Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2301–2350 af 3871
    Raða eftir:
    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    768/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var ákvörðun embættis ríkisskattstjóra um synjun beiðni um aðgang að gögnum um samskipti ársreikningaskrár við Seðlabanka Íslands og dótturfélög á tilteknu tímabili. Undir meðferð málsins fyrir úrskurðarnefndinni kom fram af hálfu ríkisskattstjóra að engin gögn lægju fyrir um samskipti ársreikningaskrár við þau félög sem kærandi tilgreindi í fyrirspurn sinni. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    20. des. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, tóku á móti skírteini sem staðfestir að forsætisráðuneytið starfrækir jafnlaunakerfi sem samræmist kröfum staðalsins ÍST 85:2012 með gildistöku frá 20. desember 2018.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    767/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var synjun Landspítala á beiðni um aðgang að samningi við Orku náttúrunnar ohf. (ON) um rafhleðslustöðvar. Synjunin byggðist á því að um væri að ræða upplýsingar sem varði mikilvæga fjárhagslega hagsmuni ON sem skyldu fara leynt skv. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að 9. gr. upplýsingalaga verndi fyrst og fremst lögaðila sem komið er á fót á einkaréttarlegum grunni en 4. tölul. 10. gr. verndi fjárhagslega hagsmuni fyrirtækja í opinberri eigu að því leyti sem þau eru í samkeppnisrekstri. Nefndin taldi enn fremur að Landspítali og ON hefðu ekki rökstutt sérstaklega hvernig upplýsingar sem fram koma í samningnum geti orðið ON skaðlegar, verði þær gerðar opinberar.…

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    766/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Blaðamaður óskaði eftir upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) um heildarkostnað stofnunarinnar af aðgerð á B árið 2011 þar sem græddur var í hann plastbarki. Synjun stofnunarinnar byggðist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og þagnarskylduákvæði 51. gr. laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Úrskurðarnefndin tók fram að þessi ákvæði takmarki ekki ein og sér upplýsingarétt almennings samkvæmt upplýsingalögum en líta bæri til þeirra við skýringu ákvæða upplýsingalaga. Nefndin taldi enn fremur ljóst að upplýsingar um heildarkostnað vegna læknismeðferðar tiltekins einstaklings teljist til upplýsinga um viðkvæm einkamálefni hans sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari í skilningi 9. gr. upplýsingalaga.…

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    765/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Deilt var um ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands um að synja kæranda um hluta skýrslu vegna kvörtunar um einelti sem sálfræðistofa vann fyrir safnið. Ákvörðun safnsins byggði einkum á því að um væri að ræða upplýsingar um einkamálefni annarra, sbr. 9. og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þá hluta skýrslunnar sem kæranda var synjað um aðgang að og lagði fyrir Þjóðskjalasafn að veita honum aðgang að þeim með útstrikunum.

    20. des. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    764/2018. Úrskurður frá 7. desember 2018

    Kærð var ákvörðun Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) um synjun beiðni um aðgang að samningum um rannsóknir á jarðhitasvæðum og reikningum sem gefnir voru út í tengslum við þær. Ákvörðun ÍSOR byggðist á 9. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að umbeðin gögn vörðuðu samkeppnisrekstur ÍSOR og að aðgangur að þeim gæti skaðað samkeppnisstöðu fyrirtækisins. Var ákvörðun ÍSOR því staðfest.

    14. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Undirritun samnings um ráðgjöf Siðfræðistofnunar til stjórnvalda um siðfræðileg efni

    Siðfræðistofnun, rannsóknarstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, verður stjórnvöldum til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2021.

    11. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin afgreiðir frumvarp um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna.

    11. des. 2018Forsætisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland aðili að alþjóðasamþykkt um farendur

    Ísland tók þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga (e. Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration) á sérstakri ríkjaráðstefnu í Marrakesh í Marokkó.

    07. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Ný ráðuneyti félagsmála og heilbrigðismála taka til starfa 1. janúar 2019

    Forseti Íslands hefur staðfest tillögur forsætisráðherra um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og um verkaskiptingu á milli þeirra sem og tillögu um skiptingu starfa ráðherra.

    05. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Vegna fyrirspurnar frá Öryrkjabandalagi Íslands

    Vegna fyrirspurnar frá ÖBÍ vill forsætisráðuneytið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Forsætisráðherra vísaði í tilgreindum ummælum til aukningar á framlögum til málaflokks örorkulífeyrisþega. Framlög til þessa hóps hafa aukist í síðustu tvennum fjárlögum sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram um rúmlega 9 milljarða utan verðlagsbreytinga, á föstu verðlagi ársins 2019 – en það er 17% hækkun frá fjárlögum ársins 2017.

    03. des. 2018Forsætisráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Forsætisráðherra afhenti verðlaun og opnaði sýningu á tillögum um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og skipulag við Stjórnarráðsreit

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti verðlaun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og opnaði sýningu á tillögum í samkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og skipulag Stjórnarráðsreits í Safnahúsinu.

    02. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Heimsókn forsætisráðherra Danmerkur lokið

    Heimsókn Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er lokið.

    01. des. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra setti fullveldishátíð við Stjórnarráðshúsið

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, setti fullveldishátíð við hátíðlega athöfn framan við Stjórnarráðshúsið í dag kl. 13:00. Meðal gesta við setningarathöfnina voru Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Margrét II. Danadrottning og Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Dana.

    30. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Setning fullveldishátíðar 1. desember

    Fullveldishátíðin verður sett fyrir framan Stjórnarráðshúsið laugardaginn 1. desember kl. 13:00 og mun Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, setja hátíðina þar sem haldin verða stutt ávörp í bland við tónlistarflutning.

    30. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Stjórnarsamstarfið eins árs í dag

    Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er eins árs í dag. Ríkisstjórnin var mynduð í kringum metnaðarfull og framsýn markmið um velferð, mannréttindi og loftslagsmál, eflingu Alþingis og aukið þverpólitískt samráð, stórsókn í uppbyggingu á innviðum um allt land og eflingu heilbrigðis- og menntakerfa og fagnar þeim árangri sem náðst hefur fyrir samfélagið á liðnu ári.

    30. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Menningarmál

    Forsætisráðherra Danmerkur til Íslands

    Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, og eiginkona hans, Sólrun Løkke Rasmussen, koma til landsins í dag í tveggja daga heimsókn í tengslum við 100 ára fullveldishátíð Íslands.

    28. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Þjóðaröryggisráð fundar

    Fimmti fundur þjóðaröryggisráðs fór fram 26. nóvember sl.

    27. nóv. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ræðir frið, kvenfrelsi, alþjóðamál og umhverfismál í Höfða

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi frið, kvenfrelsi og umhverfismál í hringborðsumræðum kvenleiðtoga í Höfða í dag. Meðal þátttakenda voru Ana Birchall, varaforsætisráðherra Rúmeníu, Mari Kiviniemi, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD og fyrrum forsætisráðherra Finnlands og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands.

    27. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði settur á fót

    Stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði hafa komið sér saman um átakshóp um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði í kjölfar 12. samráðsfundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem haldinn var á föstudaginn var.

    24. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samfélagslegar áskoranir á sviði rannsókna og vísinda

    Vísinda- og tækniráð féllst í gær á tillögu vísinda- og tækninefnda ráðsins um þær samfélagslegu áskoranir sem mikilvægt er að verði tekist á við á vettvangi íslenska vísindasamfélagsins. Niðurstöður opins samráðs voru kynntar á fundi ráðsins í gær og í kjölfarið staðfesti ráðið tillögu nefndanna um þrjú áherslusvið.

    23. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði börn úr 2. bekk í tilefni Barnaréttindaviku Tjarnarinnar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði um 300 börn úr 2. bekk sem tóku þátt í réttindagöngu barna í Þjóðleikhúskjallaranum í dag.

    23. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd

    Ríkisstjórnin mun verja 5,6 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu í desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    20. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland til sérstakrar umfjöllunar á Global Positive Forum í París

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

    20. nóv. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Menntamál, Menntun fyrir alla, Félags- og fjölskyldumál, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók við skilaboðum barna úr Flataskóla

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók á móti Ævari Þór Benediktssyni sem færði henni skilaboð á loftbelgjum frá börnum úr Flataskóla.

    14. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra tók þátt í ráðstefnu Süddeutsche Zeitung

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung, mest lesna dagblaði Þýskalands, ásamt Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, og Önu Brnabić, forsætisráðherra Serbíu, í Berlín í gær.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Dagskrá fullveldishátíðar 1. desember 2018

    Ríkisstjórn Íslands efnir til fullveldishátíðar í tilefni þess að 100 ár eru liðin síðan Ísland öðlaðist fullveldi.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnu Süddeutsche Zeitung og fundar með kanslara Þýskalands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung í Berlín á morgun, 13. nóvember. Forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í Berlín á morgun.

    12. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Bréf forsætisráðherra til bankaráðs Seðlabanka Íslands

    Forsætisráðherra hefur sent formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands bréf vegna umfjöllunar um dóm Hæstaréttar í máli Seðlabanka Íslands gegn Samherja hf. þar sem óskað er eftir greinargerð bankaráðs um málið, sbr. meðfylgjandi bréf.

    09. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Náttúruvernd, Auðlindir

    Forsætisráðherra kynnti drög að stefnu um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda í þjóðlendum

    Forsætisráðherra kynnti drög að stefnu um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda í þjóðlendum á ríkisstjórnarfundi í morgun. Drögin að stefnu hafa nú verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frestur til að skila umsögnum er til 30. nóvember nk.

    09. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Leiði Jóns Magnússonar fyrrverandi forsætisráðherra lagfært

    Ríkisstjórnin og skrifstofa Alþingis hafa ákveðið að leggja fé af mörkum til að heiðra minningu Jóns Magnússonar sem var forsætisráðherra þegar Ísland öðlaðist fullveldi 1. desember 1918.

    06. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherrabifreiðar verða rafvæddar

    Samkvæmt tillögu forsætisráðherra, sem samþykkt var í ríkisstjórn í morgun 6. nóvember, verða ráðherrabifreiðar rafvæddar. Er það í samræmi við loftslagsstefnu Stjórnarráðsins og aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

    02. nóv. 2018Forsætisráðuneytið

    Úttekt á starfsemi sjálfstæðra úrskurðarnefnda

    Páli Hreinssyni, forseta EFTA-dómstólsins, hefur verið falið að gera úttekt á starfsemi sjálfstæðra úrskurðarnefnda í stjórnsýslunni ásamt lögfræðingum í forsætisráðuneytinu.

    01. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi

    Skýrsla þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland birt

    Skýrsla þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland birtist nú í fyrsta skipti.

    31. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundaði með norrænum forsætisráðherrum

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna funduðu í dag um erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og mismunandi aðstæður milli landanna á þessu sviði.

    30. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra Íslands og Bretlands funda í Ósló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, áttu tvíhliðafund í Ósló í dag.

    30. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra á Northern Future Forum (NFF) og Norðurlandaráðsþingi í Ósló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í Northern Future Forum (NFF) í Ósló í dag og kynnti formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2019 á Norðurlandaráðsþingi.

    30. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Umbætur á Norðurlandasamstarfinu halda áfram

    Á fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Osló var ákveðið að halda áfram með að breyta og bæta norrænu samstarfi þannig að það nýtist íbúum sem best.

    29. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra sækir Northern Future Forum og Norðurlandaráðsþing í Osló

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í Northern Future Forum (NFF) sem haldið verður í Osló 29. til 31. október.

    25. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Matvælaframleiðsla eitt af stóru viðfangsefnum stjórnmálanna á þessari öld

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti setningarávarp á Matvæladegi Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) 2018 sem haldinn er í dag.

    24. okt. 2018Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ráðherranefnd um jafnréttismál fundar á kvennafrídeginum 24. október 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hélt fund í ráðherranefnd um jafnréttismál ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra og embættismönnum, á kvennafrídeginum 24. október 2018.

    22. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin

    Skátar afhentu forsætisráðherra verkefnapakka um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

    Þau Þuríður, Heiðbrá og Andri, skátar úr Garðabæ og Vesturbæ, og Marta Magnúsdóttir, skátahöfðingi Íslands, heimsóttu Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í gær.

    19. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um umboðsmann barna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mælti fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um umboðsmann barna í vikunni. Breytingar þær sem lagðar eru til er m.a. ætlað að styrkja rödd og auka áhrif barna í samfélaginu.

    19. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra ávarpar Hringborð norðurslóða

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp við opnun Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Assembly) í morgun. Forsætisráðherra lagði þunga áherslu á loftslagsmál og talaði um nýútkomna skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

    17. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ísland er friðsælasta ríki heims

    Ísland er friðsælasta ríki heims samkvæmt úttekt Global Peace Index (GPI) fyrir árið 2018.

    17. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegir

    Forsætisráðherra ávarpar 45. þing BSRB

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði 45. þing BSRB á Hilton hótel Nordica í morgun.

    16. okt. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál

    Unnur Brá Konráðsdóttir verður fulltrúi ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

    Unni Brá Konráðsdóttur, aðstoðarmanni ríkisstjórnarinnar, verður falið að tryggja samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

    15. okt. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Alþjóðaráðs Rauða krossins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Yves Daccord, framkvæmdastjóra ICRC (Alþjóðaráðs Rauða krossins) í dag.

    15. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynntar

    Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnti afrakstur vinnu sinnar í fyrri áfanga nefndarstarfsins á blaðamannafundi í dag í Þjóðminjasafninu. Eiríkur Jónsson, prófessor og formaður nefndarinnar, sá um kynninguna og svaraði spurningum fjölmiðla að kynningu lokinni.

    13. okt. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar afmælishátíð Pólska skólans í Reykjavík

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði afmælishátíð Pólska skólans í Reykjavík í dag en skólinn fagnar 10 ára afmæli í ár.

    • First
    • Prev
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • 49
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband