25. jún. 2015Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Fjarskipti, Innviðaráðuneytið
Samið við Mílu um hringtengingu
ljósleiðara á Vestfjörðum
<p>Í dag var undirritaður samningur milli fjarskiptasjóðs, f.h. innanríkisráðuneytisins, við Mílu ehf. um fyrri hluta hringtengingar ljósleiðarastrengs um Vestfirði. Ekkert fjarskiptafélag bauð sig fram til verksins á markaðslegum forsendum og bauð sjóðurinn því út styrk í mars síðastliðnum. Þrjú tilboð bárust á bilinu 56,3 til 123 milljónir króna og átti Míla hagstæðasta tilboð. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 131 milljón króna.</p>