Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 2751–2800 af 3871
Raða eftir:
27. jan. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

606/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

Kærendur kröfðust aðgangs að samningi Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís) við sjálfboðaliðasamtökin Seeds og samstarfsaðila þeirra, Concordia, um fræðsluferð fyrir fullorðið fólk. Annar kæranda var þátttakandi í ferðinni. Kærendur nutu því réttar til aðgangs á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Rannís bar því við að samningurinn væri trúnaðarmál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi stofnunina ekki hafa sýnt fram á að efni samningsins væri þess eðlis að leynt ætti að fara og var kærendum því veittur aðgangur að honum.

27. jan. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

605/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

Kærandi krafðist þess að Ríkisútvarpið ohf. veitti honum aðgang að sundurliðuðum starfslokasamningum og greiðslum tengdum þeim til tiltekinna stjórnenda RÚV árin 2013 og 2014. Samkvæmt 18. gr. laga um félagið nr. 23/2013 skyldu eldri upplýsingalög nr. 50/1996 gilda um starfsemi þess. Úrskurðarnefndin taldi að teknu tilliti til lögskýringargagna að um rétt kæranda til aðgangs færi eftir upplýsingalögum nr. 140/2012. Við mat á því hvaða gögnum kærandi átti rétt á aðgangi að þurfti að meta hverjir væru æðstu stjórnendur RÚV í skilningi 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin lagði til grundvallar að svonefndir framkvæmdastjórar félagsins féllu ekki undir hugtakið. Var því staðfest synjun RÚV á beiðni kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum.

12. jan. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla um efnahagsleg áhrif innflutningsbanns Rússlands á íslenska hagsmuni

Fyrirtækið Reykjavik Economics hefur unnið skýrslu um efnahagsleg áhrif innflutningsbanns Rússlands á íslenska hagsmuni. Var skýrslan unnin að beiðni samráðshóps stjórnvalda og hagsmunasamtaka á Rússlandsmarkaði.

08. jan. 2016Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Skýrsla stýrihóps um framkvæmd EES-samningsins: Þunginn í vinnu stjórnvalda verði færður framar í ferlið.

Stýrihópur um framkvæmd EES-samningsins hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sem kynnt var í ríkisstjórn í morgun. Þar kemur fram að meginþunginn í vinnu stjórnvalda sé við innleiðingu laga og reglna, en síður við að fylgjast með þegar reglurnar eru samdar á vettvangi Evrópusambandsins (ESB).

31. des. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Trúin á hið góða

Áramótagrein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2015.

31. des. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Áramótaávarp forsætisráðherra 2015

Áramótaávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, 31. desember 2015.

30. nóv. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra ávarpar leiðtogafund loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (COP21) hófst í dag með fundi þjóðarleiðtoga í París. Rauður þráður í ávörpum þjóðarleiðtoga var vilji til að ná metnaðarfullu framtíðarsamkomulagi í loftslagsmálum á Parísarfundinum, sem tæki gildi árið 2020 þegar öðru tímabili Kýótó bókunarinnar lýkur.

30. nóv. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

604/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

Óskað var endurupptöku tveggja mála úrskurðarnefndarinnar frá 2008 og 2015 ásamt því að óskað var eftir að því að úrskurðarnefndin aðstoðaði við að fá Borgarskjalasafn að gera leit að tilteknum gögnum. Síðarnefndu kröfunni var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál með vísan til hlutverks og valdsviðs nefndarinnar. Hvað varðar kröfu um endurupptöku úrskurða komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekkert væri fram komið sem benti til þess að þeir hefðu byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum. Þá hefðu atvik ekkibreyst svo verulega frá fyrri ákvarðanartöku að réttlætti endurupptöku málanna. Var þeirri kröfu því hafnað.

30. nóv. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

603/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

Kærandi kvartaði yfir að Vestmannaeyjabær hefði í engu sinnt beiðni sinni um aðgang að aðgang að samþykkt um hunda- og kattahald í Vestmannaeyjum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Vestmannaeyjabær hefði fallist á beiðni kæranda 25. febrúar 2015 enda þó bréf þess efnis hefði verið stílað á vitlaust heimilisfang. Var það hvorki talið fela í sér synjun né drátt á meðferð máls sem réttlætti kæru til úrskurðarnefndarinnar. Var málinu því vísað frá nefndinni.

30. nóv. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

602/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

Kvartað var yfir synjun Landsbankans á aðgangi að nánar tilgreindum upplýsingum. Kærandi byggði kröfu sína um aðgang að gögnum á að Landsbankinn væri í ríkiseigu. Landsbankinn synjaði á þeim grundvelli að upplýsingalög ættu ekki við um bankann. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að skv 2. mgr. 3. gr. upplýsingalaga sbr. auglýsingu nr. 600/2013 væri Landsbankinn undanþeginn ákvæðum upplýsingalaga.

30. nóv. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

601/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

Kvartað var yfir synjun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um aðgang að verklagsreglum um símahlustanir frá 2010, ódagsettum leiðbeiningum vegna sérstakra rannsóknarúrræða í LÖKE, þremur skýrslum innri endurskoðunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og skýrslum um framkvæmd símahlustana o.fl. Kærandi taldi að þau fælu í sér upplýsingar um almenna verkferla innan lögreglunnar og væri því ómögulegt að líta á að þau fælu í sér upplýsingar er varða öryggi ríkisins eða varnarmál í skilningi 1. tl. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin yfirfór gögnin og veitti aðgang að ýmsum fylgiskjölum sem innihéldu ekki upplýsingar sem leynt áttu að fara en að öðru leyti var synjun lögreglustjórans staðfest.

30. nóv. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

600/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

Kærandi krafðist þess að Borgarskjalasafn Reykjavíkur léti honum í té minnispunkta Barnahúss vegna skýrslu sem tekin var af dóttur hans ásamt skýrslu Barnahúss, vegna greiningar og meðferðar hennar. Jafnframt fór hann fram á aðgang að öllum gögnum umgengnismáls fyrir sýslumanni án yfirstrikana. Móðir fór með forræði stúlkunnar. Úrskurðarnefndin taldi kröfu um aðgang að öllum gögnum fyrir sýslumanni og barnaverndarnefnd ekki eiga undir sig þar sem kærandi væri aðili stjórnsýslumáls sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Hins vegar hafi Borgarskjalasafn skilgreint hugtakið foreldri of þröngt og því ekki tekið afstöðu til hugsanlegrar aðildar kæranda að málinu hvað varðar minnispunkta og skýrslu Barnahúss á réttum forsendum.…

12. nóv. 2015Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Efling millilandaflugs á landsbyggðinni

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið, að tillögu forsætisráðherra, að fela iðnaðar- og viðskiptaráðherra að hefja undirbúning að stofnun Markaðsþróunarsjóðs og Áfangastaðasjóðs með það að markmiði að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík.

27. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra í þemaumræðum á Norðurlandaráðsþingi

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í þemaumræðum á Norðurlandaráðsþingi í Hörpu, 27. október 2015.

18. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra heldur lokaerindi í Hringborði Norðurslóða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti í dag lokaerindi í Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið hefur verið í Hörpu um helgina, en um 2000 þátttakendur frá um 50 löndum sækja ráðstefnuna.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

599/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um starf fulltrúa á bæjarskrifstofu. Í umsögn bæjaryfirvalda kom fram að fyrirspurn kæranda hefði ekki borist. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í ljósi þess að kæran væri handskrifuð á sama blað og kærandi segði vera upphaflega gagnabeiðni væri vandséð að Vestmannaeyjabær hafi haft beiðnina undir höndum. Ekki gæti því verið um óhæfilegan drátt á meðferð málsins að ræða í skilningi 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 1. mgr. 17. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Kæru kæranda var því vísað frá.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

598/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

A kærði þá afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að fundargerð fundar bæjarstjórnar, að vísa á vefslóð þar sem fundargerðina var að finna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti ákvæði 1. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga og athugasemdir við þau í frumvarpi til laganna. Af athugasemdunum var talið mega álykta að 2. málsliður 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga yrði ekki túlkaður á þá leið að ákvæðið leggi þá skyldu á stjórnvöld að afhenda gögn á því formi sem aðili óskar eftir þegar þau eru þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. A kærði jafnframt afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að samningi bæjarins við meindýraeyði.…

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

597/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

Kvartað var yfir afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um störf. Í umsögn bæjaryfirvalda kom fram að beiðni kæranda hefði verið óljós og henni ekki svarað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti ákvæði upplýsingalaga og tók fram að aðilum sem falla undir lögin væri ekki í sjálfsvald sett hvort þeir svari beiðnum um aðgang að upplýsingum eftir lögunum. Beiðni kæranda var því vísað aftur til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar og lögmætrar afgreiðslu.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

596/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að samningi bæjarins um rekstur upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn. Bærinn afhenti kæranda samninginn undir rekstri upphaflega kærumálsins fyrir úrskurðarnefndinni með þeirri takmörkun að strikuð hafði verið út sú upphæð sem greidd var fyrir reksturinn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að útstrikuðu upplýsingarnar væru ekki þess eðlis að 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 gæti komið í veg fyrir aðgang kæranda að þeim. Þær væru ekki til þess fallnar að valda umræddu fyrirtæki tjóni. Með hliðsjón af hinum ríka upplýsingarétti almennings þegar um er að ræða ráðstöfun opinberra hagsmuna var fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum í heild sinni.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

595/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

A kærði meðferð Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að gögnum. Í umsögn bæjaryfirvalda kom fram að beiðnin hefði verið þess eðlis að ekki hefði verið unnt að svara henni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að stjórnvöldum væri ekki í sjálfsvald sett hvort þau svari beiðnum um aðgang að upplýsingum eftir upplýsingalögum nr. 140/2012 og vísaði málinu aftur til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar og lögmætrar afgreiðslu.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

594/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á beiðni um upplýsingar um leiguverð á fermetra í félagslegu húsnæði og þjónustuíbúðum fyrir aldraða í sveitarfélaginu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa þá fullyrðingu bæjaryfirvalda að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi. Beiðni kæranda var því vísað frá.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

593/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

A kærði ákvörðun Samgöngustofu um að synja honum um aðgang að gögnum varðandi atvinnuleyfi til leigubílstjóra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti ákvæði 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og tók fram að undir ákvæðið falli einna helst upplýsingar um leyfisumsóknir sem taka til afar persónulegra málefna umsækjandans. Sömu sjónarmið ættu ekki við um opinbera leyfisveitingu til að starfa sem leigubílstjóri. Lagt var fyrir Samgöngustofu að veita kæranda aðgang að umbeðnum upplýsingum að undanskildum upplýsingum um kennitölur viðkomandi einstaklinga, enda gildi sérregla 10. gr. laga nr. 77/2000 um notkun þeirra.

01. okt. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

592/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

A kærði meðferð Fjármálaeftirlitsins á beiðni nokkurra erlendra tryggingafélaga um aðgang að gögnum sem tengdust LBI hf. Fjármálaeftirlitið hafði vísað frá beiðni um aðgang að gögnum undir þremur liðum gagnabeiðni kærenda, þar sem þau væru ekki fyrirliggjandi hjá stjórnvaldinu. Kærendur gerðu ekki athugasemdir við ákvörðunina hvað einn liðinn varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa að gögn undir eftirstandandi liðunum tveimur væru ekki fyrirliggjandi hjá stjórnvaldinu og staðfesti hina kærðu ákvörðun að þessu leyti.

Þá synjaði FME kærendum um aðgang að gögnum undir þremur liðum gagnabeiðni þeirra á grundvelli 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, 58. gr. laga nr. 161/2002 og 9. gr. upplýsingalaga.…

27. sep. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á leiðtogafundi Beijing+20

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ávarpaði leiðtogafund aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í New York, sem boðað var til vegna 20 ára afmælis Peking yfirlýsingar og framkvæmdaáætlunar um réttindi og valdeflingu kvenna.

08. sep. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra við upphaf 145. löggjafarþings

Stefnuræða forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, við upphaf 145. löggjafarþings, 8. september 2015.

28. ágú. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

591/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

A kærði þá ákvörðun ríkisskattstjóra að synja um aðgang að upplýsingum um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Innheimtustofnunar sveitarfélaga á tilteknu tímabili. Ríkisskattstjóri byggði synjunina á 9. gr. upplýsingalaga og 1. mgr. 44. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti forsögu síðarnefnda ákvæðisins og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri unnt að túlka ákvæðið þannig að það mælti fyrir um sérstaka þagnarskyldu um umbeðnar upplýsingar. Þar sem engar þagnarskyldar upplýsingar voru taldar koma fyrir í yfirliti ríkisskattstjóra um endurgreiddan virðisaukaskatt var fallist á rétt kæranda til aðgangs að því.

28. ágú. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

590/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

A kærði ákvörðun Borgarskjalasafns þar sem synjað var um aðgang að gögnum í vörslu safnsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að hefðu að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra í skilningi 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2014 og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og staðfesti hina kærðu ákvörðun.

28. ágú. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

589/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

A kærði ákvörðun Borgarskjalasafns þar sem synjað var um aðgang að gögnum í vörslu safnsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að hefðu að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra í skilningi 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2014 og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og staðfesti hina kærðu ákvörðun.

28. ágú. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

588/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum tólf einstaklinga fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Synjun staðfest.

31. júl. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

587/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015

Með úrskurði nr. A-493/2013 felldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál ákvörðun landlæknis um synjun á beiðni A um aðgang að gögnum úr gildi og lagði fyrir embættið að taka málið til nýrrar meðferðar. Í kjölfarið tók embættið nýja ákvörðun sem A felldi sig ekki við. Annars vegar taldi A að landlæknir hefði haldið eftir gögnum umfram afhendingarskyldu, en landlæknir bar fyrir sig að þau væru háð þagnarskyldu eftir 8. og 9. gr. upplýsingalaga. Hins vegar taldi A að landlækni hefði verið óheimilt að gera tilteknar breytingar á skrám úr tölvukerfi embættisins áður en þær voru afhentar á geisladiski. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál sýndi landlæknir ekki fram á nauðsyn breytinga á rafrænu sniði umbeðinna gagna, auk þess sem rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar væri ábótavant.…

31. júl. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

586/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015

Isavia ohf. krafðist þess aðallega að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál nefndarinnar nr. ÚNU 14100011, sem lyktaði með úrskurði nr. 579/2015. Til vara fór fyrirtækið þess á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki vera fyrir hendi lagaskilyrði til að verða við kröfum fyrirtækisins.

31. júl. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

585/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015

Isavia ohf. krafðist þess aðallega að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál nefndarinnar nr. ÚNU 15020004, sem lyktaði með úrskurði nr. 580/2015. Til vara fór fyrirtækið þess á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki vera fyrir hendi lagaskilyrði til að verða við kröfum fyrirtækisins.

24. jún. 2015Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Stefna í almannavarna- og öryggismálum samþykkt

Stefna í almannavarna- og öryggismálum ríkisins 2015–2017 var samþykkt í morgun á fundi almannavarna- og öryggismálaráðs og í framhaldinu skrifaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður ráðsins, undir stefnuskjalið.

17. jún. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2015

Ávarp forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, á Austurvelli 17. júní 2015.

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

584/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

A kærði synjun Reykjavíkurborgar á beiðni um aðgang að leyfissamningum um tiltekinn hugbúnað og reikningum tengdum þeim. Kærandi hafði fengið aðgang að umbeðnum gögnum en upplýsingar um einingarverð og magntölur höfðu verið afmáðar af þeim með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Heildarfjárhæðir höfðu ekki verið afmáðar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skoðaði umbeðin gögn með tilliti til hagsmuna viðkomandi félaga af því að leynd væri haldið um þessi gögn annars vegar og hins vegar þeirra almannahagsmuna að upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna séu aðgengilegar almenningi.…

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

583/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

B kærði synjun embættis ríkislögreglustjóra á beiðni um upplýsingar um hvaða einstaklingum hefur verið veitt leyfi til að kalla sig byssusmið og á hvaða forsendum. Í umsögn ríkislögreglustjóra kom fram að embætti ríkislögreglustjóra hafi veitt einum einstaklingi slíkt leyfi. Ríkislögreglustjóri kvaðst hafa synjað kæranda um aðgang að upplýsingum um nafn þess einstaklings sem hlotið hefði leyfið, á þeim forsendum að kærandi væri ekki aðili að máli í skilningi 15. gr. stjórnsýslulaga. Jafnframt teldi embættið að 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 ætti við þar sem um einkamálefni einstaklings væri að ræða. Úrskurðarnefndin tók fram að upplýsingalög nr. 140/2012 gilda ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga.…

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

582/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

Brit Insurance Limited, Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., QBE International Insurance Ltd. og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um gögn í í 23 tölusettum liðum. Seðlabanki Íslands tók ákvörðun um að synja kærendum um aðgang að gögnum undir öllum liðunum með bréfi dags. 14. janúar 2014, að frátöldum liðum 2, 7, 8, 14 og 19. Um þá liði segir í ákvörðun Seðlabankans að gögn undir þeim hafi ekki fundist hjá bankanum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga þá staðhæfingu í efa. Því var ekki talin liggja fyrir synjun stjórnvaldsins á afhendingu gagna undir þessum liðum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sbr. 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 15. gr.…

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

579/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

Kaffitár ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin vísaði til athugasemda í frumvarpi til upplýsingalaga um 3. mgr. 14. gr. um að vega skuli og meta gagnstæða hagsmuni þess sem upplýsinga óskar og annarra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga hagsmuni af því að tilteknum atriðum sé haldið leyndum.…

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

580/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

Gleraugnamiðstöðin ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin vísaði til athugasemda í frumvarpi til upplýsingalaga um 3. mgr. 14. gr. um að vega skuli og meta gagnstæða hagsmuni þess sem upplýsinga óskar og annarra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga hagsmuni af því að tilteknum atriðum sé haldið leyndum.…

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

581/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

A kærði afstöðu Sparisjóðs Vestmannaeyja til gagnabeiðna sinna til sjóðsins. Óskað var eftir upplýsingum um nöfn umsækjenda um starf sparisjóðsstjóra, starfslokasamning fráfarandi sparisjóðsstjóra, dagsetningu stjórnarfundar þar sem nýr sparisjóðsstjóri var ráðinn, stofnfjáreigendur sjóðsins og afkomu dóttursjóða. Úrskurðarnefndin vísaði til ákvæðis 2. mgr. 3. gr. upplýsingalaga. Á grundvelli þess hefði ráðherra birt tvær auglýsingar um undanþágur lögaðila frá upplýsingalögum. Sparisjóður Vestmanneyja og Landsbankinn hf. væru báðir meðal þeirra lögaðila sem þar eru nefndir. Upplýsingalög nr. 140/2012 tækju því ekki til þeirra.…

15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

578/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

Drífa ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin vísaði til athugasemda í frumvarpi til upplýsingalaga um 3. mgr. 14. gr. um að vega skuli og meta gagnstæða hagsmuni þess sem upplýsinga óskar og annarra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga hagsmuni af því að tilteknum atriðum sé haldið leyndum.…

07. maí 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Um stöðu Íslands á norðurslóðum

Ræða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra um stöðu Íslands á norðurslóðum, á ráðstefnu í St. Gallen háskóla í Sviss 7. maí 2015.

16. apr. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins fimmtudaginn 16. apríl 2015 í Hörpu.

31. mar. 2015Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Afhenti skýrslu um endurbætur á peningakerfinu

Frosti Sigurjónsson, alþingismaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, skilaði í dag skýrslu sinni til forsætisráðherra um endurbætur á peningakerfinu.

30. mar. 2015Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

60% tilkynna ekki verðhækkanir

Sérfræðinganefnd á vegum Stjórnarráðsins leggur til, að seljendur verði skyldaðir til að tilkynna verðhækkanir á samningsbundinni vöru og þjónustu með góðum fyrirvara enda séu sjálfvirkar verðhækkanir oft framkvæmdar án þess að raunverulegur kostnaðarauki búi að baki.

23. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

577/2015. Úrskurður frá 23. mars 2015

A gerði þá kröfu fyrir hönd Háskóla Íslands að úrskurðarnefnd um upplýsingamál taki upp að nýju mál nr. ÚNU 13120003 sem lyktaði með úrskurði nr. 566/2015 á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt væru forsendur til að afturkalla úrskurðinn. Loks var þess óskað að úrskurðarnefndin frestaði réttaráhrifum úrskurðarins á meðan málið yrði borið undir dómstóla. Úrskurðarnefndin féllst ekki á röksemdir kæranda er lutu að því að ekki hefði verið tekin afstaða til þess hvort upplýsingar í umbeðinni skýrslu vörðuðu B umfram aðra í skilningi 14. gr. upplýsingalaga. Þá var heldur ekki fallist á það með kæranda að nefndin hefði ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sem á henni hvíldi skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.…

23. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

576/2015. Úrskurður frá 23. mars 2015

A kærði þá ákvörðun Lyfjastofnunar Íslands að synja honum um aðgang að vísindarannsóknaniðurstöðum vegna markaðsleyfis á bóluefnum og/eða fyrir notkun á innihaldsefnum í bóluefnum. Upphafleg synjun stofnunarinnar byggðist á því að beiðni kæranda varðaði ekki stjórnsýslumál sem kærandi var aðili að. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að Lyfjastofnun hefði borið að afgreiða beiðnina á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012. Jafnvel þó afgreiðsla stofnunarinnar hafi verið ófullnægjandi að þessu leyti kom fram undir rekstri málsins að stofnunin hafi ekki í vörslum sínum þau gögn sem kærandi krafðist aðgangs að. Málinu var því vísað frá nefndinni.

18. mar. 2015Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Forsætisráðuneytið

Stöðuskýrsla um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 (2015)

mars 2015 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Stöðuskýrsla um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 (2015) Stöðuskýrsla um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2014-2016 (2015)

02. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Eldgosi í Holuhrauni lokið: Fagmennska og samhugur einkenndi viðbrögðin

Grein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sem hann ritar í tilefni af goslokunum.

02. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

575/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

A gerði þá kröfu f.h. Sorpu bs. að úrskurðarnefnd um upplýsingamál frestaði réttaráhrifum úrskurðar nr. 570/2015 á meðan málið yrði borið undir dómstóla. Krafan byggði á því að upplýsingarnar væru bundnar trúnaði samkvæmt ákvæði í útboðslýsingu á grundvelli 1. mgr. 17. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að heimildarákvæði 24. gr. upplýsingalaga væri undantekning sem aðeins yrði beitt þegar sérstaklega stendur á. Ákvæðið eigi fyrst og fremst við þegar í húfi eru mikilvægir hagsmunir sem geta verið skertir með óbætanlegum hætti ef aðgangur yrði veittur að umbeðnum gögnum. Að mati nefndarinnar benti ekkert til þess að slíkir hagsmunir væri í húfi og kröfu kæranda því hafnað.

• First
• Prev
• 54
• 55
• 56
• 57
• 58
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband