Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1801–1850 af 3871
    Raða eftir:
    19. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra undirritar samning við FKA

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, formaður FKA (Félag kvenna í atvinnulífinu), endurnýjuðu samstarfssamning um þróun og kynningu Jafnvægisvogarinnar í Stjórnarráðinu í dag.

    19. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra veitir styrki úr Jafnréttissjóði Íslands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, veitti styrki úr Jafnréttissjóði Íslands við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Alls hlutu 19 verkefni og rannsóknir styrki en alls bárust sjóðnum 88 umsóknir.

    19. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir námskeið í samningatækni og átakafræðum

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita eina milljón króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til Höfða friðarseturs við Háskóla Íslands.

    19. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Endurnýjun björgunarskipa fyrir árið 2023

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um áframhaldandi samstarf ríkisins og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar um kaup á þremur nýjum björgunarskipum.

    19. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Athugun á vísitölu neysluverðs

    Í aðdraganda Lífskjarasamningsins fjölluðu samningsaðilar og stjórnvöld um verðtryggingu fjárskuldbindinga, einkum húsnæðislána.

    18. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    906/2020. Úrskurður frá 8. júní 2020

    Kærð var afgreiðsla umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að gögnum er varða notkun Íslenska orkurannsókna (ÍSOR) á gagnagrunnum frá Orkustofnun. Ráðuneytið hafði upplýst kæranda um að þrátt fyrir leit í málaskrárkerfi þess hefðu ekki fundist frekari gögn um málið en þegar hefðu verið afhent kæranda, enda væri um að ræða atburði sem áttu sér stað áður en ráðuneytið fékk málaflokkinn á sitt borð. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja fullyrðingar ráðuneytisins um að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi og var því kærunni vísað frá nefndinni.

    18. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    905/2020. Úrskurður frá 8. júní 2020

    Í málinu hafði mennta- og menningarmálaráðuneytið synjað beiðni kæranda um aðgang að drögum að bréfi sem stílað var á Ríkisendurskoðun. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á því að um væri að ræða vinnugagn en bréfið hefði aldrei verið sent frá ráðuneytinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga þá fullyrðingu ráðuneytisins í efa en bréfið var óundirritað. Var því ákvörðunin staðfest. Þá taldi nefndin ráðuneytið hafa tekið afstöðu til þess hvort veita ætti kæranda aðgang að drögunum í ríkari mæli en skylt er í samræmi við ákvæði 11. gr. upplýsingalaga.

    18. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    904/2020. Úrskurður frá 8. júní 2020

    Í málinu var deilt um afgreiðslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni um aðgang að samningi Glitnis hf., GLB Holding ehf. og Seðlabanka Íslands. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með ráðuneytinu að samningurinn væri undirorpinn sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 41. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Var því staðfest ákvörðun ráðuneytisins um að synja beiðni kæranda um aðgang að samningnum.

    18. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    903/2020. Úrskurður frá 8. júní 2020

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum um atvik sem kom upp í búsetukjarna Reykjavíkurborgar og sem varðaði kæranda sjálfan. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skjal með færslum vettvangsgeðteymis vera vinnugagn í skilningi 8. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á að Reykjavíkurborg væri heimilt að synja beiðni kæranda um aðgang að færslunum með vísan til 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin féllst aftur á móti ekki á að færslur í atvikaskráningakerfi velferðarsviðs væru vinnugögn. Var því leyst úr rétti kæranda til aðgangs að færslunum á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á rétt kæranda til aðgangs að skjalinu að undanskildum upplýsingum um lýsingu starfsmanns á upplifun sinni, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.

    18. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    902/2020. Úrskurður frá 8. júní 2020

    Kærð var ákvörðun Herjólfs ohf. um að synja beiðni um aðgang að skjali með reikningsjöfnuði félagsins yfir átta mánaða tímabil. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með félaginu að skjalið væri vinnugagn sem heimilt væri að undanþiggja upplýsingarétti á grundvelli 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga.

    17. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Ávarp forsætisráðherra á Austurvelli 17.júní 2020

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi hvernig veganesti Jóns Sigurðssonar hefði dugað þjóðinni í baráttunni gegn farsóttinni í ávarpi sínu á Austurvelli á 17.júní og minnti jafnframt á að mótmæli hans hefðu verið mótmæli gegn kúgun rétt eins og mótmælaaldan gegn kynþáttamisrétti sem gengið hefur yfir heimsbyggðina að undanförnu.

    11. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Framtíðarhorfur ræddar á aukafundi Þjóðhagsráðs.

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, kallaði saman aukafund í útvíkkuðu Þjóðhagsráði í gær en meginefni hans var hvernig Ísland geti markað sér leið til framtíðar á sviði efnahags, samfélags og umhverfis í kjölfar heimsfaraldursins.

    10. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Fyrstu heildarlögin um varnir gegn hagsmunaárekstrum samþykkt á Alþingi

    Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands var samþykkt á Alþingi í gær.

    10. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur lagt fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd upplýsingalaga árið 2019 og er skýrslan sú fimmta frá árinu 2016.

    09. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundar með ráðherrum

    Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra og Páli Magnússyni, ráðuneytisstjóra mennta- menningarmálaráðuneytis í dag.

    08. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Breytingar á reglum um komur ferðamanna til Íslands

    Breytingar verða á reglum um komur ferðamanna til Íslands frá og með 15. júní næstkomandi. Er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

    04. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Ísland leggur fram hálfan milljarð í þróun á bóluefni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tilkynnti um framlag Íslands til sérstaks aðgerðabandalags fjölmargra ríkja, fyrirtækja og stofnana á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í dag.

    03. jún. 2020Forsætisráðuneytið

    Tillaga til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni samþykkt á Alþingi

    Þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra,um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 – 2025 var samþykkt á Alþingi í dag.

    02. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Rýmri reglur um komur ferðamanna

    Samkvæmt hagrænu mati sem unnið var að beiðni forsætisráðherra og kynnt var í ríkisstjórn í morgun yrðu efnahagslegar afleiðingar þess að viðhalda óbreyttu ástandi ferðatakmarkana gríðarlegar og rétt að draga úr þeim samhliða sóttvarnaraðgerðum.

    02. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    901/2020. Úrskurður frá 20. maí 2020

    Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafði synjað kæranda um aðgang að gögnum tengdum dómsmáli sem kærandi höfðaði gegn íslenska ríkinu og Minjastofnun Íslands og var sú afgreiðsla kærð til úrskurðarnefndarinnar. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að því hefði verið heimilt að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem fælu í sér bréfaskipti við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað, sbr. 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Þá féllst nefndin á að hluti gagnanna væru vinnugögn sbr. 8. gr. upplýsingalaga og þar með undanþegin upplýsingarétti samkvæmt 5. tölul. 6. gr. laganna. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    02. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    900/2020. Úrskurður frá 20. maí 2020

    Kærð var afgreiðsla Seðlabanka Íslands á beiðni um öll samskipti starfsmanna og lögmanna bankans við þrotabú eignarhaldsfélags. Bankinn kvað engin gögn sem kæran lyti að vera fyrirliggjandi hjá bankanum. Úrskurðarnefndin taldi ekki séð að Seðlabanki Íslands hefði í tilefni af beiðni kæranda kannað hvort gögn er féllu undir beiðnina og sem bankanum væri skylt að varðveita væru í fórum lögmanna er störfuðu fyrir bankann. Beiðninni var því vísað til nýrrar meðferðar hjá Seðlabankanum.

    02. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    899/2020. Úrskurður frá 20. maí 2020

    Kærð var synjun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins á beiðni um upplýsingar um fjölda leyfa sem ráðuneytið og undirstofnanir þess hefðu veitt starfsmönnum til stofnunar einkafyrirtækja á tilteknu tímabili, afritum af leyfum starfsmanna til að gegna aukastörfum og stofna einkafyrirtæki á sama tímabili ásamt upplýsingum um heimildir tiltekins starfsmanns Vegagerðarinnar til að starfa fyrir nokkur nafngreind fyrirtæki. Úrskurðarnefndin vísaði frá þeim hluta málsins sem sneri að starfsmönnum undirstofnana á þeim grundvelli að þau væru ekki fyrirliggjandi í ráðuneytinu. Hvað varðar beiðni um afrit af leyfum starfsmanna til að gegna aukastörfum var synjun ráðuneytisins staðfest með vísan til 7. gr. upplýsingalaga.…

    02. jún. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    898/2020. Úrskurður frá 20. maí 2020

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um samskipti fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Norrænu ráðherranefndarinnar í tengslum við mögulega ráðningu kæranda í ritstjórastöðu tímarits. Synjun ráðuneytisins byggði á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að gögnin færu leynt enda hefðu þau að geyma upplýsingar um samskipti við fjölþjóðastofnun, sbr. 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að upplýsingunum á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin ekkert í gögnunum gefa tilefni til að ætla að raunverulegt tjón hlytist af því að þau yrðu afhent kæranda. Var því ráðuneytinu gert að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    31. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Atvinnuvegaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samkomulag um Svanna – lánatryggingasjóð kvenna undirritað til næstu fjögurra ára

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi starf Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna.

    27. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra heimsótti Stígamót

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Stígamót í dag. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, ráðgjafi hjá Stígamótum, tók á móti forsætisráðherra og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, skrifstofustjóra á skrifstofu jafnréttismála, og kynnti fyrir þeim starfsemina.

    24. maí 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Barnamenning blómstrar: 42 verkefni hljóta styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fluttu ávörp við úthlutun Barnamenningarsjóðs Íslands fyrir árið 2020.

    22. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra í heimsókn í Kvennaathvarfið

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Kvennaathvarfið í dag og fékk kynningu á starfsemi þess. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, tók á móti forsætisráðherra og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu jafnréttismála, sýndi þeim húsnæðið og fór yfir þær úrbætur sem ráðist verður í á komandi mánuðum.

    20. maí 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kynntu áherslur ríkisstjórnarinnar í nýsköpun og vísindum

    Milljarður í samfélagslegar áskoranir, aðgerðaráætlun um fjórðu iðnbyltinguna og samstarf við Carlsberg-sjóðinn m.a. um áhrif loftslagsbreytinga á hafið.

    20. maí 2020Rit og skýrslur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um fjórðu iðnbyltinguna - Tillögur verkefnisstjórnar

    Aðgerðaáætlunin felur í sér 27 aðgerðir sem stjórnvöld munu vinna að á komandi misserum. Hún er unnin af verkefnisstjórn sem forsætisráðherra skipaði í júlí 2019 og byggir á ýtarlegri greiningu á þeim tækifærum og áskorunum sem fjórða iðnbyltingin hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag.

    20. maí 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Út úr kófinu - vísindi, nýsköpun og áskoranir framtíðarinnar

    Forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í dag kl. 12.00 þar sem forsætisráðherra kynnir markáætlun og skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna,

    15. maí 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Frumvörp um framhald hlutastarfaleiðar og aukinn stuðning við fyrirtæki samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Frumvörpin eru hluti af framhaldsaðgerðum stjórnvalda í efnahagsmálum vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem kynntar voru þann 28. apríl sl.

    14. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ísland upp um fjögur sæti á Regnbogakortinu

    Ísland hækkar um fjögur sæti á milli ára á Regnbogakortinu, úttekt á stöðu og réttindum hinsegin fólks í Evrópu. Ísland er nú komið í 14. sæti en var í 18. sæti í fyrra (2019).

    13. maí 2020Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Fyrstu heildarlögin um vernd uppljóstrara samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti í gær frumvarp forsætisráðherra um vernd uppljóstrara sem lagt var fyrir þingið síðastliðið haust.

    12. maí 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sýnataka á Keflavíkurflugvelli

    Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að frá og með 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í 2ja vikna sóttkví.

    12. maí 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Áhrif COVID-19 á jafnrétti kynjanna á Norðurlöndunum

    Rætt var um viðbrögð Norðurlandanna í tengslum við COVID – 19 og jafnrétti kynjanna á fundi norrænna ráðherra jafnréttismála sem haldinn var í morgun.

    11. maí 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn

    Stjórnarskrárákvæði um íslenska tungu til umsagnar þjóðarinnar

    Á fundi formanna stjórnmálaflokkanna sem sæti eiga á Alþingi og haldinn var á föstudag var ákveðið að birta drög að frumvarpi um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands til samráðs við almenning í samráðsgátt stjórnvalda.

    11. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    897/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020

    Í málinu kærði blaðamaður synjun Barnaverndarstofu á beiðni hans um gögn varðandi tiltekið fósturheimili. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með Barnaverndarstofu að óheimilt væri að veita upplýsingar um hvort athugasemdir vegna starfsemi fósturheimila hafi borist án þess að fram færi atviksbundið mat á efni slíkra gagna. Fallist var á að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að hluta gagna Barnaverndarstofu varðandi heimilið með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Barnaverndarstofu var þó gert að veita kæranda aðgang að hluta bréfs barnaverndarnefndar Kópavogs vegna fósturheimilisins og svarbréfi Barnaverndarstofu í heild sinni.

    11. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    896/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020

    Kærð var afgreiðsla Herólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2020 en Herjólfur hafði vísað til þess í svari til kæranda að upplýsingarnar væri að finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Úrskurðarnefndin taldi 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga ekki verða túlkaðan á þann veg að ákvæðið leggi skyldu á stjórnvöld til að afhenda gögn á því formi sem aðili óski eftir þegar þau séu þegar aðgengileg almenningi. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    11. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    895/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að vinnusálfræðilegri greinargerð sem unnin var í tilefni af kvörtunum kæranda um einelti á vinnustað. Úrskurðarnefndin mat rétt kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Talið var að hagsmunir kæranda af því að geta kynnt sér efni skýrslunnar vægju þyngra en hagsmunir þeirra sem tjáðu sig við gerð hennar af leynd. Hins vegar bæri að afmá úr skýrslunni frásagnir um einkamálefni annarra en kæranda, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.

    11. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    894/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020

    Í málinu óskaði blaðamaður eftir því að úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvæði upp úrskurð varðandi rétt hans til aðgangs að fundargerðum Ríkisútvarpsins ohf. á tímabilinu 1. janúar 2018 til 7. ágúst 2019 á grundvelli 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga. Í rökstuðningi Ríkisútvarpsins vegna kærunnar kom fram að það væri afstaða félagsins að afhenda kæranda fundargerðirnar en áður bæri þó að afmá tilteknar upplýsingar úr þeim. Úrskurðarnefndin taldi fundargerðirnar vera að mestu leyti vinnugögn og því væri félaginu heimilt að undanþiggja upplýsingar úr þeim á þeim grundvelli, sbr. 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Þó væri félaginu skylt að afmá tilteknar upplýsingar úr fundargerðunum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga.

    08. maí 2020Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á vef heimsmarkmiðanna, Óskað er eftir umsóknum frá ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára hvaðanæva af landinu.

    08. maí 2020Forsætisráðuneytið

    Barnaþing komið til að vera

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók ásamt ríkisstjórninni allri við skýrslu barnaþings í vorblíðunni fyrir utan Ráðherrabústaðinn í dag

    04. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    893/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020

    Kærð var afgreiðsla Vegagerðarinnar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum rafrænnar ferilvöktunar í tengslum við tjón sem varð á bifreið kæranda en kærandi taldi snjómoksturstæki á vegum Vegagerðarinnar hafa valdið tjóninu. Úrskurðarnefndin mat rétt kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga og taldi hagsmuni hans af því að geta kynnt sér gögnin ríkari en óljósa hagsmuni annarra sem gögnin gætu varðað.

    04. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    892/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020

    Vinnueftirlitið hafði synjað beiðni kæranda um aðgang að gögnum með vísan til þagnarskylduákvæðis 2. mgr. 83. gr. laga nr. 46/1980 og 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi fyrrnefnda ákvæðið ekki kveða á um sérstaka þagnarskyldu heldur almenna og yrði því að meta rétt kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga. Að mati úrskurðarnefndarinnar skorti að tekin hefði verið rökstudd afstaða til gagnabeiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga og var málinu því vísað aftur til Vinnueftirlitsins til nýrrar meðferðar.

    04. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    891/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020

    Deilt var um afgreiðslu Hveragerðisbæjar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum er varða dóttur kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að hluta gagnanna á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga en til annarra gagna á grundvelli stjórnsýslulaga. Fallist var á rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi sveitarfélagsins við tiltekinn starfsmann að undanskildum upplýsingum um stéttarfélagsaðild hans. Þá taldi nefndin kæranda eiga rétt til aðgangs að gögnum um afgreiðslu máls vegna vantraustsyfirlýsingar á félagsráðgjafa sveitarfélagsins.

    04. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    890/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020

    Kærð var afgreiðsla Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að samningsskilmálum samninga félagsins við sjálfstæða framleiðendur um kaup á dagskrárefni á árunum 2015 og 2018. Ríkisútvarpið hélt því fram að samningarnir hefðu ekki að geyma staðlaða samningsskilmála en auk þess gætu samningarnir geymt upplýsingar sem felldar yrðu undir 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi Ríkisútvarpinu hafa borið að taka afstöðu til þess hvort kærandi ætti rétt á afritum af samningunum á grundvelli upplýsingalaga. Þar sem slíkt mat á beiðni kæranda hafði ekki farið fram var beiðninni vísað aftur til afgreiðslu félagsins.

    04. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    889/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020

    Deilt var um afgreiðslu Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis á beiðni kæranda um aðgang að gögnum. Úrskurðarnefndin taldi upplýsingar um það hvaða fasteignareigendum heilbrigðiseftirlitið hefði sent bréf vegna frágangs fráveitna ekki verða felldar undir undantekningarákvæði upplýsingalaga og féllst á rétt kæranda til aðgangs að bréfum eftirlitsins án útstrikana. Kærandi hafði einnig óskað eftir svarbréfum fasteignareigenda við bréfum eftirlitsins og öllum samskiptum þess við umhverfissvið Mosfellsbæjar en heilbrigðiseftirlitið sagði þau gögn ekki vera fyrirliggjandi. Þar sem úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa var kærunni vísað frá hvað varðar afgreiðslu heilbrigðiseftirlitsins á þeim hluta beiðninnar.

    04. maí 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    888/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020

    Í málinu var fjallað um rétt Samtaka iðnaðarins til upplýsinga sem Reykjavíkurborg hafði afmáð úr fylgiskjali með þjónustusamningi sveitarfélagsins við Orkuveitu Reykjavíkur frá árinu 2010. Reykjavíkurborg hafði afmáð upplýsingar um verkætti og annan kostnað vegna samningsins með vísan til 4. tölul. 10. upplýsingalaga þar sem um væri að ræða viðkvæmar upplýsingar um rekstrar- og samkeppnisstöðu Orku náttúrunnar. Úrskurðarnefndin taldi, að undangengnu heildarmati á samkeppnishagsmunum OR og ON, að ekki væri réttlætanlegt að þeir gengju framar hagsmunum almennings af aðgangi að upplýsingunum. Var því fallist á að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingunum á grundvelli 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga.

    03. maí 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Ávarp forsætisráðherra

    Við verðum að vanda okkur því verkefninu er langt í frá lokið, sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í ávarpi til íslensku þjóðarinnar í kvöld, degi áður en fyrsta skrefið er stigið í afléttingu samkomubanns á morgun.

    30. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Staða Icelandair

    Undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvaldaverið haldið upplýstum um stöðu Icelandair þar sem fram hefur komið að félagið vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár.

    • First
    • Prev
    • 35
    • 36
    • 37
    • 38
    • 39
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband