Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 3869
    Raða eftir:
    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    841/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru vegna afgreiðslu utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum var vísað frá þar sem umbeðin gögn voru ekki fyrirliggjandi í ráðuneytinu.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    840/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda, blaðamanns, um aðgang að gögnum með upplýsingum um hvaða fyrirtæki hafi gripið til hópuppsagna í maí 2019. Synjun Vinnumálastofnunar var byggð á því að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að upplýsingunum vegna 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál óskaði eftir afstöðu tveggja fyrirtækja sem höfðu tilkynnt hópuppsögn til Vinnumálastofnunar. Annað þeirra veitti samþykki fyrir því að kærandi fengi aðgang að upplýsingunum og var synjun Vinnumálastofnunar um aðgang að tilkynningu þess fyrirtækis felld úr gildi.…

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    839/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um ákvörðun Grindavíkurbæjar á beiðni um aðgang að sundurliðuðum útreikningum álagðra fasteignagjalda vegna tiltekinnar fasteignar. Sveitarfélagið hélt því fram að álagningarseðlar fasteignagjalda væru ekki vistaðir sjálfstætt heldur þyrfti að kalla þá fram með sérstakri aðgerð, þannig væru þeir ekki fyrirliggjandi hjá sveitarfélaginu. Úrskurðarnefnd taldi ekki ástæðu til að draga þær skýringar í efa og var kæru því vísað frá.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    838/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kæru vegna afgreiðslu Landspítala-Háskólasjúkrahúss á gagnabeiðni var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Landspítali-Háskólasjúkrahús hélt því fram að kærandi hefði fengið afhent öll fyrirliggjandi gögn er varði gagnabeiðni kæranda og hafði úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki forsendur til að rengja þá staðhæfingu.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    837/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Samtök iðnaðarins kærðu ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun beiðni um aðgang að samningi Tryggingastofnunar við Veðurstofu Íslands um aðstöðu fyrir miðlægan tölvubúnað Tryggingastofnunar í tölvusal Veðurstofunnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir samninginn og taldi ekki að ákvæði upplýsingalaga stæðu aðgangi í vegi. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum með vísan til meginreglu 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    836/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærð var ákvörðun Fjallabyggðar um synjun beiðni um aðgang að gögnum vegna verðkönnunar Fjallabyggðar. Leyst var úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga en kærandi var meðal tilboðsgjafa. Talið var að hagsmunir kæranda til aðgangs að gögnunum vægju þyngra en hagsmunir annarra tilboðsgjafa af því að upplýsingarnar í gögnunum færu leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna. Var því synjun Fjallabyggðar felld úr gildi það lagt fyrir sveitarfélagið að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra flutti ávarp á tíundu Sjávarútvegsráðstefnunni

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fjallaði um íslenskan sjávarútveg í samhengi við íslenskt samfélag og íslenska sjálfsmynd í ávarpi sínu á Sjávarútvegsráðstefnunni. Hún rifjaði upp sögu sjávarútvegs hér á landi og þær miklu framfarir sem hafa orðið, ekki síst á undanförnum árum með tilkomu hátæknilausna í greininni.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    835/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um það úr hvaða háskólum verkfræðingar, arkitektar, landslagsarkitektar, tæknifræðingar og byggingafræðingar, sem séu á listum sem birtir eru á vefsíðum ráðuneytisins og fengið hafa leyfi til að nota viðkomandi starfsheiti, luku námi sínu, þ.e. nafn háskóla og námsland, auk upplýsinga um námsgráðu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ráðuneytinu að um væri að upplýsingar um einkahagsmuni einstaklinga sem óheimilt sé að veita aðgang, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Þá féllst nefndin ekki á að umfang beiðninnar væri slíkt að ráðuneytinu væri heimilt að synja beiðninni með vísan til 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga.…

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    834/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Deilt var um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að upplýsingum um kostnað vegna öryggisgæslu við íslensk sendiráð. Fyrir lá að ráðuneytið hafði útbúið skjal með umbeðnum upplýsingum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með utanríkisráðuneytinu að um væri að ræða upplýsingar um öryggi ríkisins sem mikilvægir almannhagsmunir krefjast að fari leynt, sbr. 1. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Var því synjun ráðuneytisins staðfest.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    833/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Kærandi óskaði eftir gögnum frá Reykjavíkurborg varðandi tiltekna framkvæmd annars vegar og samskipti kæranda við sveitarfélagið hins vegar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þá fullyrðingu Reykjavíkurborgar að aðgangur hafi verið veittur að öllum fyrirliggjandi gögnum er varði framkvæmdina og var því kæru vísað frá að þessu leyti. Beiðni kæranda um gögn varðandi samskipti kæranda og Reykjavíkurborgar var hins vegar vísað aftur til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar þar sem skorta þótti á að kæranda hafi verið leiðbeint með afmörkun beiðninnar.

    07. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    832/2019. Úrskurður frá 28. október 2019

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum sem höfðu verið afmáðar úr samningum sem utanríkisráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun Íslands gerðu við Íslenskar orkurannsóknir. Utanríkisráðuneytið synjaði kæranda um aðgang að upplýsingunum með vísan til 2. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun utanríkisráðuneytisins að hluta, með vísan til 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, en felldi úr gildi synjun ráðuneytisins að öðru leyti.

    06. nóv. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Börn buðu ráðherrum á barnaþing í Alþingishúsinu í dag

    Börn, sem verða fulltrúar á barnaþingi 21. nóvember nk., afhentu ráðherrum ríkisstjórnarinnar og forseta Alþingis boðsbréf á barnaþingið í dag í Alþingishúsinu.

    06. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Þjóðlendur

    Forsætisráðherra tekur formlega við námusvæðinu í Bolaöldum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók formlega við námusvæðinu í Bolaöldum í heimsókn í þjóðlenduna Ölfusafrétt og Selvogsafrétt í sveitarfélaginu Ölfusi í morgun.

    05. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Forsætisráðherra afhenti Finni Dellsén Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti Finni Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir árið 2019 á Rannsóknarþingi RANNÍS í dag.

    05. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara afgreitt úr ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til laga um vernd uppljóstrara verði lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp.

    04. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fyrsti fundur nýs Þjóðhagsráðs haldinn í dag

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði í dag fyrsta fundi nýs Þjóðhagsráðs í dag. Hagstjórn, velsældarmælikvarðar, greiðsluþátttaka sjúklinga og grænir skattar voru til umræðu á fundinum.

    01. nóv. 2019Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra afhenti jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs í gær.

    01. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir þáttaröðina „Hvað getum við gert?”

    Ríkisstjórnin mun styrkja þáttaröðina „Hvað getum við gert?“ um 10 millj. kr. af ráðstöfunarfé sínu. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    30. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Formennska Íslands 2019, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra situr Norðurlandaráðsþing

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sótti Norðurlandaráðsþing sem var sett í Stokkhólmi í gær. Forsætisráðherra tók þar þátt í störfum þingsins og í þemaumræðu forsætisráðherra fjallaði hún um lýðræðislegt hlutverk grasrótarhreyfinga, stjórnmálaflokka og frjálsra félagasamtaka í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

    30. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Formennska Íslands 2019, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra situr Norðurlandaráðsþing

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sótti Norðurlandaráðsþing sem var sett í Stokkhólmi í gær. Forsætisráðherra tók þar þátt í störfum þingsins og í þemaumræðu forsætisráðherra fjallaði hún um lýðræðislegt hlutverk grasrótarhreyfinga, stjórnmálaflokka og frjálsra félagasamtaka í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

    28. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Loftslagsmál

    Forsætisráðherra sækir Norðurlandaráðsþing og fundar með norrænum forsætisráðherrum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, situr setningu Norðurlandaráðsþings í Stokkhólmi á morgun en þingið stendur yfir dagana 29. til 31. október. Þar mun forsætisráðherra taka þátt í störfum þingsins og í sérstakri þemaumræðu norrænna forsætisráðherra. Einnig verður forsætisráðherra viðstödd afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs annað kvöld í Stokkhólmi.

    25. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umsækjendur um stöðu varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika

    Forsætisráðuneytinu hafa borist 10 umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika sem auglýst var laust til umsóknar 3. október sl. en umsóknarfrestur rann út á miðnætti 24. sama mánaðar.

    25. okt. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar starfshópa á grunni laga um kynrænt sjálfræði

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað tvo starfshópa á grunni laga um kynrænt sjálfræði. Hóparnir eru skipaðir í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögunum og munu fjalla um tiltekin viðfangsefni og skila tillögum sínum innan árs.

    25. okt. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Forsætisráðuneytið

    Íslenskt samfélag 2035–2040 Þróun atvinnulífs,umhverfis, byggðar og lýðfræðilegra þátta

    Framtíðarnefnd forsætisráðherra skilaði í nóveber 2019 skýrslunni Íslenskt samfélag 2035–2040 Þróun atvinnulífs,umhverfis, byggðar og lýðfræðilegra þátta

    25. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Ríkisstjórnin veitir styrk vegna afmælishátíðar og alþjóðlegra menningarverðlauna til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu annars vegar fimm milljónir kr. til afmælishátíðar til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og hins vegar fimm milljónir kr. til alþjóðlegra menningarverðlauna Vigdísar.

    24. okt. 2019Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ráðherrar funduðu í ráðherranefnd um jafnréttismál

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, boðaði í dag til fundar í ráðherranefnd um jafnréttismál.

    22. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Almannaöryggi

    Ríkisstjórnin samþykkir að veita sveitarfélaginu Hornafirði 33,2 m. kr. vegna uppbyggingar í kjölfar flóða á Suðaustur- og Austurlandi árið 2017

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra, að veita sveitarfélaginu Hornafirði fjárstyrk til að takast á við óvænt útgjöld og brýn verkefni við endurreisn í kjölfar úrkomuveðurs, vatnavaxta og flóða sem urðu á Suðaustur- og Austurlandi í lok september og byrjun október 2017.

    22. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Lög og réttur

    Heildarendurskoðun á löggjöf um jarðir og fasteignir til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi

    Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um heildarendurskoðun á löggjöf um jarðir og fasteignir sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur beitt sér fyrir og hefur það markmið að styrkja lagaumhverfi um eignarhald og nýtingu jarða og fasteigna, m.a. að auka yfirsýn stjórnvalda í málaflokknum.

    17. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra flutti ávarp á 20 ára afmæli Samtaka atvinnulífsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp á ársfundi Samtaka atvinnulífsins þar sem jafnframt var fagnað 20 ára afmæli samtakanna.

    11. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Alþjóðleg skákhátíð á Selfossi styrkt

    Ákveðið var á ríkistjórnarfundi í morgun að veita 4 milljóna kr. styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til alþjóðlegrar skákhátíðar og skákmóts á Selfoss sem fram fer dagana 19.- 29. nóvember nk.

    11. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Framtíðarsýn um arfleifð Jóns Sigurðssonar - efling starfsemi á Hrafnseyri og samhæfing stjórnsýslu

    Nefnd Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hefur skilað skýrslu um arfleifð Jóns Sigurðssonar. Þar er sett fram framtíðarsýn um lifandi, nærtæka og tímalausa arfleifð.

    11. okt. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundar með Madeleine Rees

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fund með Madeleine Rees, framkvæmdastjóra Alþjóðasambands kvenna fyrir friði og frelsi (WILPF), í morgun.

    10. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd, Formennska Íslands 2019

    Forsætisráðherra flutti ávarp á alþjóðaþingi Hringborðs norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á alþjóðaþingi Hringborðs norðurslóða, Arctic Circle, í Hörpu í dag.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    831/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kæru var vísað frá þar sem afgreiðsla embættis ríkisendurskoðanda á beiðni um aðgang að gögnum er ekki kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sbr. 4. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    830/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kæru var vísað frá þar sem kærði var ekki talinn heyra undir upplýsingalög nr. 140/2012.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    829/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kæru var vísað frá þar sem kærði var ekki talinn heyra undir upplýsingalög nr. 140/2012.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    828/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Í málinu var deilt um rétt kæranda, blaðamanns, til aðgangs að sérfræðiálitum sem veitt voru í tengslum við málarekstur ríkisins fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Úrskurðarnefnd féllst á það með embætti ríkislögmanns að embættinu væri heimilt að takmarka rétt kæranda til aðgangs að gögnunum með vísan til 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga en samkvæmt ákvæðinu nær réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til bréfaskipta við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Taldi nefndin embætti ríkislögmanns vera sérfróðan aðila í skilningi ákvæðisins auk þess sem gögn sem stöfuðu frá öðrum sérfróðum aðilum yrðu felld undir ákvæðið. Var því ákvörðun embættisins staðfest.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    827/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um þá ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins að synja beiðni kæranda um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á ákvæði 3. mgr. 15. gr., sbr. 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að greinargerðin hefði verið send ráðuneytinu á grundvelli lagaskyldu og að hún væri í drögum og athugun málsins væri ekki lokið. Væri greinargerðin því undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    826/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um þá ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins að synja beiðni kæranda um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins var byggð á ákvæði 3. mgr. 15. gr., sbr. 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Úrskurðarnefnd taldi ákvæðið fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu sem takmarkaði upplýsingarétt almennings, sbr. 3. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Nefndin féllst á það með ráðuneytinu að greinargerðin hefði verið send ráðuneytinu á grundvelli lagaskyldu og að hún væri í drögum og athugun málsins væri ekki lokið. Væri greinargerðin því undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Var synjun ráðuneytisins því staðfest.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    825/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Kærendur óskuðu eftir því að utanríkisráðuneytið veitti þeim aðgang að öllum gögnum borgaraþjónustumáls. Ráðuneytið synjaði beiðninni að hluta á þeim grundvelli að annars vegar væri um að ræða upplýsingar um viðkvæma einkahagsmuni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, en hins vegar að heimilt væri að takmarka aðgang kærenda að upplýsingum um samskipti við önnur ríki og fjölþjóðastofnanir, sbr. 2. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að um upplýsingarétt kærenda færi eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á röksemdir ráðuneytisins varðandi hluta umbeðinna gagna en um önnur vísaði nefndin til þess að ekki væri um viðkvæma einkahagsmuni að ræða eða mikilvægir almannahagsmunir stæðu ekki til beitingar 2. tölul. 10. gr., sbr. 3. mgr. 14.…

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    824/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Í málinu var deilt um þá ákvörðun Menntamálastofnunar að synja beiðni kæranda um aðgang samræmdum könnunarprófum sem lögð voru fyrir dóttur kæranda í september 2018. Fyrir lá að kærandi hafði fengið aðgang að svörum barnsins en hafði verið synjað um aðgang að prófspurningunum. Leyst var úr málinu á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Fallist var á heimild Menntamálastofnunar til að synja kæranda um aðgang að prófspurningunum á grundvelli 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, sbr. 2. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna, enda hafði stofnunin fyrirhugað að leggja annað prófið fyrir í óbreyttri mynd og hitt prófið í svo til óbreyttri mynd, haustið 2019.

    09. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    823/2019. Úrskurður frá 27. september 2019

    Deilt var um synjun sveitarfélagsins Árborgar á beiðni um skýrslu sem unnin var af sálfræðistofunni Lífi og sál og varðaði athugun á innra starfsumhverfi í Barnaskólanum [...]. Í fyrstu var kæranda synjað um aðgang að skýrslunni í heild sinni en undir rekstri málsins fékk kærandi aðgang að skýrslunni, þar sem strikað hafði verið yfir upplýsingar um einkahagsmuni tiltekinna einstaklinga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um aðgang kæranda að skýrslunni færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga. Var það mat nefndarinnar að hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að skýrslunni vægju þyngra en hagsmunir þeirra sem upplýsingarnar vörðuðu af því að það sem strikað var yfir færi leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. laganna.…

    08. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Áttundi fundur þjóðaröryggisráðs

    Fjallað var um undirbúning stefnu Norðurlandaráðs um sameiginlegar áherslur á sviði samfélagslegs öryggis og stöðuna í öryggis- og varnarsamstarfi við önnur ríki, ekki síst á vettvangi Norðurlanda á 8. fundi þjóðaröryggisráðs sem haldinn var 1. október sl.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Listaverkið Tákn á þaki Arnarhvols

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 6 milljónum kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til listakonunnar Steinunnar Þórarinsdóttur.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Atvinnuvegir

    Fjölbreytt atvinnutækifæri um land allt til umræðu í ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem áréttað var mikilvægi þess að skoðað verði gaumgæfilega hvort að þær stofnanir sem ráðuneyti áformi að setja á laggirnar geti verið staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins.

    04. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Lög og réttur, Rekstur og eignir ríkisins, Þjóðlendur

    Ríkisstjórnin samþykkir að leggja fram á Alþingi frumvarp um breytingu á þjóðlendulögum

    Ríkisstjórnin samþykkti að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 58/1998 um þjóðlendur verði lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp á fundi sínum í morgun.

    03. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Dreifing fjármagns til rannsókna, þróunar og nýsköpunar eftir landshlutum rædd á fundi Vísinda- og tækniráðs

    Á fundi Vísinda- og tækniráðs í dag kynnti Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, framhaldsúttekt sína um dreifingu fjármagns til rannsókna, þróunar og nýsköpunar eftir landshlutum. Í úttektinni er sjónum m.a. beint að árangurshlutfalli umsókna eftir landshlutum, þ.e. hlutfalli samþykktra umsókna af heildarfjölda umsókna á svæðinu, en á því sést að fjármagn dreifist með tiltölulega jöfnum hætti til þeirra svæða þaðan sem umsóknir berast.

    30. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Frumvarpi forsætisráðherra til laga um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu dreift á Alþingi

    Frumvarpi forsætisráðherra til laga um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur verið dreift á Alþingi.

    27. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Lög og réttur

    Frumvarp til laga um sanngirnisbætur afgreitt úr ríkisstjórn

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn í morgun frumvarp til laga um sanngirnisbætur í kjölfar sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Var samþykkt að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi

    26. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur ávarp á fundi um skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hélt opnunarávarp á kynningarfundi um skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sem kom út í gær.

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband