Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 3886
    Raða eftir:
    27. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Kosningar

    Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2020

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2020.

    27. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Opinber innkaup, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríkið keypti vörur og þjónustu fyrir 117 milljarða 2018: Stöðumat um opinber innkaup í samráðsgátt

    Ríkið keypti vörur og þjónustu fyrir um 117 milljarða króna 2018. Þegar kaup vegna þjónustusamninga og mannvirkjagerðar eru tekin með var heildarumfangið 202 milljarðar króna. Nú gefst almenningi kostur á að senda inn umsögn um stöðumat um opinber innkaup í samráðsgátt stjórnvalda.

    24. jan. 2020Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Vinnuhópur um tillögur nefndar um saksókn skattalagabrota

    Nefnd um rannsókn og saksókn skattalagabrota, sem skipuð var sl. vor hefur skilað frá sér skýrslu. Nefndinni var falið að greina þær kröfur sem leiða af dómum mannréttindadómstóls Evrópu í tengslum við rannsókn og saksókn skattalagabrota og móta afstöðu til þeirra breytinga sem þarf að ráðast í til að mæta þeim kröfum.

    23. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Svigrúm fjármálafyrirtækja aukið

    Að undanförnu hafa stjórnvöld undirbúið og hrint í framkvæmd ýmsum breytingum sem stuðla að hagkvæmari rekstri eða fjármögnun lánastofnana og auðvelda þeim að styðja við atvinnulífið.

    18. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 26/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. október 2019 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. örútboð Framkvæmdasýslu ríkisins á búnaði fyrir hjúkrunarheimili á Sléttuvegi í Reykjavík, sem efnt var til á grundvelli rammasamnings nr. 20674. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 10. október 2019 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Jafnframt er gerð krafa um að kæruefnd láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Kærandi skilaði viðbótarupplýsingum með kæru 22. október 2019. Varnaraðila var kynnt kæran og þær viðbótarupplýsingar sem fylgdu með henni og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð móttekinni 24. október 2019 krafðist hann þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Með tölvubréfi 2.…

    18. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 22/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. júlí 2019 kærði Orkuvirki ehf. útboð Landsnets hf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Substation Hnappavellir – HNA-40 New 132 kV substation EPC“. Kærandi krefst þess að viðurkennt verði að kærandi teljist „lægstbjóðandi í útboðinu og Landsneti hafi á grundvelli útboðsgagna borið að semja við“ fyrirtækið. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 29. júlí 2019 krafðist hann þess að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað, auk málskostnaðar. Með bréfi 12. ágúst 2019 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir frekari upplýsingum og gögnum frá varnaraðila sem bárust 16. ágúst 2019, auk frekari skýringa 23. ágúst 2019. RST net ehf. skilaði greinargerð 23.…

    18. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 18/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. júní 2019 kærði Tyrfingsson ehf. útboð Reykjavíkurborgar f.h. Strætó bs. (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 14403 auðkennt „Purchase of Hydrogen Buses.“ Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila 5. júní 2019 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda samkvæmt 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum 2. júlí og 15. ágúst 2019 krafðist hann þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Kærandi skilaði andsvörum 16. september 2019.…

    18. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 24/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. ágúst 2019 kærði Almenna umhverfisþjónustan ehf. innkaup Grundafjarðarbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) á verki auðkennt „Steypt gata við G. Run – milli Nesvegar og Sólvalla“. Skilja verður kæru svo að þess sé krafist að sú ákvörðun varnaraðila að ganga til samninga við Þ.G. Þorkelsson verktaka ehf. um verkið sé ógild og að samið verði við kæranda. Auk þess er krafist málskostnaðar. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefin kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum 13. og 29. ágúst 2019 krafðist varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Kærandi skilaði andsvörum móteknum 24. september 2019. Þ.G. Þorkelsson verktaki ehf. hefur ekki látið málið til sín taka. Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 15.…

    18. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

    200 milljónir í aukin verkefni stofnana á sviði peningaþvættis, skattrannsókna og skatteftirlits

    Fjármagn verður aukið um 200 milljónir króna á þessu ári vegna aukinna verkefna stofnana ríkisins sem tengjast eftirliti og vörnum gegn peningaþvætti, skattrannsóknum og skatteftirliti, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 19. nóvember 2019 um aðgerðir til að auka traust á íslensku atvinnulífi.

    17. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Almannaöryggi, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Starfshópur meti fjárveitingar til ofanflóðasjóðs

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að skipa starfshóp fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem fer yfir framkvæmdaáætlun ofanflóðasjóðs og leggur til heildstætt mat á framkvæmdir við ofanflóðavarnir með áherslu á tímabil næstu fjármálaáætlunar fyrir árin 2021-2025 sem kynnt verður í vor.

    14. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vinnumál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fundur um einföldun rekstrarumhverfis fyrirtækja með snjöllum lausnum

    Hvernig má einfalda rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja? Nordic Smart Government, sem er norrænt samstarfsverkefni, stendur fimmtudaginn 16. janúar fyrir fundi á Grand hótel um leiðir til að gera gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að miðla og sækja viðskipta- og bókhaldsgögn á sjálfvirkan, snjallan, öruggan og fljótlegan hátt.

    14. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Vinnumál, Efnahagsmál og opinber fjármál, Opinber innkaup

    Ríkisstjórnin styrkir baráttuna gegn félagslegum undirboðumog brotum á vinnumarkaði

    Ákvæði um keðjuábyrgð sem sporna á við mögulegri misnotkun á vinnuafli hér á landi hefur verið innleitt í lög um opinber innkaup, en það er þáttur í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn félagslegum undirboðum og brotum á vinnumarkaði.

    10. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 2/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 1. mars 2019 kærði Íslensk orkumiðlun ehf. kaup RARIK ohf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) á raforku frá Orkusölunni ehf. til að mæta dreifitapi í dreifikerfi raforku. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að framkvæma kaup á umræddri raforku án útboðs, að kærunefnd lýsi samninga milli varnaraðila og Orkusölunnar ehf. um kaupin óvirka og leggi fyrir varnaraðila að bjóða út kaup á raforku til að mæta tapi í dreifikerfinu. Þá er krafist málskostnaðar. Varnaraðila og Orkusölunni ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 6. maí 2019 krafðist varnaraðili aðallega frávísunar á kröfum kæranda en til vara að þeim yrði hafnað. Kærandi skilaði andsvörum 11. júní 2019.…

    06. jan. 2020Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Opinber innkaup

    Keðjuábyrgð - leiðbeiningar

    Með ákvæði um keðjuábyrgð, 88. gr. a. í lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016 er aðalverktaka gert skylt að tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn hans, undirverktaka eða starfsmannaleigna, sem koma að framkvæmd samnings fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi. ​

    04. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 32/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 27. nóvember 2019 kærir Reykjafell hf. samningsgerð Reykjavíkurborgar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) við Smith & Norland hf. um vélbúnað og hugbúnað auk þjónustusamnings vegna uppfærslu á miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík og útboð varnaraðila nr. 14356 auðkennt „Rammasamningur um stýribúnað umferðarljósa“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Þá er þess jafnframt krafist að kærunefnd útboðsmála „lýsi óvirkan, með eða án annarra viðurlaga, samning milli varnaraðila og Smith & Norland/Siemens um vélbúnað og hugbúnað auk þjónustusamnings vegna uppfærslu á miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík“.…

    04. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 30/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. nóvember 2019 kærir Mertex UK Limited útboð Orku nátúrunnar ohf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. ONIK-2019-14 auðkennt „ Casings and Liners“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála „stöðvi þegar í stað innkaupaferli og fyrirhugaða samningsgerð Orku náttúrunnar ohf. við Vatn og veitur ehf.“ Þess er einnig krafist að felldar verði úr gildi þær ákvarðanir varnaraðila að velja tilboð frá Vatni og veitum ehf. og að vísa frá tilboði kæranda í hinu kærða útboði „á þeim grundvelli að afhendingardagur væri ekki í samræmi við skilmála útboðsgagna“. Jafnframt er þess krafist að „lagt verði fyrir Orku náttúrunnar ohf.…

    04. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 29/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. nóvember 2019 kærir Ridango AS útboð Strætó bs. nr. 14580 auðkennt „Rafrænt greiðslukerfi fyrir Strætó bs“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun Strætó bs. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) frá 28. október 2019 um að velja tilboð Fara AS í hinu kærða útboði. Þá er þess krafist að varnaraðila verði gert að velja tilboð kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar úr hendi varnaraðila. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar um stundarsakir. Varnaraðili krefst þess að stöðvunarkröfu kæranda verði hafnað, en athugasemdir hans bárust nefndinni 26. nóvember sl. Jafnframt bárust athugasemdir frá Fara AS hinn 5. desember sl.…

    04. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 28/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. nóvember 2019 kærir Vátryggingafélag Íslands hf. útboð Borgarbyggðar auðkennt „Vátryggingaútboð Borgarbyggðar 2020“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála „felli niður 3. tölul. 6.1. gr. útboðsskilmála“ í hinu kærða útboði, sem hljóðar svo: „Bjóðandi starfræki starfsstöð í Borgarbyggð með starfsmanni a.m.k. 16 tíma á viku. Starfsstöð í borgarbyggð skuli að lágmarki vera komin 6 mánuðum eftir að samningur er undirritaður við viðkomandi bjóðanda um verkið og skal hún starfrækt a.m.k.…

    04. jan. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 27/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála

    Með kæru 28. október 2019 kærði Puhastusekspert útboð sveitarfélagsins Árborgar er nefnist „Ræsting og hreingerning stofnana Árborgar“. Kærandi krefst þess að hið kærða útboð verði ógilt og að sveitarfélaginu Árborg (hér eftir vísað til sem varnaraðila) verði gert að auglýsa það að á nýjan leik. Þá er gerð krafa um að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar. Af hálfu varnaraðila er þess krafist að kröfunni verði hafnað.

    30. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Stefna í lánamálum ríkisins 2020-2024

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út stefnu í lánamálum ríkisins 2020-2024. Stefnan er sett fram árlega á grundvelli fjármálaáætlunar í samræmi við 38. gr. laga nr.123/2015 um opinber fjármál. Stefnan gildir til 5 ára og byggir hún á fyrri stefnu sem gefin var út í desember 2018.

    30. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattabreytingar á árinu 2020

    Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar er snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Áhrif þeirra eru metin til samtals 9,5 ma.kr. lækkunar. Hér verður fjallað um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis.

    20. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Reiknigrundvöllur við tryggingafræðilega athugun hjá lífeyrissjóðum

    Í 14. gr. reglugerðar um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 391/1998, er kveðið á um að við mat á dánar- og lífslíkum skuli notast við nýjustu dánar- og eftirlifendatöflur, sem útgefnar eru af ráðherra að fengnum tillögum Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga.

    20. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Starf og hlutverk fjármálastöðugleikaráðs breytist með sameiningu SÍ og FME

    Fjármálastöðugleikaráð hélt sinn fjórða fund á árinu 2019 þriðjudaginn 17. desember. Fundurinn var síðasti fundur fjármálastöðugleikaráðs í sinni núverandi mynd, en frá áramótum breytist reglulegt starf og hlutverk fjármálastöðugleikaráðs við sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

    20. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla AGS um Ísland: Skjót hagstjórnarviðbrögð styðja við gang hagkerfisins

    Sterkar stoðir hagkerfisins og skjót hagstjórnarviðbrögð hafa stutt gang íslenska hagkerfisins í kjölfar efnahagslegra áfalla. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenskt efnahagslíf sem birt var í gær.

    19. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytingar á staðgreiðslu um áramót

    Nýlega samþykkti Alþingi umfangsmiklar breytingar á tekjuskatti einstaklinga. Eru þær breytingar afrakstur vinnu um heildarendarskoðun tekjuskattskerfisins til lækkunar á skattbyrði. Ábati breytinganna skilar sér til allra tekjutíunda en sérstaklega til lág- og millitekjuhópa.

    18. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Gunnar Jakobsson tilnefndur í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tilnefnt Gunnar Jakobsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Forsætisráðherra skipar í embættið.

    17. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Opinber innkaup, Rekstur og eignir ríkisins

    Afgreiðsla mála hjá kærunefnd útboðsmála flyst til yfirskattanefndar

    Afgreiðsla mála hjá kærunefnd útboðsmála flyst 1. janúar 2020 úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu til yfirskattanefndar.

    17. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Samgöngur og fjarskipti, Efnahagsmál og opinber fjármál, Umhverfi og náttúruvernd

    Bílar ríkisins verða umhverfisvænir

    Allir bílar ríkisins verða vistvænir, nema öryggis- eða notkunarkröfur krefjist annars, samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar. Ríkið rekur nú um 800 bifreiðar af öllum stærðum og gerðum.

    16. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Yfir hundrað sóttu kynningarfund um útboð á hönnun og þróun stafrænnar þjónustu

    Mikill áhugi var á kynningu útboðs um hönnun og þróun stafrænnar þjónustu hins opinbera sem fram fór í dag. Stafrænt Ísland, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, stóð fyrir kynningunni. Um 115 aðilar frá um 40 fyrirtækjum mættu á fundinn auk þess sem um 20 aðilar fylgdust með streymi á YouTube.

    16. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Upplifun almennings á þjónustu stofnana könnuð

    Á næstu vikum verður gerð þjónustukönnun til að meta upplifun almennings á þjónustu opinberra stofnana og tengist hún þeim markmiðum sem ríkisstjórnin kynnti í stjórnarsáttmála sínum. Er þetta í fyrsta sinn sem gerð er samræmd þjónustukönnun fyrir stofnanir ríkisins, en einstakar stofnanir hafa þó gert viðlíka kannanir um þarfir og viðhorf viðskiptavina sinna.

    16. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Samkomulag um skipulag, þróun og hagnýtingu lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar

    Samkomulag, sem er nánari útfærsla viljayfirlýsingar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar var undirritað í dag.

    16. des. 2019Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Úttekt á skattalegu umhverfi til að styrkja þróun og nýsköpun

    desember 2019 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Úttekt á skattalegu umhverfi til að styrkja þróun og nýsköpun Úttekt á skattalegu umhverfi til að styrkja þróun og nýsköpun

    14. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Líf og heilsa, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hagstæð aldurssamsetning skýrir lægri útgjöld til heilbrigðismála

    Framlög til heilbrigðismála hafa hækkað verulega á Íslandi síðustu ár. Frá því að núverandi ríkisstjórn tók við hafa þau fengið meira vægi og vaxið um rúmlega 28% frá árinu 2017. Íslenska þjóðin er ung í alþjóðlegum samanburði, sem hefur í för með sér að útgjaldabyrði vegna heilbrigðismála er minni hér á landi en í nágrannalöndunum.

    13. des. 2019Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Átakshópur um úrbætur á innviðum í framhaldi af fárviðrinu 10. og 11. desember

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, í framhaldi af fárviðrinu sem gekk yfir landið 10. og 11. desember, skipan starfshóps fimm ráðuneyta sem falið er að meta hvaða aðgerðir séu færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum til að tryggja að slíkir grunninnviðir séu sem best í stakk búnir til að takast á við ofsaveður eða aðrar náttúruhamfarir.

    12. des. 2019Annað, Moody‘s, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Moody's (Issuer In-Depth) í tengslum við lánhæfiseinkunn ríkissjóðs í nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. desember 2019 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla Moody's (Issuer In-Depth) í tengslum við lánhæfiseinkunn ríkissjóðs í nóvember 2019 Í tengslum við lánhæfiseinkunn ríkissjóðs í nóvember síðastliðnum hefur Moody's Investors Service birt svo kallaða Issuer In-Depth skýrslu

    12. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Neytendamál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Útboð um eflingu stafrænnar þjónustu fyrir allt að 18 teymi

    Stafrænt Ísland, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins, hyggst standa fyrir útboði sem skila á rammasamningum fyrir allt að 18 teymi frá öflugum fyrirtækjum. Markmiðið er að teymin vinni með Stafrænu Íslandi að því að bæta þjónustu á island.is fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Kynningarfundur fyrir áhugasöm fyrirtæki verður haldinn mánudaginn 16. desember.

    11. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skatturinn tekur til starfa um áramót: Stofnunum fækkar

    Stofnunum á sviði skatta og tolla fækkar um eina um áramót, en Alþingi samþykkti í dag lög sem greiða fyrir sameiningu embætta ríkisskattstjóra og tollstjóra. Sameinuð stofnun mun heita Skatturinn og verða öflug og leiðandi upplýsingastofnun á sviði skatta- og tollamála.

    11. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skattafrétt mest lesna frétt stjórnarráðsvefjarins frá upphafi

    Engin frétt á vef Stjórnarráðsins hefur verið lesin jafnoft og frétt um skattalækkun sem fjármála- og efnahagsráðuneytið birti í síðustu viku.

    05. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bjarni Benediktsson hlaut hvatningarverðlaun Samtóns

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hlaut í dag hvatningarverðlaun Samtóns, samtaka rétthafa íslenskrar tónlistar. Verðlaunin hlaut hann fyrir að vera fyrsti ráðherra heims sem viðurkennir höfundarrétt til jafns við annan eignarrétt.

    04. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Veruleg lækkun tekjuskatts

    Tekjuskattur lækkar verulega með nýsamþykktum lögum Alþingis um tekjuskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Lækkunin verður í tveimur áföngum, 1. janúar 2020 og 1. janúar 2021.

    04. des. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Guðrún Ögmundsdóttir skipuð skrifstofustjóri skrifstofu rekstrar og innri þjónustu

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Guðrúnu Ögmundsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu í fjármála og efnahagsráðuneytinu til fimm ára, frá 2. desember 2019.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2019

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um tekjur og yfirlit yfir stöðu málefnasviða og málaflokka fyrir fyrstu níu mánuði ársins í samanburði við fjárheimildir. Byggt er á mánaðaryfirliti Fjársýslu ríkisins.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Bylting í aðgengi fólks að stafrænni þjónustu

    Með 350 milljóna viðbótarframlagi á næsta ári, sem samþykkt var í fjárlögum í gær, verður stafræn þjónusta hins opinbera stóraukin. Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að stafræn samskipti verði meginsamskiptaleið við hið opinbera fyrir lok ársins 2020.

    28. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fjárlög fyrir 2020 samþykkt: Sterk staða ríkissjóðs og öflug opinber fjárfesting

    Fjárlög fyrir árið 2020 voru samþykkt á Alþingi í gær. Sterk staða ríkissjóðs vegna ábyrgrar fjármálastjórnar undanfarinna ára gefur stjórnvöldum færi á að styðja við hagkerfið nú þegar það gengur í gegnum skammvinna niðursveiflu.

    27. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Utanríkismál

    Stuðlað að stafrænum sam- og viðskiptum yfir landamæri

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, stýrði í dag fundi norrænu ráðherranefndarinnar um stafræn málefni, sem haldinn var í Riga í Lettlandi. Fundinn sóttu ráðherrar og sendinefndir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

    26. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Efnahagsmál og opinber fjármál, Samgöngur og fjarskipti

    Frumvarp fjármálaráðherra um ívilnanir vegna vistvænna samgangna samþykkt í ríkisstjórn

    Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um ívilnanir vegna vistvænna ökutækja, rafmagnsreiðhjóla og annarra reiðhjóla var samþykkt í ríkisstjórn í dag. Umhverfissjónarmið voru höfð að leiðarljósi við gerð frumvarpsins sem hefur að meginmarkmiði að greiða fyrir orkuskiptum og vistvænum samgöngum með tilheyrandi samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.

    22. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fitch

    Fitch Ratings staðfestir óbreytta A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Fitch Ratings birti í dag mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunnir eru óbreyttar; langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt standa í A og skammtímaeinkunnir eru óbreyttar í F1+. Horfur eru stöðugar.

    15. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðgerðir til að koma í veg fyrir skattundanskot og tryggja virkt skattaeftirlit

    Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag í ríkisstjórn helstu atriði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið að undanfarið með það að markmiði að koma í veg fyrir skattundanskot og tryggja virkt skattaeftirlit og eftirfylgni skattaframkvæmdar. Enn fremur gerði ráðherra grein fyrir áformum um hert skatteftirlit á komandi fjárlagaári.

    14. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 26/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. október 2019 kærir Öryggismiðstöð Íslands hf. örútboð Ríkiskaupa f.h. Framkvæmdasýslu ríkisins (hér eftir vísað sameiginlega til sem varnaraðila) á búnaði fyrir hjúkrunarheimili á Sléttuvegi í Reykjavík, sem efnt var til á grundvelli rammasamnings nr. 20674. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi um stundarsakir innkaupaferli varnaraðila þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Þess er einnig krafist að nefndin felli úr gildi ákvörðun kaupanda 11. október 2019 um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Jafnframt er gerð krafa um að kæruefnd láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila.…

    14. nóv. 2019Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

    Mál nr. 15/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Með kæru 12. júní 2019 kærði Mannverk ehf. útboð Mosfellsbæjar auðkennt sem „Helgafellsskóli nýbygging, 2.-3. áfangi“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Mosfellsbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um að velja tilboð Flotgólfa ehf. og Eignarhaldsfélagsins Á.D. ehf. í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Greinargerðir varnaraðila bárust kærunefnd útboðsmála 21. júní og 30. júlí 2019 þar sem þess var krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Fyrirtækin Flotgólf ehf. og Eignarhaldsfélagið Á.D. ehf.…

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband