Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1951–2000 af 3886
    Raða eftir:
    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 7/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Fyrirvarar. Stöðvun aflétt. Fallist var á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun útboðs vegna skýrslugerðar fyrir heilbrigðisráðuneytið yrði aflétt.

    25. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 5/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hafnað að aflétta stöðvun samningsgerðar. Hafnað var kröfu varnaraðila um að aflétta banni við samningsgerð í kjölfar innkaupaferlisins „Aðalskipulag Suðurnesjabæjar“.

    23. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 4/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hönnunarsamkeppni. Forval. Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kærenda um stöðvun forvals varnaraðila vegna þátttöku í hönnunarsamkeppni var samþykkt, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

    23. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 3/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 30. janúar 2020 kærði Verkís hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Þjóðgarðsins á Þingvöllum (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 21010 „Innheimtuþjónusta fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að útboðið verði fellt úr gildi og lagt fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik. Til vara er þess krafist að „ákvörðun varnaraðila um að hafna því að þeir þjónustuaðilar sem kjósa að nýta núverandi búnað skuli kaupa hann af þjóðgarðinum, á uppreiknuðu kaupverði samkvæmt neysluvísitölu“ verði felld úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að gera slíkar breytingar. Þá er gerð krafa um að kærunefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er gerð krafa um málskostnað.…

    21. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Covid-19

    Viðspyrna fyrir Ísland - efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19

    Ríkið greiðir allt að 75% launa fólks næstu mánuði. ​Ríkisábyrgð á brúarlánum til fyrirtækja.

    21. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja og Landssamtaka lífeyrissjóða um viðbrögð vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

    Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10. mars sl. segir að stjórnvöld muni efna til virks samráðs við Samtök fjármálafyrirtækja um viðbrögð þeirra við fyrirsjáanlegum lausafjár- og greiðsluörðugleikum fyrirtækja í ferðaþjónustu. Síðan yfirlýsingin var gefin hefur útbreiðsla faraldursins verið hröð og fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla ráðstafana til að hefta hana. Þær aðgerðir hafa víðtæk áhrif á efnahagshorfur, allt atvinnulíf, heimili og einstaklinga.

    17. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Vegna útgáfumála ríkissjóðs

    Í ljósi atburða síðustu vikna í tengslum við Covid-19 er fyrirsjáanlegt að fjárþörf ríkissjóðs mun aukast umtalsvert frá fyrri spám. Mikil óvissa er um efnahagshorfur næstu mánuði og því er erfitt að meta lánsfjárþörf ríkissjóðs fyrir yfirstandandi ár. Einnig er óljóst hversu mikil þörfin verður annars vegar til skemmri tíma og hins vegar til lengri tíma.

    16. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir, Covid-19

    Skipting gjalddaga á staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp ríkisstjórnarinnar um tvískiptingu á gjalddaga staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds Breytingin felur í sér að í stað þess að greiða eigi alla kröfuna mánudaginn 16. mars verður greiðsla hennar tvískipt.

    13. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkisstofnanir vel í stakk búnar fyrir fjarvinnu starfsfólks

    Nýtt skrifstofuumhverfi ríkisins, Microsoft 365, reynist vel við að tryggja að starfsfólk ríkisins geti á næstunni sinnt störfum sínum að heiman í ljósi Covid-19 faraldursins og hefur í för með sér að flestar stofnanir þurfa engar viðbótarfjárfestingar til þess að starfsmenn geti unnið heiman frá. Þar gegnir kerfið Teams lykilhlutverki, sem heldur utan um vinnu verkefnahópa, samvinnu í skjölum og fjarfundi.

    12. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    Frumvarp um frestun gjalda afgreitt úr ríkisstjórn

    Fyrirtækjum verður veittur mánaðarfrestur á helmingi tryggingagjalds og staðgreiðslu opinberra gjalda sem voru á gjalddaga í mars, skv. frumvarpi sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í kvöld.

    11. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Opinber innkaup, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um opinbera nýsköpun

    Aðgerðaáætlun um opinbera nýsköpun hefur verið kynnt ríkisstjórn í samræmi við stefnu stjórnvalda um að auka markvisst notkun nýskapandi lausna hjá hinu opinbera og nýsköpunarstefnu fyrir Ísland.

    10. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Viðspyrna fyrir íslenskt efnahagslíf

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að beita sér fyrir markvissum aðgerðum til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19.

    10. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Beint að efninu: Ísland.is fær nýja ásýnd og þjónusta efld

    Ísland.is hefur fengið nýja ásýnd og merki sem endurspeglar kröfur nútímans um sjálfvirkni, einfaldleika og stafrænar lausnir. Vefurinn verður stórefldur á þessu ári og þjónusta bætt, m.a. með rafrænum eyðublöðum sem fela í sér mikinn tímasparnað og einfaldari samskipti. Markmiðið er að einstaklingar og fyrirtæki geti nálgast opinbera þjónustu með einföldum hætti á einum stað og er fangað í nýju slagorði: Beint að efninu

    07. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áframhaldandi samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja um stafræna þróun

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær þátt í fundi norrænu ráðherranefndarinnar um stafræn málefni, sem haldinn var í Kaupmannahöfn.

    03. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fimmtán aðgerðir til að treysta búsetu og atvinnulíf á Flateyri

    Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipuðu þann 24. janúar sl. starfshóp til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðanna þann 14. janúar sl.

    02. mar. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Allir reikningar ríkisstofnana sendir rafrænt frá 1. maí

    Allir reikningar frá ríkissjóði og ríkisstofnunum verða frá og með 1. maí næstkomandi sendir rafrænt til viðskiptavina. Markmiðið er að lækka viðskiptakostnað allra aðila, nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins með auknu framboði stafrænnar þjónustu og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

    28. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Endurskoðuð eigandastefna fyrir fjármálafyrirtæki tekur gildi

    Endurskoðuð eigandastefna fyrir fjármálafyrirtæki sem ríkissjóður á eignarhluti í hefur tekið gildi. Helstu breytingar eigandastefnunnar felast í því að skýra áform ríkisstjórnar gagnvart einstökum félögum:

    28. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 25/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 27. september 2019 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. V20769 „Sjúkrabifreiðar 2018-2019“. Kærandi gerir þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð móttekinni hjá kærunefndinni 4. október 2019 kröfust varnaraðilar þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Kæranda var gefinn kostur á að gera athugasemdir við greinargerð varnaraðila en kærandi tilkynnti nefndinni 11. desember 2019 að hann hyggðist ekki gera frekari athugasemdir. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 11.…

    28. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 30/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. nóvember 2019 kærði Mertex UK Limited útboð Orku náttúrunnar ohf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. ONIK-2019-14 auðkennt „Casings and Liners“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi þær ákvarðanir varnaraðila að velja tilboð frá Vatni og veitum ehf. og að vísa frá tilboði kæranda í hinu kærða útboði „á þeim grundvelli að afhendingardagur væri ekki í samræmi við skilmála útboðsgagna“. Jafnframt er þess krafist að „lagt verði fyrir Orku náttúrunnar ohf.…

    28. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 28/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. nóvember 2019 kærði Vátryggingafélag Íslands hf. útboð Borgarbyggðar auðkennt „Vátryggingaútboð Borgarbyggðar 2020“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála „felli niður 3. tölul. 6.1. gr. útboðsskilmála“ í hinu kærða útboði, sem hljóðar svo: „Bjóðandi starfræki starfsstöð í Borgarbyggð með starfsmanni a.m.k. 16 tíma á viku. Starfsstöð í borgarbyggð skuli að lágmarki vera komin 6 mánuðum eftir að samningur er undirritaður við viðkomandi bjóðanda um verkið og skal hún starfrækt a.m.k. út samningstímann.“ Þess er jafnframt krafist að kærunefnd láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem krafist er málskostnaðar.

    28. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 19/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 5. júlí 2019 kærði K16 ehf. þá „ákvörðun framkvæmdasýslu ríkisins að ganga til samninga við Reginn vegna Vegagerðarinnar“. Kærandi gerir þá kröfu að felldur verði úr gildi „samningur sem Framkvæmdasýsla ríkisins gerði f.h. Vegagerðar vegna uppbyggingar á og leigu á lóð að Suðurhrauni í Hafnarfirði“. Ríkiskaupum, Vegagerðinni og Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað til sem varnaraðila) var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð móttekinni 7. ágúst 2019 kröfðust varnaraðilar þess að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá nefndinni eða hafnað. Reginn hf. var gefinn kostur á að tjá sig um kæruna sem hagsmunaaðili og skilaði félagið greinargerð til nefndarinnar 18. júlí 2019.…

    28. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Vegasamgöngur, Almannaöryggi, Innviðaráðuneytið

    Innviðaframkvæmdum flýtt – átakshópur skilar skýrslu og áætlun um 540 aðgerðir á vefsíðunni innvidir2020.is

    Tillögur átakshóps um úrbætur í innviðum fela m.a. í sér að:

    27. feb. 2020Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Nýr samningur um þjónustu Íslandsstofu

    Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og framkvæmdastjóri Íslandsstofu undirrituðu í dag nýjan þjónustusamning um starfsemi Íslandsstofu. Nýi samningurinn liggur til grundvallar starfsemi Íslandsstofu til þess að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins.

    26. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Drög að frumvarpi um varnarlínu milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi birt í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir í dag drög að frumvarpi um varnarlínu milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að hrinda í framkvæmd einni af megintillögum hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið.

    25. feb. 2020Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

    Mat FATF og skráning raunverulegra eigenda

    Vinnuhópur á vegum FATF telur framgang verkefna sem lúta að því að koma Íslandi af svokölluðum gráum lista FATF í samræmi við þær yfirlýsingar sem gefnar voru við síðustu athugun í október síðastliðnum.

    20. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytingar vegna lána sem tengjast erlendum gjaldmiðlum

    Undanfarin ár hafa lánveitendur hér á landi ekki boðið upp á lán tengd erlendum gjaldmiðlum. Lán í íslenskum krónum geta talist lán tengd erlendum gjaldmiðlum t.d. ef tekjur einstaklinga eru í erlendum gjaldmiðli eða ef þeir búa erlendis.

    18. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir

    Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stóðu fyrir málþinginu Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir 18. febrúar 2020.

    18. feb. 2020Úrskurðir, Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðaþjónusta, Úrskurðir ferðaþjónusta, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir

    Endurupptökubeiðni - Tímabundin svipting rekstrarleyfis – Rekstrarleyfi í flokki III

    Með bréfi dags. 15. júlí 2019 barst ráðuneytinu endurupptökubeiðni frá [X], lögmanni, fyrir hönd [Z ehf.] (hér eftir kærandi). Beiðnin snýr að ákvörðun ráðuneytisins dags. 12. júlí 2019, þar sem staðfest var ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir sýslumaður) dags. 13. maí 2019, um að svipta kæranda tímabundið leyfi til reksturs veitingastaðar í fl. III að [Þ].

    18. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 14/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. maí 2019 kæra Aflvélar ehf. útboð Ríkiskaupa f.h. Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20931 auðkennt „Öryggisvottaðir vegriðsendar fyrir Vegagerðina.“ Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Nortek ehf. í hinu kærða útboði og að lagt verði fyrir þá „að velja tilboð að nýju.“ Til vara gerir kærandi þá kröfu að hið kærða útboð verði ógilt og lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða út innkaupin að nýju. Þá er þess einnig krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar.…

    18. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 8/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 12. apríl 2019 kærir Tak – Malbik ehf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Efnisvinnsla á Vestursvæði 2019, Fossamelar“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála ógildi ákvörðun kærða um að velja tilboð Þróttar ehf. í hinu kærða útboði. Þá er þess krafist að kærunefnd „tjái sig um bótaskyldu kærða og grundvöll skaðabóta“. Auk þess er krafist málskostnaðar. Með bréfi 13. maí 2019 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir upplýsingum um það frá varnaraðila hvort hið kærða útboð hefði verið auglýst á EES- svæðinu og hvaða sjónarmið réðu því ef það var ekki gert. Svar barst frá varnaraðila 20. maí 2019.…

    17. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 20/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. júlí 2019 kærði Penninn ehf. örútboð Landspítala (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 11/2019 auðkennt „Húsgögn fyrir Skaftahlíð“ sem fram fór á grundvelli rammasamnings nr. 20563 RS – Húsgögn. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila „um að ganga til samninga við Sýrusson ehf. um kaup á skrifborðum í húsnæðið að Skaftahlíð 24, Reykjavík.“ Til vara að nefndin felldi úr gildi framangreinda ákvörðun og leggi fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið að nýju. Þá er þess krafist að nefndin láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Jafnframt er krafist málskostnaðar.

    17. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 23/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. júlí 2019 kærðu Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar ehf. og Sigurður Sverrir Jónsson útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20912 „Skólaakstur fyrir Hvalfjarðarsveit“. Kærendur krefjast þess að kærunefnd útboðsmála ógildi útboðið og geri varnaraðilum að auglýsa það að nýju. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kærendum. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum varnaraðila 6. og 29. ágúst 2019 kröfðust varnaraðilar þess að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Kærandi gerði athugasemdir við greinargerð varnaraðila 21. október 2019.…

    17. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 21/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. júlí 2019 kærir Jökulfell ehf. samningskaup RARIK auðkennd „Hitaveita RARIK í Hornafirði – Lagning stofnpípu frá Hoffelli og að kyndistöð á Höfn“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila RARIK (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að ganga til samningskaupa við Rósaberg ehf. um fyrrnefnt verk og að lagt verði fyrir RARIK að auglýsa verkið að nýju. Til vara er þess krafist að fyrrnefnd ákvörðun verði ógilt og að tilboð sem bárust utan tilboðsfrests verði metin ógild. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 18.…

    17. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 17/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 21. júní 2019 kærðu Þ.S. Verktakar ehf. útboð Vegagerðarinnar „Dettifossvegur (862-02) Hólmatungur – Ásheiði“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð G. Hjálmarssonar hf. í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Í báðum tilvikum er þess einnig krafist að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum varnaraðila 10. og 19. ágúst og 31. júlí 2019 krafðist varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. G. Hjálmarssyni hf.…

    17. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 2/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Stöðvunarkröfu hafnað. Útboðsskylda á evrópska efnahagssvæðinu. Uppsögn samnings. Kröfu kæranda um stöðvun útboðs varnaraðila um kaup á ýmsum tegundum glerja var hafnað þar sem þegar gerðum samningi hafði verið sagt upp og varnaraðili hugðist hefja nýtt innkaupaferli.

    14. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ársreikningar ríkisstofnana aðgengilegir á vefnum

    Aðgengi að ársreikningum ríkisstofnana hefur verið einfaldað með birtingu reikninganna á vef Fjársýslu ríkisins í samræmi við lög um opinber fjármál.

    12. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Efnahagsmál og opinber fjármál, Loftslagsmál

    Þróun umfangs aðgerða í þágu loftslagsmarkmiða stjórnvalda

    Á árunum 2015-2019 nam innheimta kolefnisgjalds 21,5 ma.kr. m.v. verðlag hvers árs. Á sama tímabili námu skattastyrkir 9,1 ma.kr. og fjárveitingar til málefna sem er m.a. ætlað að draga úr losun koltvísýrings 16 ma.kr.

    11. feb. 2020Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Málþing um mat á áhrifum lagasetningar

    Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa, þriðjudaginn 18. febrúar 2020, fyrir málþinginu Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir.

    11. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Loftslagsmót haldið í mars: Fyrirtæki og stofnanir ræða grænar lausnir

    mars næstkomandi hittast fyrirtæki og stofnanir á loftslagsmóti og ræða grænar lausnir í rekstri og starfsemi.

    11. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir

    Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna stjórnsýslukæru á synjun ríkisskattstjóra á að veita undanþágu frá skattskyldu vegna greiðslna til félagsins í tengslum við verkefni þess hér á landi.

    Hinn 2. desember 2019 barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra, fyrir hönd, dags. 27. nóvember 2019. Þess er krafist að synjun ríkisskattstjóra á að veita undanþágu frá skattskyldu vegna greiðslna til félagsins í tengslum við verkefni þess hér á landi verði felld úr gildi í heild eða að hluta. Þá er krafist málskostnaðar úr ríkissjóði.

    05. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 33/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. desember 2020 kærir Íslensk orkumiðlun ehf. útboð Veitna ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur – Vatns- og fráveitu sf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „VEIK-2019-11 Raforkukaup fyrir Veitur“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála stöðvi um stundarsakir samningsviðræður varnaraðila við Orku náttúrunnar ohf. vegna raforkukaupa í flokki C þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Þá er þess krafist að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda vegna raforkukaupa í flokki C í hinu kærða útboði, að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að ganga að tilboði Orku náttúrunnar ehf. vegna raforkukaupa í flokki C og að varnaraðilum verði gert að taka tilboði kæranda í sama flokki.…

    05. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 20/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 1. nóvember 2018 kærði Vistor hf. f.h. Octaparma AB rammasamningsútboð Ríkiskaupa f.h. Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, Sólvangs Hjúkrunarheimilis, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Heilbrigðisstofnunar Austurlands, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Áss í Hveragerði, Markar hjúkrunarheimilis og Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir sameiginlega vísað til sem varnaraðila). Útboðið var nr. 20727 og auðkennt „Ýmis lyf 43 fyrir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir; Storkuþáttur VIII, framleiddur með raðbrigða erfðatækni (human recombinant factor VIII) í ATC flokki B02BD02“.…

    05. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 23/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. nóvember 2018 kærði Icepharma hf. f.h. Bayer AG rammasamningsútboð Ríkiskaupa f.h. Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, Sólvangs Hjúkrunarheimilis, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Heilbrigðisstofnunar Austurlands, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Áss í Hveragerði, Markar hjúkrunarheimilis og Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir sameiginlega vísað til sem varnaraðila). Útboðið var nr. 20727 og auðkennt „Ýmis lyf 43 fyrir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir; Storkuþáttur VIII, framleiddur með raðbrigða erfðatækni (human recombinant factor VIII) í ATC flokki B02BD02“.…

    05. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðgerðir fyrirtækja ráða miklu um það hvenær Ísland fer út af gráa lista FATF

    Skortur á fullnægjandi skráningu svokallaðra raunverulegra eigenda í félögum var eitt af þeim atriðum sem orsökuðu það að Ísland var sett á gráa listann hjá alþjóðlegum hópi ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (Financial Action Task Force – FATF).

    04. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Atvinnuvegir

    Hagvöxtur gæti reynst 0,5 prósentum hærri en ella ef loðna finnst í febrúar

    Loðna hefur lengi verið einn af mikilvægustu fiskistofnum landsins. Árin 2016-18 nam útflutningsverðmæti loðnu að meðaltali um 18 ma.kr. Aðeins útflutningsverðmæti þorsks var hærra, eða 95 ma.kr. Árið 2019 var engin loðna veidd en útflutningsverðmæti birgða nam ríflega 8 ma.kr.

    03. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýir hvatar til að styrkja skattalegt umhverfi þriðja geirans verði lögfestir

    Útvíkka ætti skattalega hvata og lögfesta nýja þegar kemur að starfsemi þriðja geirans. Þetta eru niðurstöður starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um skattalegt umhverfi þessarar starfsemi, sem m.a. snýr að íþróttafélögum, björgunarsveitum, góðgerðarfélögum og mannúðarsamtökum. Markmið vinnunnar var að leggja fram tillögur til að styrkja skattalegt umhverfi þriðja geirans og hefur starfshópurinn skilað skýrslu til ráðherra.

    03. feb. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 29/2018. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 20. desember 2018 kærði Hraðbraut ehf. að þjónustusamningar mennta- og menningarmálaráðuneytisins (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) við Verslunarskóla Íslands ses., Tækniskólann ehf., og Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. hefðu ekki verið boðnir út í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærandi gerir þær kröfur að „ráðherra tryggi að útboð þessara þjónustusamninga fari fram sem fyrst“ í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup. Til vara er þess krafist „að ráðherra sæti fjárhagslegri ábyrgð.“ Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Kærandi krefst jafnframt málskostnaðar. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir.…

    31. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Lífskjör óvíða betri en hér á landi

    Að undanförnu hefur nokkuð borið á umræðu um verðlag á Íslandi. Verðlagið, líkt og í öðrum ríkjum, ræðst ekki síst af tekjum og tekjuskiptingu en landsframleiðsla á mann er óvíða hærri en hér á landi. Undanfarin ár hafa laun á Íslandi hækkað hratt og það ásamt styrkingu gengisins hefur drifið áfram hækkun verðlags

    31. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Andri Heiðar Kristinsson ráðinn stafrænn leiðtogi

    Andri Heiðar Kristinsson hefur verið ráðinn stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, en starfið var auglýst í nóvember síðastliðnum. Efling stafrænnar þjónustu er eitt af forgangsmálum stjórnvalda og hefur ríkisstjórnin ákveðið að stafræn samskipti verði meginsamskiptaleið almennings við hið opinbera fyrir lok ársins 2020.

    29. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Mannauðsmál ríkisins, Vinnumál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Margir nýta skattaafslátt vegna erlendra sérfræðinga

    Fjöldi fyrirtækja og stofnana nýtti sér á síðasta ári heimild til þess að sækja um frádrátt frá tekjuskatti fyrir erlenda sérfræðinga sem ráðnir eru til starfa hér á landi vegna sérþekkingar og reynslu. Nefnd sem tekur á móti umsóknum um frádráttinn fékk 113 slíkar umsóknir í fyrra og afgreiddi 111 þeirra. 87 umsóknir voru samþykktar, eða 77%.

    • First
    • Prev
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband