Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2701–2750 af 3221
    Raða eftir:
    15. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Góður fundur Guðlaugs Þórs og Maas

    Öryggis- og varnarmál, málefni norðurslóða og alþjóðlegt viðskiptaumhverfi voru meðal helstu umræðuefna á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sem fram fór í Berlín fyrr í dag.

    15. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Íslendingar í Christchurch láti vita af sér

    Vegna hryðjuverkanna í Christchurch á Nýja-Sjálandi í morgun hvetur borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins Íslendinga sem staddir eru í borginni til að hafa samband ef þeir þurfa á aðstoð að halda. Utanríkisráðherra og forsætisráðherra hafa sent frá sér samúðarkveðjur vegna árásanna.

    13. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna

    Nýr opinn EES-gagnagrunnur kynntur á morgunfundi með ASÍ og SA

    Utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands stóðu í morgun fyrir fundi um stöðu EES-samningsins, ávinning og áskoranir honum tengdar. Á fundinum var einnig kynntur nýr opinn EES-gagnagrunnur þar sem EES-gerðir eru aðgengilegar á einum stað. Í ár eru 25 ár síðan samningurinn tók gildi og gagnagrunnurinn mikilvægt skref í átt að auknu gagnsæi.

    11. mar. 2019Utanríkisráðuneytið

    Ræddu fríverslun með sjávarafurðir

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Ceciliu Malmström, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins (ESB) á sviði viðskipta. Megintilgangur fundarins var að ræða mögulega fríverslun með fisk og fiskafurðir við ESB.

    08. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Utanríkisráðuneytið

    Höfði friðarsetur fær styrk vegna námskeiðs í samningatækni

    Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi að veita Höfða friðarsetri styrk upp á 3 milljónir króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að halda námskeið í samningatækni og átakafræði með Harvard háskóla haustið 2019.

    07. mar. 2019Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna

    Góður árangur Íslands í frammistöðumati ESA

    Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) jafna íslensk stjórnvöld sinn besta árangur frá upphafi mælinga. Þetta er 43. frammistöðumat ESA sem gefið er út tvisvar á hverju ári. Í því er tekinn saman árangur EFTA-ríkjanna þriggja innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) við innleiðingu EES-gerða.

    07. mar. 2019Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Utanríkisráðuneytið

    Ísland í fararbroddi ríkja í gagnrýni á Sádi Arabíu í mannréttindamálum

    Ísland leiddi í dag hóp ríkja í gagnrýni á stöðu mannréttindamála í Sádi Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf. Er það í fyrsta skipti Sádi Arabía sætir slíkri samstilltri gagnrýni í ráðinu, og markar frumkvæðið því tímamót.

    05. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað

    Ráðherra stýrði árlegum samráðsfundi NB8 ríkjanna með forseta Alþjóðabankans

    Jarðhiti, málefni hafsins, jafnréttismál og mannréttindi voru til umræðu á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Kristalinu Georgieva, starfandi forseta Alþjóðabankans í dag. Einnig var rætt um fyrirhugaða stjórnarsetu Íslands í bankanum fyrir hönd kjördæmisins til næstu tveggja ára.

    04. mar. 2019Utanríkisráðuneytið

    Malpass fundaði með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

    Jafnréttismál, mannréttindi og loftslagsmál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra, auk ráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í kjördæmi Alþjóðabankans með David Malpass, aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna, í dag.

    04. mar. 2019Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna

    EES og atvinnulífið – Hvernig höfum við áhrif saman?

    Miðvikudaginn 13. mars efnir utanríkisráðuneytið til morgunfundar um samstarf í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins ásamt Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins. Fundurinn er haldinn á Grand hótel Reykjavík frá klukkan 8:30 til 10:00.

    27. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Trúnaðarbréf afhent víða um heim

    Sendiherrar í íslensku utanríkisþjónustunni hafa undanfarinn mánuð afhent trúnaðarbréf sín í nokkrum ríkjum hér og þar á jarðarkringlunni.

    26. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Aukin framlög Íslands til bágstaddra í Jemen

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tilkynnti um 30 milljóna króna viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar í Jemen á alþjóðaráðstefnu sem nú stendur yfir í Genf. Heildarframlög íslenskra stjórnvalda til Jemen nema þá um 85 milljónum króna það sem af er ári. Guðlaugur átti einnig fund með Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.

    25. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf

    Ráðherra gagnrýndi mannréttindabrjóta í mannréttindaráði

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lýsti yfir áhyggjum af vaxandi gyðinga- og múslimahatri, gagnrýndi stjórnvöld í Tyrklandi og Sádi Arabíu fyrir bága stöðu mannréttinda og frelsis og lagði sérstaka áherslu á réttindi hinsegin fólks í ræðu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Guðlaugur Þór átti einnig fundi með framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og utanríkisráðherra Írlands. ​

    25. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Guðlaugur Þór tók upp mál Jóns Þrastar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hitti í morgun utanríkisráðherra Írlands, Simon Coveney, á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf og tók upp við hann mál Jóns Þrastar Jónssonar, sem leitað er í Dublin.

    22. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra skipar í útflutnings- og markaðsráð

    Utanríkisráðherra hefur skipað 31 fulltrúa til setu í útflutnings- og markaðsráði til næstu fjögurra ára. Tíu þeirra eru án tilnefningar en 21 samkvæmt tilnefningum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samstarfshóps Markaðsstofu landshlutanna.

    22. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Alþjóðasamningar, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland fullgildir bókun við samning um bann við pyntingum

    Ísland hefur fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum, og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi refsingu (OPCAT). Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fékk fullgildingarskjalið afhent í vikunni og í gær var því svo lýst yfir að fullgildingu af hálfu Íslands væri lokið.

    21. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, Annað

    Íslendingar í lið með FAO gegn ólöglegum fiskveiðum

    „Samstarfið lagar sig einkar vel að pólitískri stefnu Íslands í alþjóðamálum með ríkum áherslum á málefni hafsins. Það gefur okkur tækifæri til að nýta íslenska þekkingu í stórum alþjóðlegum verkefnum. Og bæði íslensk fyrirtæki og íslenskir sérfræðingar fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra um nýjan samstarfssamning ráðuneytisins við Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO.

    18. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Flóttafólk, Utanríkismál

    Stuðningur aukinn við flóttafólk frá Venesúela

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrjátíu milljónum króna til aðstoðar við flóttafólk frá Venesúela með stuðningi við starfsemi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Fyrr í dag ræddi Guðlaugur við Juan Guaidó, forseta þjóðþings Venesúela en íslensk stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi við hann sem forseta landsins til bráðabirgða.

    18. feb. 2019Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherra Norðurlanda ávarpaði vísindaráðstefnu í Bandaríkjunum

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, flutti ávarp á norrænni málstofu á vísindaráðstefnu í Washington DC um síðustu helgi til vekja athygli á norrænu rannsóknarsamstarfi.

    15. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Forsætisráðuneytið

    Pompeo fundaði með utanríkisráðherra og forsætisráðherra

    Viðskipti, málefni norðurslóða og öryggis- og varnarmál voru meðal umræðuefna á hádegisverðarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Michael Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem haldinn var í Hörpu í dag, en Pompeo var staddur hér á landi í vinnuheimsókn í boði Guðlaugs Þórs. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók einnig á móti Pompeo í Ráðherrabústaðnum í kurteisisheimsókn þar sem ráðherrarnir ræddu meðal annars loftslagsbreytingar, kjarnorkuafvopnun og norðurskautsmál auk þess sem þau ræddu tvíhliða samskipti landanna.

    08. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkismál

    Áætlun samþykkt um að greiða götu Norðurlandabúa

    Samstarfsráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fyrsta fundi á formannsári Íslands norræna áætlun sem miðar að því að gera íbúum Norðurlanda enn auðveldara að flytja á milli landa, starfa, stunda nám eða stofna fyrirtæki í öðru norrænu ríki.

    08. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Réttindi íslenskra ríkisborgara tryggð eftir Brexit

    Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur.

    08. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit, Norðurslóðir, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Brexit og fiskveiðar efst á baugi á fundi með Skotlandsmálaráðherra

    Fiskveiðar, Brexit, fríverslun og málefni norðurslóða voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugar Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og David Mundell, Skotlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í morgun. Einnig ræddu ráðherrarnir öryggismál á Norður-Atlantshafi og margvísleg tengsl Íslands og Skotlands, meðal annars á sviði menntunar.

    06. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Brexit, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með Ann Linde

    Norrænt samstarf, útganga Bretlands úr Evrópusambandinu, öryggismál og alþjóðaviðskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Ann Linde, utanríkisviðskiptaráðherra Svíþjóðar, í dag.

    06. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra áréttaði mikilvægi EES-samningsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirstrikaði þýðingu EES-samningsins fyrir Ísland um leið og hann hvatti til stöðugrar árvekni og endurmats í ræðu sem hann flutti á málstofu í Háskólanum í Reykjavík í dag. Ráðherra varaði við að um þessar mundir væri sótt að samningnum úr tveimur ólíkum áttum og við því yrði að bregðast.

    06. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiskrifstofa

    Norður-Makedónía verður 30. aðildarríki Atlantshafsbandalagsins

    Í dag undirritaði utanríkisráðherra Norður-Makedóníu, Nikola Dimitrov, ásamt fastafulltrúum Atlantshafsbandalagsins, viðauka við stofnsáttmála bandalagsins sem markar inngöngu Norður-Makedóníu í bandalagið.

    05. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Yfirlýsing utanríkisráðherra vegna ástandsins í Venesúela

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur lýst yfir stuðningi við Juan Guaidó, sem forseta Venesúela til bráðabirgða.

    01. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Mannréttindamál efst á baugi á fundum með ráðamönnum í Malaví

    Mannréttindamál og tvíhliða þróunarsamvinna voru í brennidepli á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með forseta og utanríkisráðherra Malaví í dag. Utanríkisráðherra opnaði í gær nýja fæðingardeild í Mangochi-bæ sem gerbyltir fæðingarþjónustu í héraðinu.

    01. feb. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Sigríður Snævarr sæmd þakkarviðurkenningu FKA

    Félag kvenna í atvinnulífinu sæmdi í gær Sigríði Snævarr sendiherra sérstakri þakkarviðurkenningu. Sigríður á að baki áratugalangan starfsferil í utanríkisþjónustunni og varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna sendiherrastöðu.

    29. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi, Menntun fyrir alla, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra kynnir sér árangur þróunarsamvinnu í Malaví

    Þróunarsamvinna, mannréttindamál og efnahagsmál á breiðum grunni voru efst á baugi á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með embættismönnum í Malaví í dag. Guðlaugur Þór heimsækir landið til að kynna sér árangurinn af þriggja áratuga langri þróunarsamvinnu og tekur þátt í opnun nýrrar fæðingarálmu héraðssjúkrahússins í Manochi.

    29. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Viljayfirlýsing um norðurslóðasamstarf undirrituð

    Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Audun Halvorsen, aðstoðarutanríkisráðherra Noregs, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framhald rannsóknasamstarfs á sviði norðurslóðafræða.

    22. jan. 2019Norrænt samstarf, Utanríkismál, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkisráðuneytið, Formennska Íslands 2019

    170 norrænir viðburðir á Íslandi á formannsári

    Formennska Íslands í Norrænu ráðherranefndinni var kynnt í Norræna húsinu síðdegis en hún hófst formlega um síðustu áramót. Yfirskrift formennskunnar er „Gagnvegir góðir“ og vísar hún til vináttu og samstarfs Norðurlandanna í fortíð og framtíð.

    19. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Kynningarfundir um Uppbyggingarsjóð EES framundan

    Í næstu viku verða haldnir sex kynningarfundir um Uppbyggingarsjóð EES fyrir fyrir íslenskar stofnanir, fyrirtæki og frjáls félagasamtök. Nýtt starfstímabil Uppbyggingarsjóðs EES fyrir tímabilið 2014-2021 er að hefjast.

    19. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Deiliskipulag öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli

    Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga er unnin lýsing fyrir deiliskipulagið.

    18. jan. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Flug og flugvellir, Embassy of Iceland in Tokyo, Samgöngur og fjarskipti, Alþjóðasamningar, Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Tókýó, Sendiskrifstofa, Heimasendiherrar

    Samkomulag við japönsk yfirvöld greiðir fyrir beinum flugsamgöngum

    Á fundi sendinefndar utanríkis- og samgönguráðuneytis við japönsk samgönguyfirvöld náðist samkomulag sem greiðir fyrir beinu áætlunar- og leiguflugi milli Íslands og Japans.

    15. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Hjálparstarf, Fjölþjóðastofnanir

    Tæpar 120 milljónir króna til að bólusetja börn í Malaví

    Hundruð þúsunda barna í Malaví verða bólusett gegn öllum helstu banvænum sjúkdómum eftir að íslensk stjórnvöld ákváðu að styrkja GAVI samtökin, alþjóðasamtök um bólusetningar barna, um tæpar 120 milljónir króna eða um eina milljón Bandaríkjadala, til að herða á bólusetningum malavískra barna. Framlagið verður nýtt á næstu þremur árum, að því er segir í sameiginlegri fréttatilkynningu frá GAVI og utanríkisráðuneytinu.

    14. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Norðurslóðir í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Finnlands

    Tvíhliða samskipti Íslands og Finnlands, málefni norðurslóða, Norðurlandasamstarfið, Evrópumál og öryggis- og varnarmál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, á fundi þeirra fyrr í dag sem fram fór á Síldarminjasafninu á Siglufirði. Soini, sem er staddur hér á landi í vinnuheimsókn, kynnti sér jafnframt atvinnulíf og starfsemi fyrirtækja á Tröllaskaga.

    07. jan. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með Mike Pompeo

    Ýmis tvíhliða málefni á borð við viðskipti, fríverslun, öryggis- og varnarmál og norðurslóðamál voru til umræðu á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Michael Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í dag. Ráðherrarnir samþykktu í lok fundar sameiginlega yfirlýsingu um samstarf ríkjanna.

    20. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Evrópusamvinna, Sendiráð Íslands í London, Utanríkismál

    Samningaviðræðum vegna útgöngumála Breta lokið

    Samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu er lokið og hafa drög að samningnum verið birt.

    18. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Ísland undirritar fjóra loftferðasamninga

    Nýir möguleikar opnuðust fyrir íslenska flugrekendur í síðastliðinni viku á árlegri ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar þegar samninganefnd Íslands undirritaði loftferðasamninga við fjögur ríki.

    18. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland efst tíunda árið í röð

    Tíunda árið í röð trónir Ísland á toppnum á lista Alþjóðaefnhagsráðsins (World Economic Forum) yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest. Listinn var birtur í morgun og næst á eftir Íslandi eru Noregur, Svíþjóð og Finnland. Framfarir eru hægar og bendir niðurstaðan til þess að það muni taka 108 ár að ná fullu jafnrétti karla og kvenna í heiminum. Úttektin nær til velflestra landa og leggur mat á jafnrétti kynja í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigði. Í kynningu á niðurstöðum er sérstaklega fjallað um hvað ræður góðri frammistöðu Íslendinga á þessu sviði.

    13. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Ísland, Noregur og ESB samstíga um markmið í loftslagsmálum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í dag með Miguel Arias Cañete, framkvæmdastjóra loftslagsmála hjá ESB og Ola Elvestuen, umhverfisráðherra Noregs, á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Katowice í Póllandi. Þar var farið yfir stöðu mála varðandi samvinnu í loftslagsmálum og drög að samkomulagi sem nú liggja fyrir milli Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um sameiginlega framkvæmd 30 ríkja á markmiðum Parísarsamningsins til 2030.

    10. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Viðburðir í tilefni sjötíu ára afmælis mannréttindayfirlýsingarinnar

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra áréttaði algildi mannréttinda þegar hann ávarpaði ráðstefnu í Háskóla Íslands vegna sjötíu ára afmælis mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Samstarfssamningur við Mannréttindaskrifstofu Íslands var undirritaður í utanríkisráðuneytinu í dag.

    08. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Sendiráð Íslands í Nýju Delhi, Sendiskrifstofa

    Fundur utanríkisráðherra Íslands og Indlands

    Fríverslun, loftslagsmál og alþjóðamál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Sushma Swaraj, utanríkisráðherra Indlands sem haldinn var í Nýju Delí fyrr í dag.

    07. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Ferðaþjónusta, Orka, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Nýju Delhi, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra í opinberri heimsókn á Indlandi

    Tækifæri á sviði orkumála og ferðaþjónustu var á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson ræddi við indverska ráðamenn á fundum í Nýju-Delí í dag. Opinber Indlandsheimsókn utanríkisráðherra ásamt viðskiptasendinefnd hófst í dag.

    07. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland tekur þátt í alþjóðasamþykkt um farendur

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að Ísland tæki þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga. Gerðir verða ákveðnir fyrirvarar við samþykktina þar sem túlkun Íslands verður áréttuð, í samræmi við það sem helstu grannríki gera.

    05. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á fundi Atlantshafsbandalagsins

    Samstarfið yfir Atlantshafið, staða mála í Úkraínu, afvopnunarmál og málefni vestanverðs Balkanskaga voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk nú undir hádegi. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sat fundinn.

    04. des. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Ísland kosið til varaformennsku í mannréttindaráðinu

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur kosið Ísland til að fara með embætti varaforseta ráðsins. Fastafulltrúi Íslands, stýrir því starfi mannréttindaráðsins á næsta ári með forseta þess.

    30. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnt að sameiginlegri framkvæmd á Parísarmarkmiðum

    Drög að samkomulagi liggja fyrir milli Íslands og Noregs annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar um sameiginlega framkvæmd á markmiðum Parísarsamningsins í loftslagsmálum til 2030.

    30. nóv. 2018Utanríkisráðuneytið

    Fjöldi viðburða í sendiskrifstofum vegna fullveldisafmælis

    Hátíðarhöld vegna eitt hundrað ára fullveldisafmælis Íslands ná hápunkti á morgun, 1. desember, með fullveldishátíð í Reykjavík. Þessum miklu tímamótum hefur verið fagnað víða um lönd að undanförnu, meðal annars í öllum sendiskrifstofum Íslands þar sem efnt hefur verið til margvíslegra viðburða síðastliðna vikur og mánuði af þessu tilefni.

    • First
    • Prev
    • 53
    • 54
    • 55
    • 56
    • 57
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband