07. apr. 2015Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr. 26/2014. Úrskurður kærunefndar útboðsmála
<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. desember 2014 kærði Fastus ehf. rammasamningsútboð varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala nr. 15585 vegna kaupa á hjartagangráðum, hjartabjargráðum, leiðslum o.fl. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa og Landspítala um val á tilboði í útboðinu, en til vara að þeim verði gert að bjóða út innkaupin í heild sinni að nýju. Þess er einnig krafist til vara að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila.</p>