09. ágú. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
631/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016
<p>Kærð
var synjun grunnskóla á aðgangi að nafnlausu bréfi foreldra barna í bekk sonar
kæranda til skólans. Í bréfinu voru að því er virðist frásagnir fjögurra barna
af samskiptum við son kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að
hagsmunir barnanna sem haft var eftir í bréfinu, af því að upplýsingar um líðan
þeirra, tilfinningar og heilsu færu leynt, væru ríkari en þeir hagsmunir sem
kærendur kynnu að hafa af aðgangi að bréfinu. Var því staðfest synjun skólans á
afhendingu bréfsins með vísan til 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.</p>