Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2651–2700 af 3221
    Raða eftir:
    16. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Fjölþjóðastofnanir, Skólar GRÓ, Hjálparstarf, Íslensk frjáls félagasamtök, Malaví, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, Úganda, UN Women, Alþjóðabankinn

    Framtíðarsýn heimsmarkmiðanna grundvöllur nýrrar stefnu í þróunarsamvinnu

    Yfirmarkmið Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu verður að draga úr fátækt og hungri og stuðla að almennri velferð á grundvelli mannréttinda, kynjajafnréttis og sjálfbærrar þróunar, segir í nýsamþykktri þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands sem gildir fyrir árin 2019 til 2023. „Það hefur verið mér sérstakt kappsmál að eiga samstarf við atvinnulífið og nýta enn betur þá sértæku þekkingu sem við búum yfir á fjölmörgum sviðum við uppbyggingu innviða og atvinnuvega í þróunarríkjum. Nýjum samstarfssjóði við atvinnulífið er ætlað að styrkja verkefni í fátækum ríkjum og þær áherslur endurspeglast vel í stefnunni," segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

    15. maí 2019Menntamál, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menntamálaráðherrar Íslands og Japans funda í Tókýó

    Ísland og Japan standa sameiginlega að alþjóðlegum ráðherrafundi um vísindi norðurslóða á næsta ári og af því tilefni fundaði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra með Masahiko Shibayama mennta- og vísindamálaráðherra Japans í dag.

    14. maí 2019Menningarmál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarsamstarf Íslands og Kína

    Menningarmálaráðherrar Íslands og Kína skrifuðu í gær undir samkomulag um menningarsamstarf landanna. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmála-ráðherra og Luo Shugang menningar- og ferðamálaráðherra Kína skrifuðu undir yfirlýsingu sem ætlað er að efla samstarf ríkjanna á sviðum sviðslista, myndlistar, barnamenningar, bókmennta, útgáfu og bókasafna.

    13. maí 2019Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Merkur áfangi í samskiptum Íslands og Kína: gagnkvæm viðurkenning háskólanáms

    Menntamálaráðherrar Íslands og Kína skrifuðu í fyrsta sinn undir samning um gagnkvæma viðurkenningu háskólanáms milli landanna.

    10. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisviðskiptaráðherra Bretlands fundaði með Guðlaugi Þór

    Tvíhliða samskipti og framtíðarsamband Íslands og Bretlands eftir Brexit voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Liam Fox, utanríkisviðskiptaráðherra Bretlands. Fundur þeirra var haldinn á Nesjavöllum en Fox er staddur í heimsókn hér á landi.

    10. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Sameiginleg yfirlýsing EFTA-ríkjanna í EES um sérstöðu Íslands

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun sameiginlega yfirlýsingu Íslands, Noregs og Liechtenstein á fundi í sameiginlegu EES-nefndinni þann 8. maí þar sem sérstaða Íslands hvað varðar innri raforkumarkað ESB er áréttuð.

    09. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Baudenbacher kynnir utanríkismálanefnd álitsgerð vegna þriðja orkupakkans

    Þótt mögulegt sé að hafna upptöku nýrrar löggjafar ESB í EES-samninginn á lokastigum málsmeðferðar er þriðji orkupakkinn ekki mál af því tagi að réttlætanlegt sé að grípa til slíkra neyðarráðstafana. Þetta er mat Carls Baudenbachers, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, en hann kynnir utanríkismálanefnd Alþingis álitsgerð sína síðar í dag. Að áliti hans gæti það teflt aðild Íslands að EES-samningnum í tvísýnu verði þriðja orkupakkanum hafnað.

    07. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu

    Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu á fundi utanríkisráðherra ráðsins sem lauk fyrr í dag í Rovaniemi í Finnlandi. Þar tók Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra við formennskukeflinu af finnska starfsbróður sínum. Ráðherrafundurinn markaði lok tveggja ára formennsku Finnlands í ráðinu.

    06. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með Lavrov

    Tvíhliða samskipti Íslands og Rússlands, málefni norðurslóða og öryggismál í Evrópu voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í Rovaniemi í Finnlandi í dag.

    03. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra tók á móti skýrslu um norrænt utanríkismálasamstarf

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fékk í dag afhenta skýrslu norrænna alþjóðamálastofnana um framkvæmd tillagna Thorvalds Stoltenbergs um aukið samstarf Norðurlandanna í utanríkis- og öryggismálum. Skýrslan markar tíu ára afmæli Stoltenberg-tillagnanna svonefndu frá árinu 2009 um aukið samstarf Norðurlandanna á þessu sviði.

    03. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Aðalræðismannsskipti í Nuuk

    Þorbjörn Jónsson sendifulltrúi hefur tekið við stöðu aðalræðismanns Íslands í Nuuk á Grænlandi. Skafti Jónsson, sem gegnt hefur stöðunni frá 2017, kemur heim til starfa í utanríkisráðuneytinu þar sem hann sinnir meðal annars menningarmálum á viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins.

    03. maí 2019Utanríkisráðuneytið

    Borgaraþjónustan ávallt til staðar

    Hátt í 50 þúsund Íslendingar eru búsettir erlendis eða, nærri 14 prósent þjóðarinnar. Meginþorri þeirra er í löndum þar sem Ísland er með sendiskrifstofu. Þá eru ótaldir þeir sem eiga fasteignir erlendis og dvelja þar langdvöldum þótt föst búseta sé hér á landi.

    02. maí 2019Utanríkisráðuneytið

    Ísland í forystu á alþjóðavettvangi

    Í ár er Ísland í forystuhlutverki í ýmsum ráðum, stjórnum og nefndum á alþjóðavettvangi sem veitir einstakt tækifæri til að upplýsa um helstu hagsmunamál og afla sjónarmiðum þjóðarinnar stuðnings. Ísland er formennskuríki í Norrænu ráðherranefndinni og einnig í samstarfi norrænna utanríkisráðherra (N5) og utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8).

    01. maí 2019Utanríkisráðuneytið

    Breytt öryggisumhverfi á norðurslóðum

    Ísland tryggir öryggi sitt og varnir með virku samstarfi við önnur ríki, einkum með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningi við Bandaríkin. Í nýútkominni skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál er fjallað um öryggis- og varnarmál, þar á meðal framlag Íslands til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins, norrænt varnar- og öryggissamstarf og afvopnunarmál.

    01. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Brexit eitt viðamesta verkefnið

    Hagsmunagæsla vegna úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu er eitt viðamesta verkefni utanríkisþjónustunnar um þessar mundir. Undanfarin misseri hefur ráðherra einnig skerpt frekar á áherslu Íslands á utanríkisviðskipti.

    30. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál kynnt á Alþingi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í dag Alþingi skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál. Skýrslan gefur greinargott yfirlit yfir stöðu utanríkismála Íslands og helstu atburði á þeim vettvangi undanfarna tólf mánuði.

    30. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað

    Kappsmál í þróunarsamvinnu að nýta sértæka þekkingu Íslendinga

    „Í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar er þróunarsamvinna vaxandi liður í störfum utanríkisþjónustunnar. Í ár tekur Ísland við umfangsmiklu samræmingarstarfi kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Alþjóðabankanum með formennsku í samstarfinu til tveggja ára. Á vettvangi Alþjóðabankans hefur tekist að koma á framfæri íslenskri sérþekkingu á sviði jarðhitanýtingar sem kemur þar að miklu gagni og til stendur að auka enn frekar aðkomu Íslands að verkefnum tengdum sjávarútvegi,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í dag þegar hann kynnti skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál fyrir Alþingi.

    30. apr. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Norrænt samstarf

    Samstarfsráðherrafundur á Norðurbryggju

    Aukafundur samstarfsráðherra Norðurlandanna um nýja framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar fór fram á Norðurbryggju (d. Nordatlantens brygge) í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn síðastliðinn.

    29. apr. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál lögð fyrir Alþingi

    Árleg skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkis- og alþjóðamál verður kynnt á þingi eftir hádegi þann 30. apríl. Þá verður jafnframt dreift til þingmanna prentaðri útgáfu af skýrslunni og sérstöku hefti með útdrætti úr skýrslunni. Bæði skýrslan sjálf og útdrátturinn er í hjálögðum pdf-skjölum.

    29. apr. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál lögð fyrir Alþingi

    Árleg skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkis- og alþjóðamál verður kynnt á þingi eftir hádegi þann 30. apríl. Þá verður jafnframt dreift til þingmanna prentaðri útgáfu af skýrslunni og sérstöku hefti með útdrætti úr skýrslunni. Bæði skýrslan sjálf og útdrátturinn er í hjálögðum pdf-skjölum.

    29. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ársfundi Íslandsstofu

    Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra undirstrikaði þýðingu samningsins um Evrópska efnahagssvæðið í ávarpi sínu á ársfundi Íslandsstofu í morgun.

    26. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Menntamál, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Ísland og UNESCO gera rammasamning um þróunarsamvinnu

    Ísland og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hafa gert með sér samstarfssamning á sviði þróunarsamvinnu. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Xing Qu, aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO, undirrituðu rammasamning þess efnis fyrr í vikunni.

    26. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Menntamál, Sendiráð Íslands í París, Sendiskrifstofa

    Ísland og UNESCO gera rammasamning um þróunarsamvinnu

    Ísland og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hafa gert með sér samstarfssamning á sviði þróunarsamvinnu. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Xing Qu, aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO, undirrituðu rammasamning þess efnis fyrr í vikunni.

    24. apr. 2019Utanríkisráðuneytið

    Alþjóðleg samvinna undirstaða góðra lífskjara á Íslandi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í morgun opnunarávarp á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norðurlanda í fókus og utanríkisráðuneytisins sem ber titilinn „Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?“. Stjórnmálamenn, sérfræðingar, fræðimenn og áhugamenn um alþjóðamál flytja þar erindi og taka þátt í fjölbreyttum umræðum um alþjóðasamvinnu.

    23. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands í Íslandsheimsókn

    Tvíhliða samskipti, mannréttindamál, ógn af hryðjuverkum og öryggismál voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, sem fram fór í Grindavík í dag.

    23. apr. 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heimsmarkmiðin, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðunum komin í samráðsgátt

    Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun hefur lagt skýrslu um stöðu Íslands gagnvart heimsmarkmiðunum í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.

    17. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Skorað á stjórnvöld í Brúnei að afturkalla breytingar á refsilöggjöf

    Íslensk stjórnvöld í samstarfi við 35 ríki, sem öll eiga aðild að Equal Rights Coalition, bandalagi ríkja um réttindi hinsegin fólks, lýsa yfir mikilli andúð á ákvörðun stjórnvalda Asíuríkisins Brúnei að hrinda í framkvæmd lögum sem m.a. kveða á um að grýta megi samkynhneigða til bana.

    16. apr. 2019Evrópusamvinna, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Uppbyggingarsjóður EES: Vinnustofa fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

    Vinnustofa um tækifæri og styrki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar í bláa og græna hagkerfinu verður haldin þann 24. apríl næstkomandi milli kl. 8.30 til 11.30 í húsakynnum Íslandsstofu.

    13. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði þróunarnefndina

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á fjölþjóðlegt samstarf, þar á meðal alþjóðaviðskipti, loftslagsmál, mannauð, mannréttinda- og jafnréttismál, í ávarpi sínu í þróunarnefnd Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðins fyrr í dag. Þá ræddi hann um mikilvægi fjármögnunar þróunar, meðal annars með betri skattheimtu, og að koma í veg fyrir ólöglegt fjármagnsflæði og skattaundanskot.

    12. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland á meðal stofnenda mannréttindasjóðs Alþjóðabankans

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á gildi mannréttinda í þróunarsamstarfi í ávarpi sem hann flutti við stofnun nýs mannréttindasjóðs Alþjóðabankans í Washington í kvöld. Vorfundir Alþjóðabankans standa nú yfir.

    12. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Heimsmarkmiðin, Norrænt samstarf, Menntamál

    Kraftur í norrænu samstarfi í formennsku Íslands

    Norrænt samstarf er veigamikill hluti af utanríkismálum Íslands og öll ráðuneyti eiga í virku samstarfi við önnur Norðurlönd á ýmsum sviðum. Síðasta vika var annasöm í þessu tilliti og gefur ágæta mynd af umfangi og dýpt þess samstarfs, ekki síst núna á formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    11. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Skráning Iceland Foods á orðmerkinu Iceland ógilt

    Hugverkastofa Evrópusambandsins (EUIPO) hefur komist að þeirri niðurstöðu að vörumerkjaskráning bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods Ltd. á orðmerkinu Iceland í Evrópusambandinu sé ógild í heild sinni. Fyrirtækið hefur tvo mánuði til að áfrýja úrskurðinum.

    10. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál

    Árétting sérfræðinga vegna þriðja orkupakkans

    Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um upptöku og innleiðingu á svonefndum þriðja orkupakka lauk á Alþingi í gærkvöld. Þeir Stefán Már Stefánsson lagaprófessor og Friðrik Árni Friðriksson Hirst lögfræðingur hafa sent utanríkisráðherra bréf vegna sjónarmiða sem fram komu í umræðunni.

    05. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherra Póllands

    Tvíhliða samskipti, málefni norðurslóða og alþjóðamál voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jacek Czaputowicz, utanríkisráðherra Póllands, fyrr í dag.

    04. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra sótti 70 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins

    Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins komu saman til fundar í Washington í tilefni af 70 ára afmæli bandalagsins, en hinn 4. apríl 1949 var stofnsáttmáli Atlantshafsbandalagsins undirritaður af tólf stofnríkjum, þ.m.t. Íslandi. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fundinn.

    02. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit

    Tveir samningar vegna Brexit undirritaðir í London í dag

    Íslensk og bresk stjórnvöld undirrituðu í dag tvo mikilvæga samninga sem tryggja annars vegar áframhaldandi réttindi borgara til búsetu og hins vegar óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta jafnvel þótt Bretland gangi úr Evrópusambandinu (ESB) án útgöngusamnings. Enn ríkir óvissa um hvort Bretland gangi úr ESB án samnings en það gæti gerst 12. apríl nk. Noregur á aðild að báðum samningunum og Liechtenstein er einnig aðili að samningnum um búseturéttindi.

    01. apr. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Mannréttindi, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór stýrði utanríkisráðherrafundi NB8 og Visegrad-ríkja

    Öryggis- og varnarmál, þróun mála í Evrópu og málefni Sameinuðu þjóðanna voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja, sem lauk í Palanga, Litháen, fyrr í dag.

    29. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Mósambík, neyð, Sameinuðu þjóðirnar, WFP, Malaví

    Rúmlega 25 milljónir til neyðaraðstoðar í Mósambík og Malaví

    Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 200 þúsund Bandaríkjadölum – um 25 milljónum íslenskra króna – til björgunarstarfa á hamfarasvæðunum í Mósambík og Malaví.

    28. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Rússneskar herflugvélar í loftrýmiseftirlitssvæðinu

    Tvær ítalskar orrustuþotur, sem eru á Íslandi við loftrýmisgæslu, voru í gærkvöld sendar á loft til að auðkenna tvær óþekktar flugvélar sem komnar voru inn í loftrýmiseftirlitssvæði Atlantshafsbandalagsins hér við land. Um var að ræða tvær rússneskar sprengjuflugvélar af gerðinni Tupolev Tu-142 (Bear F).

    27. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Óháð félagasamtök lýsa yfir ánægju með framgöngu Íslands

    Fertugustu fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk sl. föstudag. Þetta var í annað sinn sem Ísland tók þátt sem aðildarríki ráðsins eftir að hafa verið kosið í ráðið í sérstökum aukakosningum í New York 13. júlí á síðasta ári. Mannréttindaráðið afgreiddi 29 ályktanir á fimmtudag og föstudag. Óháð félagssamtök sem starfa náið með mannréttindaráðinu hafa lýst yfir ánægju með framgöngu Íslands,

    26. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Samkomulag Íslands og Bretlands á sviði öryggismála undirritað

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, undirrituðu á fundi sínum í Lundúnum í dag samkomulag um að efla tvíhliða samstarf ríkjanna í varnar- og öryggismálum.

    26. mar. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Náttúruvernd, Skipulagsmál, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir að Ísland fullgildi Landslagssamning Evrópu

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að Ísland fullgildi Landslagssamning Evrópu. Samningnum er ætlað að stuðla að verndun, stýringu og skipulagi landslags ásamt því að koma á fót evrópsku samstarfi um landslag.

    25. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti

    Utanríkisráðuneytið hlýtur jafnlaunavottun

    Utanríkisráðuneytið hefur hlotið jafnlaunavottun frá Vottun hf. sem er staðfesting þess að jafnlaunakerfi ráðuneytisins samræmist kröfum jafnlaunastaðals. Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra og Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri veittu í dag viðtöku skírteini þessu til staðfestingar ásamt þeim Önnu Ósk Kolbeinsdóttur mannauðs- og launafulltrúa og Berglindi Bragadóttur stjórnarráðsfulltrúa.

    25. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Útboðum lokið vegna framkvæmda á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

    Útboðum vegna fyrirhugaðra framkvæmda á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli er lokið og er búist við að þær hefjist á næstunni. Um er að ræða fyrstu framkvæmdir á vegum bandarískra stjórnvalda á Íslandi síðan varnarliðið hætti starfsemi haustið 2006.

    22. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Auðlindir, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir að leggja þriðja orkupakkann fyrir Alþingi

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu utanríkisráðherra um að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 um breytingu á IV. viðauka (orka) við EES-samninginn. Með þingsályktunartillögunni heimilar Alþingi að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku svonefnds þriðja orkupakkans í EES-samninginn. Tillagan inniheldur fyrirvara um að áður en grunnvirki verði reist sem gera mögulegt að flytja raforku milli Íslands og orkumarkaðar Evrópusambandsins verði lagagrundvöllur gerðanna endurskoðaður og komi ákvæði hennar sem varða tengingar yfir landamæri ekki til framkvæmda fyrr en að þeirri endurskoðun lokinni.

    22. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Orka, Utanríkismál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Sameiginlegur skilningur um gildi þriðja orkupakkans gagnvart Íslandi

    Guðlaugur Þórðarson ráðherra og Miguel Arias Canete framkvæmdastjóri orkumála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ræddu hinn 20. mars 2019 þriðja orkupakka ESB, með hliðsjón af einstökum aðstæðum á Íslandi að því er varðar endurnýjanlega orku og orkumarkaði.

    22. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Malaví, Mósambík, Þróunarsamvinna, Úganda, UNICEF, Afríka

    Íslensk þróunarsamvinna: Vatnsból fyrir hálfa milljón íbúa

    Íslensk stjórnvöld hafa í alþjóðlegri þróunarsamvinnu komið upp vatnsbólum fyrir hálfa milljón íbúa í Afríkuríkjum. „Vatn er undirstaða alls lífs og ekkert bætir líf fátæks fólks meira en greiður aðgangur að hreinu vatni. Við leggjum kapp á að koma upp vatnspóstum í grennd við heimili íbúa í samstarfshéruðum okkar því við vitum að hreint vatn bætir stórkostlega heilsu íbúanna og dregur úr óþarfa tímaeyðslu við vatnsburð,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í tilefni af alþjóðlegum degi vatnsins í dag, 22. mars.

    20. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Þingsályktunartillaga um fullgildingu Norður-Íshafssamningsins

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu utanríkisráðherra um að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um fullgildingu samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.

    19. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málefnaáherslur framboðs Íslands til setu í framkvæmdastjórn UNESCO kynntar í ríkisstjórn

    Málefnaáherslur framboðs Íslands til setu í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) voru kynntar á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    18. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit

    Viðræðum er lokið um fríverslunarsamning við Bretland til bráðabirgða

    Ísland, Noregur og Bretland hafa lokið samningaviðræðum um bráðabirgðafríverslunarsamning vegna vöruviðskipta ef Bretland gengur úr ESB án útgöngusamnings. Með samningnum halda núverandi tollkjör í grundvallaratriðum áfram að gilda fyrir inn- og útflutning vara til og frá Bretlandi. Bretland er afar mikilvægur útflutningsmarkaður íslenskra fyrirtækja en samningurinn mun tryggja áframhaldandi útflutning um 55.000 tonna af sjávarafurðum til Bretlands að minnsta kosti á sömu tollkjörum og gilda í dag.

    • First
    • Prev
    • 52
    • 53
    • 54
    • 55
    • 56
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband