskýrslu embættisins fyrir árið 2019 fyrir forsætisráðherra.

    02. sep. 2020Forsætisráðuneytið

    Þjóðhagsráð fór yfir áskoranirnar framundan

    Áherslur við endurskoðun fjármálastefnu, staða efnahagsmála, félagslegur stöðugleiki og endurskoðun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði voru meðal efnis á fundi þjóðhagsráðs í dag en þar sitja formenn ríkisstjórnarflokkanna, seðlabankastjóri, forsvarsmenn sveitarfélaga og forsvarsmenn heildarsamtaka á vinnumarkaði.

    01. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    10 aðgerðir til að efla vísindi og nýsköpun

    Framlög í samkeppnissjóði í vísindum og nýsköpun munu vaxa um helming á næsta ári miðað við fjárlög ársins 2020, samkvæmt nýrri vísinda- og tæknistefnu.

    01. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Óbreytt klukka á Íslandi

    Klukkan á Íslandi verður óbreytt eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund.

    28. ágú. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Njálurefillinn fær varanlegt sýningarrými

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að veita 25 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til þess að koma hinum svokallaða Njálurefli fyrir í varanlegu sýningarhúsnæði í Rangárþingi Eystra.

    25. ágú. 2020Forsætisráðuneytið

    Ráðherrar ekki smitaðir

    Niðurstöður úr síðari skimun ráðherra vegna kórunuveiru reyndust neikvæðar í öllum tilfellum.

    22. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveiru neikvæðar

    Niðurstöður úr fyrri skimun ráðherra vegna kórónuveiru reyndust neikvæðar í öllum tilfellum. Félags- og barnamála- og heilbrigðisráðherra þurftu ekki að fara í skimun líkt og áður hefur komið fram.

    21. ágú. 2020Forsætisráðuneytið

    Ráðherrar í ytri hring mögulegs smithóps

    Ákveðið hefur verið að ráðherrar ríkisstjórnarinnar fari í tvöfalda skimun og viðhafi smitgát á milli eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust í gær hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Breyttar reglur um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum

    Farþegar sem koma til Íslands frá og með 19. ágúst geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis tekur gildi á miðnætti. Krafa um skimun og sóttkví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sólarhring síðastliðna 14 daga í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanþegin sýnatöku og sóttkví og sama gildir um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið einangrun, eða ef COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu.…

    18. ágú. 2020Forsætisráðuneytið

    Sumarfundur ríkisstjórnarinnar á Hellu í dag

    Ríkisstjórnin kom saman til fundarhalda á Hótel Læk, nærri Hellu á Rangárvöllum, í dag.

    17. ágú. 2020Forsætisráðuneytið

    Sumarfundur ríkisstjórnarinnar á Hellu

    Ríkisstjórnarfundur verður haldinn á Hellu á Rangárvöllum á morgun, þriðjudaginn 18. ágúst og hefst fundurinn klukkan 10.

    14. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Að lifa með veirunni – samráðsfundur 20. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu 20. ágúst með lykilaðilum í samfélaginu um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður beint frá fundinum sem markar upphaf samráðsins en afraksturinn verður birtur í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum.

    14. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Allir komufarþegar fari í tvöfalda skimun og 5-6 daga sóttkví

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi í dag að eigi síðar en frá og með miðvikudeginum 19. ágúst næstkomandi verði allir komufarþegar skimaðir tvisvar við komuna til Íslands.

    11. ágú. 2020Rit og skýrslur, Stjórnskipan og þjóðartákn, Forsætisráðuneytið

    Staða stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins

    Niðurstöður könnunar á stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins. Könnunin, var framkvæmd í desember 2019 og janúar 2020 og byggð á sama grunni og fyrri kannanir sem framkvæmdar voru árin 2015 og 2017.

    11. ágú. 2020Forsætisráðuneytið

    Stefnumótun og áætlanagerð Stjórnarráðsins styrkist

    Ný könnun á stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins gefur til kynna að tekist hafi að styrkja þessa þætti á undanförnum árum.

    01. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Embættistaka forseta Íslands

    Athöfn vegna embættistöku forseta Íslands fer fram í Alþingishúsinu í dag 1. ágúst og hefst hún kl. 15.30.

    27. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    919/2020. Úrskurður frá 14. júlí 2020

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði beiðni kæranda um upplýsingar um kostnað vegna málaferla og dómsátta sveitarfélagsins frá tilteknu tímabili, sundurliðuðum eftir málum, aftur til Akureyrarbæjar til nýrrar meðferðar en sveitarfélagið sagði umbeðin gögn ekki vera fyrirliggjandi. Úrskurðarnefndin taldi sveitarfélagið ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort tilefni væri til þess að veita kæranda aðgang að reikningum og öðrum gögnum sem kynnu að innihalda umbeðnar upplýsingar og hefði beiðnin því ekki hlotið þá meðferð sem upplýsingalög geri kröfu um.

    27. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    918/2020. Úrskurður frá 14. júlí 2020

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum frá Landspítalanum um hvaða ljósmæður hefðu verið á vakt á fæðingardeild tiltekna nótt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að upplýsingunum á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Nefndin féllst ekki á að umbeðnar upplýsingar væru ekki fyrirliggjandi. Þá var ekki fallist á að upplýsingarnar yrðu felldar undir 4. tölul. 6. gr., sbr. 7. gr. upplýsingalaga. Að lokum taldi nefndin kæranda eiga ríkari rétt til aðgangs að upplýsingunum en viðkomandi starfsmenn af því að þær færu leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Var því Landspítalanum gert að afhenda kæranda umbeðnar upplýsingar.

    27. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    917/2020. Úrskurður frá 14. júlí 2020

    Í málinu var kærð afgreiðsla Fjársýslu ríkisins á beiðni um aðgang að upplýsingum um innkaup lögreglu á vörum til reksturs rannsóknarlögreglu á tímabilinu janúar til apríl 2017. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með Fjársýslu ríkisins að umbeðnar upplýsingar væru ekki fyrirliggjandi hjá stofnuninni. Þrátt fyrir að einhver bókhaldsgögn sem felld yrðu undir beiðni kæranda kynnu að vera í vörslum stofnunarinnar hefði stofnunin ekki upplýsingar um hvaða gögn tilheyrðu rannsóknarlögreglu á tímabilinu. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    27. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    916/2020. Úrskurður frá 14. júlí 2020

    Kærð var synjun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að fundargerðum Lindarhvols ehf. árin 2016-2018. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að þagnarskylduákvæði 15. gr. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, og 51. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, ættu við um gögnin. Úrskurðarnefndin taldi hluta fundargerðanna innihalda upplýsingar sem með engu móti yrðu felldar undir 9. gr. upplýsingalaga. Að mati nefndarinnar hafði ráðuneytið ekki rökstutt með fullnægjandi hætti hvaða upplýsingar í fundargerðunum kynnu að verða felldar undir 9. gr. upplýsingalag og eftir atvikum 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.…

    27. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    915/2020. Úrskurður frá 14. júlí 2020

    Deilt var um afgreiðslu Hafrannsóknastofnunar á beiðni félags um aðgang að gögnum sem varða veiðiráðgjöf vegna beitukóngs árið 2019. Hafrannsóknarstofnun sagði umbeðnar upplýsingar vera fyrirliggjandi í tækniskýrslu um beitukóng sem gefin var út árið 2019 og vísaði til þess hvar í skýrslunni upplýsingarnar væri að finna. Engin önnur gögn væru til um ráðgjöfina en fundargerðir, glærusýningar og forritunarkóði sem synjað var um aðgang að á þeim grundvelli að gögnin væru vinnugögn, sbr. 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst á það með Hafrannsóknarstofnun að gögnin væru undanþegin upplýsingarétti á þeim grundvelli.

    24. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Kosningar

    Kosið í september á næsta ári

    Núverandi kjörtímabili Alþingis lýkur þann 28. október árið 2021. Eins og áður hefur komið fram hefur forsætisráðherra sagt að upplýst verði um kjördag fyrir komandi þingvetur. Forsætisráðherra hefur nú ákveðið að stefnt skuli að því að næsti kjördagur verði síðasta laugardag í september 2021 – eða 25. september 2021.

    20. júl. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar Skálholtshátíð

    Forsætisráðherra hélt hátíðarræðu á Skálholtshátíð í gær. Hún hóf ræðu sína á að rifja upp ýmsa merkisviðburði í sögu Skálholts sem margt endurspegla sögu Íslands.

    17. júl. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skráning hafin á Gagnaþon fyrir umhverfið

    Gagnaþon fyrir umhverfið er yfirskrift nýsköpunarkeppni sem fer fram dagana 12.-19. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni er áhersla lögð á þróun lausna sem gagnast umhverfinu, í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið

    Minningarathöfn um eldsvoðann á Þingvöllum 1970

    Fimmtíu ár eru í dag liðin frá því að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, og kona hans, Sigríður Björnsdóttir, og barnungur dóttursonur þeirra, Benedikt Vilmundarson létust í eldsvoða að Þingvöllum.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Neytendamál

    Töluverð ánægja með þjónustu ríkisstofnana

    Nýlegar kannanir á þjónustu ríkisstofnana gefa til kynna að á heildina litið sé mikil ánægja með þjónustu þeirra stofnana sem spurt var um og mældist hún yfir meðaltali úr þjónustugrunni Gallups.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði rafrænan leiðtogafund Alþjóðavinnumálastofnunarinnar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi stóraukið atvinnuleysi, mikilvægi alþjóðasamstarfs og þess að standa vörð um réttindi launafólks og viðkvæmra hópa á rafrænum leiðtogafundi Alþjóðavinnumálastofnunnar sem fram fór í vikunni.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    914/2020. Úrskurður frá 29. júní 2020

    Kærð var afgreiðsla Herjólfs ohf. á beiðni um upplýsingar um nöfn starfsmanna félagsins, stöðu þeirra og menntun miðað við 1. febrúar 2020. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að samkvæmt 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga bæri að veita almenningi upplýsingar um nöfn og starfssvið starfsmanna lögaðila sem falla undir lögin. Hins vegar bæri ekki að veita upplýsingar um menntun starfsmanna og var því staðfest synjun Herjólfs ohf. á beiðni um þær upplýsingar. Þá hafði Herjólfur ohf. birt nöfn og starfssvið starfsmanna á vefsíðu félagsins og voru þær upplýsingar því þegar aðgengilegar almenningi. Var kærunni þar af leiðandi vísað frá að því leyti.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    913/2020. Úrskurður frá 29. júní 2020

    Í málinu var deilt um afgreiðslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á beiðni um aðgang að upplýsingum um bíltæknirannsóknir sem lögreglan hefði látið framkvæma á tímabilinu 2004-2014. Lögreglan bar því við að ekki væru fyrirliggjandi gögn með slíkum upplýsingum, nema þá í málsgögnum sakamála. Kærunni var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál með vísan til þess að gögn sem varða rannsókn sakamála eru undanþegin upplýsingarétti samkvæmt 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    912/2020. Úrskurður frá 29. júní 2020

    Kærð var afgreiðsla Vegagerðarinnar á beiðni um aðgang að upplýsingum varðandi kostnað við utanlandsferð starfsmanna Vegagerðarinnar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Spalar árið 2002. Vegagerðin kvað engin gögn með slíkum upplýsingum vera fyrirliggjandi hjá stofnuninni. Úrskurðarnefndin taldi sig ekki hafa forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa og var kærunni því vísað frá.

    10. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    911/2020. Úrskurður frá 29. júní 2020

    Kærð var synjun Fiskistofu á beiðni um aðgang að töflureiknisskjölum sem tekin voru saman í tengslum við gerð lagafrumvarps. Fiskistofa hafði afhent kæranda töflureikningsskjölin að hluta en synjað um tilteknar upplýsingar í þeim. Synjunin var í fyrsta lagi byggð á því að um vinnugögn væri að ræða, sbr. 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga, og í öðru lagi að gögnin vörðuðu virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni einkaaðila sem sanngjarnt og eðlilegt væri að leynt færu, sbr. 9. gr. laganna. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að gögnin væru vinnugögn þar sem þau gátu ekki talist undirbúningsgögn auk þess sem þau höfðu verið afhent atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.…

    09. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ársskýrslur ráðherra birtar

    Ársskýrslur ráðherra eru komnar út. Aukið gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna er markmiðið með skýrslunum sem er einnig ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    09. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Auðlindir

    Orkuskipti á Kili

    Haldið var upp á verklok þess að 67 kílómetra rafstrengur og ljósleiðari hefur verið lagður um Kjöl sem er einn af fjórum stofnvegum hálendis Íslands.

    06. júl. 2020Forsætisráðuneytið

    Opnun Vínlandsseturs

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, opnaði í gær sýningu um landnám norrænna manna á Grænlandi og fund Ameríku löngu fyrir daga Kristófers Kólumbusar.

    03. júl. 2020Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin kemur til móts við ófyrirséð útgjöld vegna snjóflóðs á Flateyri

    Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að veita Ísafjarðarbæ og stofnunum fjárstyrk úr almennum varasjóði til að mæta óvæntum og ófyrirséðum útgjöldum vegna brýnustu viðbragða og framkvæmda í kjölfar snjóflóðsins á Flateyri í janúar.

    03. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir

    Stefnt að verðmætari afurðum með minni losun frá sjávarútvegi

    Stefnt er að því að draga úr losun frá sjávarútvegi og auka eftirspurn eftir heilnæmum íslenskum fiski með samstarfi stjórnvalda og atvinnugreinarinnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu um hvata til að draga úr kolefnisspori íslensks sjávarútvegs sem undirrituð var við ráðherrabústaðinn í dag.

    03. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Fimm milljónir til Handverks og hönnunar

    Ríkisstjórnin ákvað í morgun að veita fimm milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til sjálfseignarstofnunarinnar Handverks og hönnunar.

    02. júl. 2020Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Jafnrétti, Loftslagsmál, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherrar Íslands og Noregs ræddu við norræna forstjóra

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, funduðu sameiginlega með samtökum norrænna forstjóra, Nordic CEO´s for Sustainable Future, á fjarfundi í dag þar sem fylgt var eftir sameiginlegri yfirlýsingu forstjóranna frá því í fyrra um að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

    01. júl. 2020Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Forsætisráðuneytið

    Ísland meðal forysturíkja átaksverkefnis UN Women

    Ísland verður á meðal forysturíkja átaksverkefnisins Kynslóð jafnréttis (e. Generation Equality Forum) á vegum stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UN Women.

    01. júl. 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Frumvarp til breytinga á II. kafla stjórnarskrárinnar um forseta og framkvæmdavald í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

    30. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Jarðamál forsætisráðherra samþykkt

    Alþingi samþykkti nú í gær frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um jarðamál en með því er tryggð yfirsýn og gegnsæi um eignarhald á landi.

    25. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Samstarf Norðurlanda um viðbúnað vegna farsótta styrkt

    Forsætisráðherrar Norðurlanda og leiðtogar Álandseyja, Færeyja og Grænlands ræddu reynsluna af heimsfaraldri Covid-19, stöðu mála og næstu skref.

    23. jún. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum – Ísland uppfyllir skuldbindingar og gott betur

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynntu aðra útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í dag. Með aðgerðunum er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dregist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005. Þetta þýðir að Ísland nær alþjóðlegum skuldbindingum sínum í loftslagsmálum um 29% samdrátt og gott betur, eða 35%. Til viðbótar eru aðgerðir sem eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti.

    22. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    910/2020. Úrskurður frá 11. júní 2020

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum frá Vinnueftirliti ríkisins um hvort stofnuninni hefði borist kvörtun vegna framkomu kæranda á vinnustað. Vinnueftirlitið taldi óheimilt að veita honum upplýsingar um hvort fyrirliggjandi væru gögn með upplýsingunum, sbr. 9. og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar kemur fram að sérstakt þagnarskylduákvæði í lögum nr. 46/1980 hafi verið fellt niður fyrir mistök með lögum nr. 71/2019. Með lögum nr. 40/2020 hafi sérstakt þagnarskylduákvæði verið leitt í lög á ný. Þegar kærandi hafi óskað upplýsingunum hafi verið kveðið á um að starfsmenn Vinnueftirlits ríkisins væru bundnir þagnarskyldu samkvæmt X. kafla stjórnsýslulaga og hafi beiðni kæranda verið réttilega afgreidd á þeim lagagrundvelli.…

    22. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    909/2020. Úrskurður frá 11. júní 2020

    Kærð var afgreiðsla Félagsstofnunar stúdenta á beiðni um gögn varðandi leiguíbúð á vegum félagsins. Þar sem upplýsingalög gilda ekki um beiðnina var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    22. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    908/2020. Úrskurður frá 11. júní 2020

    Deilt var um afgreiðslu Kópavogsbæjar á beiðni kæranda um tiltekin gögn varðandi framkvæmdir við sparkvöll við Austurkór. Sveitarfélagið kvað hluta umbeðinna gagna ekki fyrirliggjandi og staðfesti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þann hluta afgreiðslunnar. Hins vegar taldi sveitarfélagið óheimilt að afhenda samninga sveitarfélagsins við verktaka, með vísan til 2. tölul. 9. gr. upplýsingalaga, auk þess sem heimilt væri að undanþiggja tölvupóstsamskipti vegna framkvæmdanna, með vísan til 5. tölul. 6. gr. laganna. Að mati úrskurðarnefndarinnar höfðu þeir hlutar beiðninnar ekki hlotið þá efnislegu umfjöllun á lægra stjórnsýslustigi sem nefndinni væri fært að endurskoða og var þeim því vísað aftur til Kópavogsbæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    22. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    907/2020. Úrskurður frá 11. júní 2020

    Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á beiðni blaðamanns um aðgang að öllum reikningum varðandi framkvæmdir við Klettaskóla frá árinu 2011. Ákvörðunin byggði á því að afgreiðsla beiðninnar myndi taka svo mikinn tíma og krefjast svo mikillar vinnu að ekki væri af þeim sökum fært að verða við henni, sbr. 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga enda þyrfti að yfirfara reikningana og afmá úr þeim viðkvæmar upplýsingar, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar er tekið fram að stjórnvöldum beri að gæta ítrustu varfærni áður en beiðnum blaðamanna um aðgang að gögnum er synjað á grundvelli undanþáguákvæðisins. Þá hefði blaðamanninum ekki verið gefinn kostur á að afmarka beiðni sína áður en ákvörðun var tekin um að synja honum um aðgang að gögnunum.…

    • First
    • Prev
    • 34
    • 35
    • 36
    • 37
    • 38
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband