Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1851–1900 af 3871
    Raða eftir:
    29. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Fundir með forsætisráðherra Svíþjóðar og jafnréttisráðherra Austurríkis

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, áttu símafund um baráttuna gegn COVID-19 í dag.

    28. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Framhald hlutastarfaleiðar og aukinn stuðningur við fyrirtæki

    Fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir umfangsmiklu tekjutapi verður gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til að tryggja réttindi launafólks og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja.

    24. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Velsæld

    39 mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði samþykktir

    Ríkisstjórnin samþykkti tillögu forsætisráðherra á ríkisstjórnarfundi í morgun um notkun 39 félagslegra, umhverfislegra og efnahagslegra mælikvarða sem eru lýsandi fyrir hagsæld og lífsgæði á Íslandi.

    24. apr. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ræddi við forsætisráðherra Danmerkur

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ræddu baráttuna gegn COVID-19 á símafundi í dag.

    24. apr. 2020Forsætisráðuneytið

    Lára Björg nýr aðstoðarmaður ríkisstjórnar á sviði jafnréttismála o.fl.

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að ráða Láru Björgu Björnsdóttur, fyrrverandi upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, sem nýjan aðstoðarmann ríkisstjórnar á sviði jafnréttismála og annarra samstarfsverkefna ráðuneyta

    24. apr. 2020Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði

    Skýrsla nefndar á vegum forsætisráðherra um mælikvarða sem varða hagsæld og lífsgæði. Mælikvarðarnir taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, þeir byggja á opinberum hagtölum og eru samanburðarhæfir við önnur lönd.

    21. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Varnir, vernd og viðspyrna gegn efnahagslegum og félagslegum áföllum

    Lokunarstyrkir til fyrirtækja sem var gert að hætta starfsemi vegna sóttvarna. Stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Fyrirtækjum heimilað að jafna tekjuskatt 2019 með tapi 2020.

    21. apr. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Kvenleiðtogar funda um áhrif COVID-19 á jafnréttismál

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í gær þátt í fjarfundi kvenleiðtoga um áhrif COVID-19 á jafnréttismál og stöðu kvenna. Að fundinum stóðu Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) og Efnahags- og framfarastofnunin (OECD).

    20. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Mest ánægja með viðbrögð stjórnvalda á Íslandi

    96% aðspurðra á Íslandi telja að stjórnvöld standi sig vel í viðureigninni við kórónuveiruna. Íslendingar eru ánægðastir allra þjóða með frammistöðu sinna stjórnvalda vegna COVID-19 samkvæmt alþjóðlegri könnun Gallups.

    20. apr. 2020Forsætisráðuneytið

    Vinnuhópur gegn upplýsingaóreiðu

    Þjóðaröryggisráð hefur ákveðið að koma á fót vinnuhópi til að kortleggja birtingarmyndir og umfang upplýsingaóreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera tillögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni.

    17. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Covid-19

    Forsætisráherra ræddi við Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, áttu símafund í dag en meginefni samtalsins var baráttan gegn COVID-19 og sóttvarnaráðstafanir sem löndin hafa gripið til.

    16. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Covid-19

    Forsætisráðherra fundar með forsætisráðherra Noregs

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, hittust á fjarfundi í dag.

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    887/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020

    Kærð var afgreiðsla Sýslumannsins á Vestfjörðum á beiðni um aðgang að gögnum sem sýndu fram á hver hefði fengið greiddar líftryggingabætur eftir mann sem lést árið 1900. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það að embættinu væri ómögulegt að afgreiða beiðnina vegna aðstæðna á skjalasafni embættisins. Var málinu vísað til Sýslumannsins á Vestfjörðum til nýrrar og lögmætrar meðferðar.

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    886/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020

    Í málinu hafði embætti ríkislögmanns synjað beiðni blaðamanns um aðgang að stefnum útgerðarfélaga á hendur íslenska ríkinu vegna úthlutunar Fiskistofu á aflaheimildum í makríl. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ríkislögmanni að ákvæði laga um meðferð einkamála giltu um stefnur í dómsmálum í vörslu embættisins. Var komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingalög giltu um afgreiðslu embættisins á beiðninni. Úrskurðarnefndin taldi enn fremur að almenningur ætti ríkan rétt til aðgangs að stefnunum enda væri þar krafist að íslenska ríkið greiði skaðabætur á þeim grundvelli að úthlutun aflaheimilda hefði ekki verið lögum samkvæmt. Ríkislögmanni væri því aðeins heimilt að afmá upplýsingar úr stefnunum sem felldar yrðu undir 9. gr. upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna.…

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    885/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020

    Í málinu hafði embætti ríkislögmanns synjað beiðni blaðamanns um aðgang að stefnum útgerðarfélaga á hendur íslenska ríkinu vegna úthlutunar Fiskistofu á aflaheimildum í makríl. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ríkislögmanni að ákvæði laga um meðferð einkamála giltu um stefnur í dómsmálum í vörslu embættisins. Var komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingalög giltu um afgreiðslu embættisins á beiðninni. Úrskurðarnefndin taldi enn fremur að almenningur ætti ríkan rétt til aðgangs að stefnunum enda væri þar krafist að íslenska ríkið greiði skaðabætur á þeim grundvelli að úthlutun aflaheimilda hefði ekki verið lögum samkvæmt. Ríkislögmanni væri því aðeins heimilt að afmá upplýsingar úr stefnunum sem felldar yrðu undir 9. gr. upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna.…

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    884/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020

    Kærð var ákvörðun Borgarbyggðar um að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnum. Úrskurðarnefndin féllst á rétt kæranda til aðgangs að samningi Borgarbyggðar við lögmannsstofu vegna málarekstrarins og minnisblaði sveitarfélagsins með upplýsingum um lögmannskostnað vegna tiltekinna ára. Nefndin vísaði beiðni kæranda um aðgang að sundurliðuðum heildarkostnaði vegna dómsmála milli hans og sveitarfélagsins aftur til Borgarbyggðar.

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menntamál

    Afborganir námslána lækkaðar

    Tekjutengd afborgun námslána lækkar þegar bæði vextir og endurgreiðsluhlutfall á eldri námslánum LÍN verða lækkuð á næstunni. Ábyrgðarmenn á um 30.000 lánum verða felldir brott til að tryggja jafnræði og uppgreiðsluafsláttur hækkaður upp í allt að 15% þegar tillögur um að bæta stuðning við greiðendur námslána verða innleiddar.

    15. apr. 2020Forsætisráðuneytið

    Aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri eftir snjóflóðin í janúar

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti verði falið að annast framkvæmd og eftirfylgni aðgerða á Flateyri í samræmi við tillögur aðgerðahóps sem skipaður var í kjölfar snjóflóðanna í janúar síðastliðnum.

    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19 verður rannsökuð

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að veita 1,5 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19. Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands stendur að rannsókninni í samvinnu við Embætti landlæknis og sóttvarnarlækni, en hún er einnig unnin í samvinnu við aðra háskólastofnanir á Norðurlöndunum.

    14. apr. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Dregið úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi frá 4. maí

    Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í dag næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi. Breytingarnar taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt verður að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunun, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s. á hárgreiðslu- nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskiptavinum sínum. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem gerð er ýtarleg grein fyrir hér á eftir.

    14. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    883/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020

    Í málinu var leyst úr rétti kæranda til aðgangs að skýrslu vegna athugunar á innra starfsumhverfi tiltekins skóla á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi rétt kæranda til þess að geta kynnt sér niðurstöðu athugunarinnar og forsendur hennar vega þyngra en réttur þeirra sem tjáðu sig við gerð skýrslunnar af því að efni hennar færi leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að skýrslunni án útstrikana.

    14. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    882/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020

    Kærð var afgreiðsla fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni um aðgang að tölvupóstssamskiptum ráðuneytisins við embætti ríkislögmanns. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með ráðuneytinu að tölvupóstsamskiptin væru undanþegin upplýsingarétti á grundvelli 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þar sem í þeim færi fram ráðagerð í tengslum við höfðun dómsmáls.

    14. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    881/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020

    Hafnað var kröfu um endurupptöku mála úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 19050024 og 19060008, sem lauk með úrskurðum nr. 829/2019 og 380/2019, þar sem skilyrði stjórnsýsluréttar um endurupptöku máls voru ekki talin vera fyrir hendi.

    14. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    880/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020

    Deilt var um afgreiðslu Fjársýslu ríkisins á beiðni Neytendasamtakanna um upplýsingar um hvort tiltekið fyrirtæki hafi greitt stjórnvaldssektir. Fjársýsla ríkisins bar því við að ekki væru fyrirliggjandi gögn með þeim upplýsingum sem óskað væri eftir og að stofnuninni væri hvorki skylt að fletta viðkomandi lögaðila upp í gagnagrunni stofnunarinnar, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, né heimilt skv. 9. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að gögn með upplýsingunum væru ekki fyrirliggjandi þar sem af svari stofnunarinnar mætti ráða að unnt væri að fletta viðkomandi lögaðila upp í kerfi stofnunarinnar.…

    14. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Sendiskrifstofa

    Rannsóknasetur um hafið, loftslag og samfélag í samvinnu Carlsbergsjóðsins, íslenskra stjórnvalda og Rannsóknasjóðs í tilefni af 80 og 90 ára afmæli Margrétar Danadrottningar og Vigdísar Finnbogadóttur

    Í tilefni af 80 ára afmæli Margrétar Danadrottningar hinn 16. apríl og 90 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, hinn 15. apríl í ár setur Carlsbergsjóðurinn á fót dansk-íslenskt rannsóknasetur í samvinnu við íslensk stjórnvöld.

    07. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir Evrópumót einstaklinga í skák

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 7,5 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sinu til Skáksambands Íslands vegna Evrópumóts einstaklinga í skák sem ráðgert er að haldið verði í Reykjavík á næsta ári.

    06. apr. 2020Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Almannaöryggi

    Fjarfundur forsætisráðherra og forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins áttu fjarfund í dag þar sem þær ræddu fyrst og fremst um heimsfaraldur COVID-19 og efnahagsleg áhrif hans.

    02. apr. 2020Forsætisráðuneytið

    Frumvarpi til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna dreift á Alþingi

    Frumvarpi forsætisráðherra um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna var dreift á Alþingi í dag.

    27. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar í kærunefnd jafnréttismála

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað fulltrúa í kærunefnd jafnréttismála fyrir tímabilið 1. maí 2020 til 30. apríl 2023.

    26. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Hundrað milljónir króna til Kvennaathvarfsins

    Byggingu nýs áfangaheimilis Kvennaathvarfsins verður flýtt með 100 milljóna króna fjárframlagi á árinu 2020 samkvæmt tillögu til þingsályktunar um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

    21. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19

    Viðspyrna fyrir Ísland - efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19

    Ríkið greiðir allt að 75% launa fólks næstu mánuði. ​Ríkisábyrgð á brúarlánum til fyrirtækja.

    21. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja og Landssamtaka lífeyrissjóða um viðbrögð vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10. mars sl. segir að stjórnvöld muni efna til virks samráðs við Samtök fjármálafyrirtækja um viðbrögð þeirra við fyrirsjáanlegum lausafjár- og greiðsluörðugleikum fyrirtækja í ferðaþjónustu. Síðan yfirlýsingin var gefin hefur útbreiðsla faraldursins verið hröð og fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla ráðstafana til að hefta hana. Þær aðgerðir hafa víðtæk áhrif á efnahagshorfur, allt atvinnulíf, heimili og einstaklinga.

    20. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ráðgjafarfyrirtækið McKinsey rýnir aðgerðaáætlun stjórnvalda um loftslagsmál

    Fimmtán og hálf milljón króna verða veitt af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til að umhverfis- og auðlindaráðherra geti gert samning við Kaupmannahafnarskrifstofu ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey sem falið verður að rýna uppfærða aðgerðaáætlun um loftslagsmál og meta þá mælikvarða sem þar eru settir fram. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    20. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Stjórnskipan og þjóðartákn, Dómsmálaráðuneytið

    Auglýsing um framboð og kjör forseta Íslands

    Forsætisráðuneytið hefur í dag látið birta svofellda auglýsingu um framboð og kjör forseta Íslands:

    20. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Róbert nýr upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar

    Róbert Marshall hefur verið ráðinn til þriggja mánaða í stöðu upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar.

    19. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Forsætisráðherra átti símafund með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti í dag símafund með Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, þar sem þær ræddu þróun mála á Íslandi og meginlandi Evrópu í tengslum við útbreiðslu Covid-19

    16. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga við aðildarfélög BSRB

    Við gerð kjarasamninga við aðildarfélög BSRB 9. mars sl. urðu stjórnvöld og BSRB sammála um að stjórnvöld beiti sér fyrir framgangi verkefna er varða almenna velferð barnafjölskyldna í landinu og launajafnrétti með endurmati á launum kvennastétta.

    14. mar. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi, Covid-19, Utanríkismál

    Ráðleggingar íslenskra stjórnvalda til Íslendinga vegna ferðalaga

    Íslensk stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja Íslendinga á ferðalagi erlendis til að íhuga að flýta heimför. Er þetta gert í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis.

    10. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Viðspyrna fyrir íslenskt efnahagslíf

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að beita sér fyrir markvissum aðgerðum til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19.

    08. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Alþjóðleg ráðstefna samtaka sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni á Íslandi 2021 og afmæli Stígamóta

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag að veita 15 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til að standa að alþjóðlegri ráðstefnu samtaka sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni á Íslandi 2021.

    06. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Þingsályktun um forvarnastefnu afgreidd úr ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram í ríkisstjórn í morgun tillögu til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021 – 2025.

    06. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Réttarstaða þriðja aðila bætt með breytingu á upplýsingalögum

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn í morgun frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum nr. 140/2012.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið

    Yfirlýsing ríkisstjórnar, SA og ASÍ um laun í sóttkví

    Ríkisstjórnin, Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa komist að samkomulagi um hvernig staðið verði að launagreiðslum til fólks sem þarf að vera í sóttkví vegna COVID-19.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    879/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja staðhæfingar Reykjavíkurborgar að öll fyrirliggjandi gögn er varða beiðni kæranda hefðu verið afhent. Því lá ekki fyrir ákvörðun um að synja kæranda um aðgang að gögnum í skilningi 20. gr. upplýsingalaga og var kærunni vísað frá nefndinni.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    878/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Í málinu var deilt um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum um afdrif erindis frá starfsmanni embættis ríkislögreglustjóra sem hefði borist dómsmálaráðuneytinu árið 2019 þar sem kvartað hefði verið undan stjórnunarháttum ríkislögreglustjóra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun ráðuneytisins um synjun beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem kynnu að geyma slíkar upplýsingar með vísan til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga en fyrir lá að ríkislögreglustjóri hafði ekki sætt viðurlögum í starfi síðustu fjögur árin áður en beiðni kæranda barst, sbr. 3. mgr. 7. gr. laganna.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    877/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti ákvörðun Herjólfs ohf. um að synja beiðni kæranda um aðgang að nöfnum umsækjenda um stöður kokka, matráða, þerna og þjónustufólks á nýjum Herjólfi með vísan til 1. og 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    876/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum um heildargreiðslur til sauðfjárræktenda fyrir árin 2015 og 2016 á grundvelli 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings. Matvælastofnun taldi óheimilt að veita kæranda aðgang að yfirliti yfir staðfestar greiðslur til sauðfjárbænda á sömu árum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Það var mat úrskurðarnefndarinnar að þrátt fyrir að upplýsingarnar varði greiðslur til lögbýla og þar með fjárhagsmálefni þeirra sem þiggja greiðslur vegna sauðfjárræktar gæfu upplýsingarnar ekki slíka innsýn í fjármál þeirra sem að rekstrinum stæði að rétt væri að takmarka aðgang að upplýsingum um þær og víkja þannig til hliðar upplýsingarétti almennings um ráðstöfun opinberra fjármuna. Var því Matvælastofnun gert að veita kæranda aðgang að yfirlitinu.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    875/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Deilt var um synjun Isavia ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að yfirliti yfir stöðu fjárfestinga félagsins. Isavia ohf. hélt því fram að um vinnugögn væri að ræða, sbr. 8. gr. upplýsingalaga, og að upplýsingar í þeim væru þess eðlis að takmarka ætti aðgang að þeim vegna mikilvægra fjárhags- og viðskiptahagsmuna Isavia ohf. og annarra fyrirtækja, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi Isavia ohf. ekki hafa tekið nægilega rökstudda afstöðu til gagnabeiðninnar til þess að nefndinni væri unnt að endurskoða ákvörðunina, var hún því felld úr gildi og lagt fyrir Isavia ohf. að taka málið til nýrrar meðferðar.

    05. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    868/2020. Úrskurður frá 26. febrúar 2020

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum tengdum fræðilegri ritröð sem fyrirhugað var að kæmi út á vegum Háskólaútgáfunnar og þeirri ákvörðun ritstjórnar ritraðarinnar að hafna bókatillögu kæranda. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál hafði Háskóli Íslands ekki lagt fullnægjandi grundvöll að þeirri ákvörðun sinni að synja kæranda um aðgang að gögnunum og var málinu því vísað heim til nýrrar og lögmætrar meðferðar og afgreiðslu.

    03. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fimmtán aðgerðir til að treysta búsetu og atvinnulíf á Flateyri

    Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipuðu þann 24. janúar sl. starfshóp til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðanna þann 14. janúar sl.

    • First
    • Prev
    • 36
    • 37
    • 38
    • 39
    • 40
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband