Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2601–2650 af 3221
    Raða eftir:
    30. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit

    Fjölsótt ráðstefna um Brexit

    Fjöldi erlendra fræðimanna tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um Brexit sem var haldin hér á landi í gær, 29. ágúst. Rætt var um þróun mála sérstaklega þegar kemur að framtíðarsambandi Bretlands og Evrópusambandsins og hvernig ríki eins og Ísland passa inn í þá mynd.

    30. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið

    Árlegt utanríkispólitískt samráð Íslands og Rússlands fór fram í dag

    Árlegt samráð íslenskra og rússneskra stjórnvalda fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Tvíhliða samskipti ríkjanna, svæðisbundið samstarf, öryggismál og mannréttindi voru meðal helstu umræðuefna.

    27. ágú. 2019Innviðaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Heimsmarkmiðin, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra gestur á ungmennafundi um sjálfbæra þróun á Álandseyjum

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, var gestur á árlegum ungmennafundi á Álandseyjum, sem haldinn var um helgina.

    27. ágú. 2019Innviðaráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Heimsmarkmiðin, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra gestur á ungmennafundi um sjálfbæra þróun á Álandseyjum

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, var gestur á árlegum ungmennafundi á Álandseyjum, sem haldinn var um helgina.

    24. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið

    Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur í höfn

    Samningar hafa nú náðst um fríverslun milli EFTA-ríkjanna fjögurra og aðildarríkja Mercosur, Argentínu, Brasilíu, Úrúgvæ og Paragvæ. Með samningnum lækka tollar á bróðurpart þeirrar vöru sem flutt er út frá Íslandi. Nær allar sjávarafurðir sem Ísland flytur út munu njóta fulls tollfrelsis, sumar frá gildistöku samningsins en aðrar að loknum mislöngum aðlögunartíma.

    21. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Grænland

    Guðlaugur Þór Þorðarson, utanríkisráðherra átti í dag fund með Ane Lone Bagger sem fer með utanríkismál í Grænlensku landsstjórninni þar sem ákveðið var að efla til reglulegs samráðs milli landanna. Hann er staddur í vinnuheimsókn á Grænlandi til að kynna sér starfsemi ýmissa fyrirtækja og sveitarfélaga en þónokkuð er um íslenskar fjárfestingar í þessum hluta landsins.

    19. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Mannréttindi og jafnrétti

    Fundir utanríkisráðherra með Mary Robinson og Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í morgun fundi með þeim Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands og Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóra mannréttindasamtakanna Amnesty International, sem bæði eru stödd hér á landi. Loftslagsmál og mannréttindi voru þar aðalumræðuefnin.

    09. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Milliríkjaviðskipti í brennidepli á fundi með bandarískum þingmönnum

    Aukið samstarf á sviði milliríkjaviðskipta og málefni norðurslóða voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og fjögurra bandarískra þingmanna í Reykjavík í dag.

    02. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 2. ágúst 2019

    Heil og sæl. Sumarleyfistíminn stendur nú sem hæst og því hefur oft verið meira að frétta úr okkar ástkæru utanríkisþjónustu en akkúrat núna. Þó má tína sitthvað til og hnoða úr því ofurlítinn föstudagspóst. Í gær tóku gildi flutningar á forstöðumönnum sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni. Með breytingunum eru konur nú í meirihluta forstöðumanna í tvíhliða sendiráðum Íslands í fyrsta sinn.

    01. ágú. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Aldrei fleiri konur forstöðumenn sendiskrifstofa Íslands

    Í dag taka gildi flutningar á forstöðumönnum sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni. Með breytingunum eru konur nú í meirihluta forstöðumanna í tvíhliða sendiráðum Íslands í fyrsta sinn.

    16. júl. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra kynnir innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á ráðherrafundi SÞ í New York

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti stöðu innleiðingar Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi um heimsmarkmiðin í höfuðstöðvum SÞ í dag

    16. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Innleiðingarhalli EES-gerða áfram innan við eitt prósent

    Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á eftir að innleiða 0,7 prósent EES-gerða hér á landi. Þetta er í þriðja sinn í röð sem innleiðingarhalli Íslands er eitt prósent eða minna, en það hefur aldrei gerst áður.

    15. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar

    Ungmenni í forgrunni á fundi um heimsmarkmiðin

    Ísland kynnir á morgun stöðu innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi í New York. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur þá ávarp fyrir Íslands hönd, en auk þess ávarpa tveir fulltrúar úr ungmennaráði heimsmarkmiðanna fundinn, þau Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Sigurður Einarsson Mäntylä.

    12. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 12. júlí 2019

    Það er engin gúrkutíð í okkar ágætu utanríkisþjónustu þótt nú sé hásumar. Undanfarnar tvær vikur hafa verið viðburðaríkar, jafnvel sögulegar, og því ekki úr vegi að gera þessum viðburðum skil í laufléttum föstudagspósti.

    12. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Mannréttindaráðið samþykkir ályktun Íslands um launajafnrétti

    Ályktun Íslands og fleiri ríkja um jöfn laun til handa konum og körlum var samþykkt einróma þegar hún kom til atkvæða í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf. Auk Íslands stóðu alls sjö ríki að ályktuninni.

    11. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ráðstefnu um fjölmiðlafrelsi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók þátt í ráðstefnu um fjölmiðlafrelsi sem fram fór í Lundúnum og lauk nú síðdegis. Ráðherra tók meðal annars þátt í pallborðsumræðum um öryggi blaðamanna þar sem hann lagði áherslu á að ríki létu til sín taka á vettvangi alþjóðastofnana

    11. júl. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrsla 2018 - Utanríkisráðherra

    Ársskýrsla utanríkisráðherra 2018.

    11. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Ályktun Íslands um mannréttindaástand á Filippseyjum samþykkt

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun sem Ísland hafði lagt fram í ráðinu um stöðu mannréttindamála á Filippseyjum. Með samþykkt ályktunarinnar lýsir mannréttindaráðið formlega yfir áhyggjum af ástandinu á Filippseyjum, hvetur stjórnvöld í landinu til að stöðva aftökur á fólki án dóms og laga og draga þá til ábyrgðar sem hafa staðið fyrir slíku.

    09. júl. 2019Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrslur ráðherra birtar

    Ársskýrslur ráðherra eru nú gefnar út í annað sinn. Aukið gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna er markmiðið með skýrslunum sem er einnig ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

    09. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna

    Marel og Thoregs hljóta styrki úr samstarfssjóði við atvinnulífið

    Tvö verkefni sem byggja á íslensku hugviti og verkþekkingu hafa fengið styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið kynnti á síðasta ári nýjan samstarfssjóð við atvinnulífið um heimsmarkmiðin sem ætlaður er samstarfsverkefnum fyrirtækja. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu, með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum ríkjum. Þetta eru fyrstu styrkirnir sem veittir eru úr sjóðnum.

    02. júl. 2019Dómsmálaráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Mannréttindi og jafnrétti, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Heimsmarkmiðagátt opnuð

    Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hefur opnað Heimsmarkmiðagátt þar sem fólki gefst kostur á að koma verkefnum tengdum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á framfæri.

    01. júl. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Þróunarsamvinna, Alþjóðabankinn

    Ísland tekur í dag sæti í stjórn Alþjóðabankans

    Geir H. Haarde, fyrrverandi sendiherra Íslands í Washington, tók í dag við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum. Hann kemur til með að stýra skrifstofu kjördæmisins í höfuðstöðvum bankans í Washington um tveggja ára skeið og situr í 25 manna stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins. Ísland er fámennasta aðildarríki bankans sem skipar í stöðu aðalfulltrúa í stjórn hans.

    28. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Sendiráð Íslands í Washington DC, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Fundað um viðskipta- og efnahagsmál með viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna

    Fulltrúi embættis viðskiptafulltrúa Bandaríkjaforseta (e. United States Trade Representative) og sendinefnd skipuð íslenskum embættismönnum, undir forystu utanríkisráðuneytisins, átti fund um viðskipta- og efnahagsmál í Reykjavík í gær.

    27. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiskrifstofa

    Afvopnunarmál og Afganistan efst á baugi á fundi varnarmálaráðherranna

    Afvopnunarmál, staða og horfur í Afganistan og framlög aðildarríkja til varnarmála voru helstu umræðuefnin á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Brussel í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fundinn af hálfu Íslands en hann sótti jafnframt fund varnarmálaráðherra Norðurhópsins svonefnda þar sem viðbrögð við upplýsingaóreiðu voru ofarlega á baugi.

    24. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein lokið

    Staða fríverslunarviðræðna, horfur í alþjóðaviðskiptum, samskiptin við Evrópusambandið og Brexit voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu EFTA, sem fram fór í Liechtenstein í dag. Að frumkvæði Íslands verða ákvæði um jafnréttismál eftirleiðis hluti af samningsmódeli EFTA.

    24. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál

    Kostnaður vegna lögfræðiráðgjafar í tengslum við þriðja orkupakkann

    Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um kostnað vegna aðkeyptrar lögfræðiráðgjafar sem tengist þingsályktunartillögu um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 um breytingu á IV. viðauka (orka) við EES-samninginn.

    24. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Sameinuðu þjóðirnar

    Ísland leggur fram fyrstu ályktanirnar í mannréttindaráðinu

    Ísland kemur til með að halda áfram frumkvæði í gagnrýni á Filippseyjar og Sádí-Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Michelle Bachelet, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, flutti yfirlitsræðu í morgun um stöðu mannréttinda í heiminum við upphaf fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna en þessi lota er sú þriðja sem Ísland sækir sem kjörinn meðlimur ráðsins.

    23. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspóstur Uppló - á sunnudegi 23. júní 2019

    Heil og sæl. Á þessum fagra sunnudegi er við hæfi að fara yfir það helsta sem á daga okkar hefur drifið undanfarinn hálfan mánuð. Fyrst skal nefna glænýja könnun um viðhorf landsmanna til utanríkisþjónustunnar og verkefna hennar. Þar kennir ýmissa grasa en megin niðurstaðan er þó að þorri Íslendinga er jákvæður í garð alþjóðastofnana og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Það er í senn bæði ánægjulegt og hvatning fyrir okkur öll. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur könnunina til hlítar.

    23. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Þrettán milljónum varið til verkefnis SÞ til stuðnings hinsegin réttindum

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal, sérstaks verkefnis sem skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna heldur utan um til að vinna að útbreiðslu réttinda hinsegin fólks hvarvetna í heiminum.

    23. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Deiliskipulag öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli

    Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast sam­kvæmt auglýsingu nr. 720/2015 um landfræðileg mörk öryggis­ og varnarsvæða.

    21. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Íslendingar velviljaðir þátttöku í alþjóðasamstarfi

    Þorri Íslendinga er jákvæður í garð alþjóðastofnana og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Þetta er niðurstaða könnunar sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið um viðhorf Íslendinga til alþjóðasamstarfs. Íslendingar eru sérstaklega jákvæðir í garð norræns samstarfs.

    21. jún. 2019Heimasendiherrar, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Sendiskrifstofa

    Loftferðasamningur við Úkraínu áritaður

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. júní 2019 / Utanríkisráðuneytið Loftferðasamningur við Úkraínu áritaður Sendinefnd Úkraínu naut íslenskrar rjómablíðu

    20. jún. 2019Utanríkisráðuneytið

    Fundur utanríkisráðherra og yfirmanns leyniþjónustumála Bandaríkjanna

    Daniel Coats, yfirmaður leyniþjónustumála Bandaríkjanna, kom við á Íslandi á leið sinni yfir Atlantshafið. Átti hann stuttan fund með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra þar sem þeir ræddu öryggismál í víðu samhengi, meðal annars á norðurslóðum.

    20. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sameinuðu þjóðirnar birta landsrýniskýrslu Íslands um heimsmarkmiðin

    Sameinuðu þjóðirnar hafa birt á vef sínum skýrslu íslenskra stjórnvalda um innleiðingu heimsmarkmiðanna.

    20. jún. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Iceland's Implementation of the 2030 Agenda for Sustainable Development

    Sameinuðu þjóðirnar hafa birt á vef sínum skýrslu íslenskra stjórnvalda um innleiðingu heimsmarkmiðanna. Skýrslan er hluti af landsrýni Íslands á stöðu innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

    19. jún. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Norðurslóðir, Utanríkisráðuneytið

    Fyrsti stjórnarnefndarfundur Norðurskautsráðsins í formennskutíð Íslands haldinn í Reykjanesbæ

    Ísland tók í byrjun maí síðastliðnum við formennsku í Norðurskautsráðinu til næstu tveggja ára. Dagana 18.-19. júní var fyrsti stjórnarfundur embættismannanefndar ráðsins, á formennskutíma Íslands, haldinn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Með fundinum er hrundið af stað röð reglubundinna funda Norðurskautsráðsins og tengdra viðburða sem fara munu fram víðsvegar um landið næstu tvö árin.

    19. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Innviðaráðuneytið

    Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði í heimi

    Sigurður Ingi Jóhannsson stýrði fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna sem fram fór á Hellu í dag. Á fundinum var ný framtíðarsýn fyrir Norrænu ráðherranefndina samþykkt en hún felur í sér vilja til stóraukinnar samvinnu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í loftslags- og umhverfismálum, og eflingu innra samstarfs til að íbúar Norðurlandanna geti áfram ferðast óhindrað milli landa, stundað nám eða stofnað fyrirtæki hver hjá öðrum.

    19. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Innviðaráðuneytið

    Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði í heimi

    Sigurður Ingi Jóhannsson stýrði fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna sem fram fór á Hellu í dag. Á fundinum var ný framtíðarsýn fyrir Norrænu ráðherranefndina samþykkt en hún felur í sér vilja til stóraukinnar samvinnu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í loftslags- og umhverfismálum, og eflingu innra samstarfs til að íbúar Norðurlandanna geti áfram ferðast óhindrað milli landa, stundað nám eða stofnað fyrirtæki hver hjá öðrum.

    12. jún. 2019Rit og skýrslur, Þróunarsamvinna, Utanríkisráðuneytið

    Mannréttindi sem drifkraftur breytinga

    Mannréttindasinnuð þróunarsamvinna í tvíhliða samstarfi Íslands.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Formennska Íslands 2019

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi

    Öryggismál á Norður-Atlantshafi, fyrirhuguð verkefni Íslands í Kosovo, norrænt öryggismálasamstarf og fjölþátta ógnir voru aðalumræðuefnin á fundum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Stoltenberg er staddur hér á landi í heimsókn í boði forsætisráðherra.

    11. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar ræddu komu tyrkneska landsliðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi í morgun í síma við Mevlüt Çavuşoğlu, utanríkisráðherra Tyrklands, um komu tyrkneska karlalandsliðsins í knattspyrnu hingað til lands á sunnudaginn.

    07. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð við Bandaríkin og Japan

    Í dag fór fram fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna í reglulegu efnahagssamráði sem komið var á fót á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í febrúar síðastliðinn. Þá fór fram fyrsti fundur í tvíhliða efnahagssamráði milli Íslands og Japans í Tókýó.

    04. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Mannréttindamál og tvíhliða samskipti rædd á fundi með You Quan

    Tvíhliða samskipti Íslands og Kína, málefni norðurslóða og mannréttindamál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og You Quan, háttsettum embættismanni í miðstjórn kínverska Kommúnistaflokksins, sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu í morgun.

    04. jún. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Úganda, Malaví, Þróunarsamvinna

    Starfshópur skilar skýrslu um mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu

    Öll verkefni og aðgerðir í tvíhliða þróunarsamvinnu eiga að vera í samræmi við meginreglur mannréttinda og byggja á vönduðum greiningum á stöðu mannréttinda, áhrifum inngripa og öðrum viðeigandi þáttum, segir í nýrri skýrslu utanríkisráðuneytisins um mannréttindamiðaða nálgun í tvíhliða þróunarstarfi. Starfshópurinn sem vann skýrsluna leggur til að mótuð verði heildræn stefnumið um mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu og áréttar að mannréttindi verði lögð til grundvallar í þróunarsamvinnu með þátttöku íslensks atvinnulífs.

    28. maí 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stofnun samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir

    Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

    24. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Greitt fyrir útflutningi á íslenskum framleiðsluafurðum til Kína

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ni Yuefeng, tollamálaráðherra Kína, undirrituðu í dag þrjár nýjar bókanir við fríverslunarsamning Íslands og Kína. Með bókununum opnast ný tækifæri fyrir útflutning á íslenskum framleiðsluafurðum til Kína.

    21. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland hlýtur viðurkenningu fyrir einarða baráttu fyrir jafnrétti

    Ísland hlaut í dag viðurkenningu fyrir einarða baráttu fyrir jafnrétti á norrænu viðskiptaráðstefnunni Womenomics í Kaupmannahöfn en það er í fyrsta sinn sem land eða þjóð hlýtur slíka viðurkenningu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók við viðurkenningunni fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hann hélt einnig opnunarávarp á rakarastofuráðstefnu sem haldin var við þetta tækifæri að íslenskri fyrirmynd.

    20. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Loftslagsmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    EES-ráðið fagnar 25 ára afmæli EES-samningsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirstrikaði sameiginlegan skilning á upptöku þriðja orkupakkans á fundi EES-ráðsins í Brussel í dag og skoraði á ESB að fella niður tolla á íslenskar sjávarafurðir. Utanríkisráðherrar Íslands, Noregs og Liechtenstein og fulltrúar ESB fögnuðu 25 ára afmæli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið á fundinum.

    17. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi Evrópuráðsins

    Framtíð Evrópuráðsins og staða mannréttindamála í Evrópu voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi ráðsins sem lauk í Helsinki í dag. Ráðið fagnar sjötíu ára afmæli um þessar mundir og sótti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra athöfn í tilefni þess.

    17. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi Evrópuráðsins

    Framtíð Evrópuráðsins og staða mannréttindamála í Evrópu voru helstu umræðuefnin á ráðherrafundi ráðsins sem lauk í Helsinki í dag. Ráðið fagnar sjötíu ára afmæli um þessar mundir og sótti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra athöfn í tilefni þess.

    • First
    • Prev
    • 51
    • 52
    • 53
    • 54
    • 55
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband