Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 2801–2850 af 3871
Raða eftir:
02. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

574/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

A kærði, f.h. Tryggingamiðstöðvarinnar hf., ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að hafna beiðni félagsins um aðgang að gögnum um Glitni hf. FME bar fyrir sig 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, en kærandi taldi 5. mgr. sömu greinar leiða til þess að FME bæri að afhenda umbeðin gögn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál túlkaði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 með þeim hætti að ákvæðið heimilaði miðlun gagna fyrir dómi innan ramma laga um meðferð einkamála, en gæti ekki vikið sérstakri þagnarskyldu 1. mgr. þegar um er að ræða beiðni um afhendingu gagna á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi umbeðin gögn hafa að geyma upplýsingar um viðskipti og rekstur eftirlitsskylds aðila í skilningi 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 og staðfesti því synjun FME á beiðni kæranda um aðgang að þeim.

02. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

573/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

A kærði, f.h. Tryggingamiðstöðvarinnar hf., ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að hafna beiðni félagsins um aðgang að gögnum um Glitni hf. FME bar fyrir sig 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, en kærandi taldi 5. mgr. sömu greinar leiða til þess að FME bæri að afhenda umbeðin gögn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál túlkaði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 með þeim hætti að ákvæðið heimilaði miðlun gagna fyrir dómi innan ramma laga um meðferð einkamála, en gæti ekki vikið sérstakri þagnarskyldu 1. mgr. þegar um er að ræða beiðni um afhendingu gagna á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi umbeðin gögn hafa að geyma upplýsingar um viðskipti og rekstur eftirlitsskylds aðila í skilningi 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998.…

02. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

572/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

A kvartaði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að yfirliti um starfsleyfi lánastofnana frá 19. mars 2007. Af hálfu FME kom fram að skjalið fyndist ekki hjá stofnuninni þrátt fyrir víðtæka leit. Undir meðferð málsins hjá nefndinni kom fram af hálfu kæranda að hann hefði aflað yfirlitsins sjálfur og komið því á framfæri við FME. Því væru engar hindranir til staðar til að aðgangur yrði veittur. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þegar umbeðin gögn eru ekki til staðar hjá stjórnvaldi telst ekki vera um synjun að ræða í skilningi 20. gr. upplýsingalaga. Þar sem umbeðið gagn var ekki til hjá FME þegar beiðni kæranda barst stofnuninni var málinu vísað frá nefndinni.

02. mar. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

571/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

A kærði afgreiðslu Kópavogsbæjar á beiðni um svör við tilteknum spurningum. Spurningarnar lutu að bótagreiðslum sveitarfélagsins til nafngreindra einstaklinga vegna skerðingar á lóð við Vatnsendablett. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál lagði til grundvallar að beiðni kæranda næði ekki til þess að fá aðgang að fyrirliggjandi gögnum í samræmi við ákvæði 5. og 15. gr. upplýsingalaga. Kærunni var því vísað frá.

12. feb. 2015Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á Viðskiptaþingi 2015

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands 12. febrúar 2015.

26. jan. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

570/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

Íslenska gámafélagið hf. kærði synjun Sorpu bs. á beiðni hlutafélagsins um að fá aðgang að gögnum varðandi útboð á verki byggðasamlagsins. Til skoðunar kom hvort niðurstaða Sorpu bs. ætti sér stoð í ákvæði um takmörkun aðgangs vegna hagsmuna annarra, einkum hvort takmarka bæri aðgang að upplýsingum um einingaverð. Úrskurðarnefndin fór yfir gögnin en taldi ekki verða ráðið að hagsmunum annarra væri hætta búin þótt kæranda yrði veittur umbeðinn aðgangur. Var því ákveðið að Sorpu bs. beri að afhenda kæranda útboðsgögn Efnamóttökunnar hf. vegna útboðs í verkið „Viðtaka spilliefna af endurvinnslustöðvum 2014-2018“.

26. jan. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

569/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

Félag atvinnurekenda kærði synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni félagsins um gögn, m.a. gögn tengd ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara. Ráðuneytið taldi kærufrest félagsins vera útrunninn, og að ekki væru skilyrði til að verða við kröfunni. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það. Því var tekin efnisleg afstaða til málsins. Af hálfu félagsins hafði í fyrsta lagi verið vísað til réttar sem það hefði samkvæmt stjórnsýslulögum, en nefndin kvað það ekki heyra undir sitt valdsvið að skera úr um hvort það ætti rétt samkvæmt þeim lögum. Félagið hafði í öðru lagi vísað til þess að það nyti réttar skv. 14. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi svo ekki vera. Í þriðja lagi hafði það vísað til ákvæða um rétt almennings til aðgangs að gögnum.…

26. jan. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

568/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

A kærði synjun forsætisráðuneytisins á beiðni hans um að fá aðgang að tillögum ráðgjafahóps um aðferðir við losun fjármagnshafta. Ráðuneytið hafði í fyrsta lagi vísað til þess að aðgangsréttur almennings tæki ekki til fundargerða ríkisráðs og ríkisstjórnar, minnisgreina á ráðherrafundum og gagna sem tekin hefðu verið saman fyrir slíka fundi. Fyrir lá hins vegar að þessu gagni hafði verið dreift til utanaðkomandi aðila og því taldi úrskurðarnefndin ekki hafa verið heimilt að synja um aðgang á þessum grundvelli. Ráðuneytið hafði í öðru lagi vísað til þess að takmarka yrði aðganginn vegna almannahagsmuna og sjónarmiða um öryggi og sjálfstæði ríkisins, en nefndin taldi þessi sjónarmið, eins og þau voru sett fram, ekki heldur geta stutt synjun ráðuneytisins.…

26. jan. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

567/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

A kærði, f.h. Samtaka meðlagsgreiðenda, synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni samtakanna um að fá upplýsingar um a) fjölda öryrkja sem greiða meðlög, b) um hve margir meðlagsgreiðndur séu með fulla örorku eða á endurhæfingalífeyri og c) um hve mikið sé um millifærslu barnalífeyris til meðlagsþega. Af hálfu TR kom fram að þessar upplýsingar lægju ekki fyrir nema á ófullgerðu skjali, er telja yrði til vinnugagns. Úrskurðarnefndin skoðaði skjalið, féllst á að um vinnugagn væri að ræða og staðfesti synjunina.

26. jan. 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

566/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

A kærði ákvörðun Háskóla Íslands um að veita honum ekki aðgang að skýrslu sem hafði verið unnin af sjálfstætt starfandi sérfræðingum utan skólans, þ.e. skýrslu um innra starfsumhverfi viðskiptafræðideildar. Því hafði í fyrsta lagi verið haldið fram að um vinnugagn væri að ræða, en úrskurðarnefndin féllst ekki á það. Í öðru lagi hafði því verið haldið fram að skýrslan hefði að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra en kæranda. Úrskurðarnefndin athugaði skýrsluna. Hún taldi að almennt væri ekki, af þeim upplýsingum einum sem þar koma fram, þ.e. án þess að viðbótarupplýsingar kæmu til, unnt að bera kennsl á eða rekja einstök efnisatriði til tiltekinna nafngreindra einstaklinga, jafnvel þótt einhverjir staðkunnugir kynnu að geta getið sér til um slík tengsl.…

31. des. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Áramótaávarp forsætisráðherra 2014

Áramótaávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, 31. desember 2014.

31. des. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Áramót

Áramótagrein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra í Morgunblaðinu 31. desember 2014.

23. des. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

565/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

A gerði kröfu um endurupptöku máls og endurskoðun úrskurðar í því, en málinu hafði lokið með vísun til þess að a) kvörtun yfir að erindi hefði ekki verið svarað væri ekki á rökum reist og b) að kærufrestur væri runninn út. Við umfjöllun um endurupptökukröfuna leit nefndin til þess að þótt hún hefði, í tilteknu bréfi til kæranda, mátt vera skýrari varðandi kærufrestsinn hafi það ekki valdið A nokkrum réttarspjöllum, og gæti auk þess ekki vikið til hliðar skýru lagaákvæði um frestinn. Þá hefði ekkert komið fram um að úrskurðurinn  hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að á honum væru verulegir annmarkar að lögum. Með vísan til þess varð að hafna kröfunni.

23. des. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

564/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

A kærði afgreiðslu forsætisráðuneytisins á beiðni hennar um aðgang að minnisblaði ráðherranefndar um ríkisfjármál, sem hafi verið lagt fram á ráðherrafundi. Að sögn ráðuneytisins hafði hið umbeðna gagn verið tekið saman fyrir nefnd ráðherra eða ráðherrafund. Úrskurðarnefndin taldi sig ekki hafa forsendur til að draga það í efa. Varð því að staðfesta ákvörðun ráðuneytisins um að synja beiðni kæranda.

23. des. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

563/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

D kærði, f.h. félagsins Nemendur & Trú, afgreiðslu Reykjavíkurborgar  á beiðni félagsins um aðgang að umsögnum um reynslu af reglum um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar við trúar- og lífsskoðunarfélög. Nefndin taldi þessar umsagnir hafa að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar og, fyrir utan eina umsögn sem viðkomandi einstaklingur hafði samþykkt að yrði miðlað, var ákveðið að ekki bæri að miðla þeim í heild. Þó skyldi miðla þeim eftir að persónuauðkenni (s.s. nafn/netfang/símnúmer) hefðu verið afmáð.

23. des. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

562/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

A kærði, f.h. Tryggingamiðstöðvarinnar hf., ákvörðun Fjármálaeftirlitsins, um að hafna beiðni félagsins um aðgang að gögnum um Glitni hf. FME bar fyrir sig 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998. Nefndin taldi það vera sérstakt þagnarskylduákvæði og, að með óviðkomandi aðilum væri átt við aðila sem ekki væri gert ráð fyrir í lögum að FME miðlaði upplýsingum til. Það ætti við um kæranda og að Glitnir nyti réttarverndar samkvæmt ákvæðinu. Var því staðfest synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni Tryggingamiðstöðvarinnar hf. um aðgang að afritum af gögnum er tengjast rannsókn og athugasemdum Fjármálaeftirlitsins vegna CAMELS mats á starfsemi Glitnis

23. des. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

561/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

A kærði synjun Ríkisskattstjóra (RSK) á beiðni hans um gögn um innsendan fjármagnstekjuskatt frá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Af hálfu RSK var vísað til 1. mgr. 117. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi það vera ákvæði um sérstaka þagnarskyldu og þ.a.l. féllu gögnin ekki undir upplýsingalög. Var málinu vísað frá.

16. des. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Lýðheilsa – Heilsa í allar stefnur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, flutti ávarp á málþing um lýðheilsumál í Safnahúsinu við Hverfisgötu þriðjudaginn 16. desember 2014.

20. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

560/2014. Úrskurður frá 17. nóvember 2014

Félag sjúkraþjálfara kærði afgreiðslu landlæknis á beiðni þess um upplýsingar um þá sem höfðu starfað fyrir embættið á tilteknu tímabili. Nefndin taldi kæranda hafa átt rétt á upplýsingum um föst launakjör starfsmanna og æðstu stjórnenda og að landlækni hafi verið skylt að veita honum upplýsingar um nöfn og starfssvið þeirra og um föst launakjör. Ekki væri þó skylt að veita upplýsingar um menntun starfsmannanna eða stéttarfélagsaðild. Það varð því niðurstaða nefndarinnar að leggja fyrir landlækni að veita kæranda aðgang að upplýsingum um nöfn þeirra starfsmanna sem störfuðu hjá embættinu á árunum 2011, 2012 og 2013 - og um föst launakjör þeirra og starfssvið.

20. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

559/2014. Úrskurður frá 17. nóvember 2014

A kærði meðferð skattrannsóknarstjóra á beiðni hans um aðgang að lista frá breskum yfirvöldum - þ.e. lista yfir tíu Íslendinga sem tengdust svokölluðum skattaskjólum. Mun listinn upphaflega hafa komið frá ICIJ, sem er alþjóðlegur samstarfsvettvangur rannsóknarblaðamanna, en það voru bresk skattyfirvöld sem létu skattrannsóknarstjóra fá hann. Það gerðu þau á grundvelli 25. gr. þágildandi tvísköttunarsamning Íslands og Bretlands. Nefndin taldi þá grein samningsins fela í að trúnaður hvíldi á upplýsingunum, enda yrði að líta á samninginn sem þjóðréttarsamning í skilningi 2. ml. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Því giltu lögin ekki um umrædd gögn. Af þeirri ástæðu varð að vísa málinu frá nefndinni.

20. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

558/2014. Úrskurður frá 17. nóvember 2014

A kærði synjun Seðlabanka Íslands á að verða við beiðni hans um aðgang að greiningu bankans á greiðslujöfnuði Íslands. Bankinn hafði synjað kæranda um aðgang að greiningunni, m.a. á grundvelli lagaákvæða um þagnarskyldu. Nefndin féllst á að þagnarskyldan ætti við. Þá taldi hún, að með vísan til þess hversu víða í gögnunum væru upplýsingar undanþegnar upplýsingarétti, að ekki væru forsendur til að leggja fyrir bankann að veita kæranda aðgang að hluta þeirra.

19. nóv. 2014Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið, Lagasetning, Lög og réttur

Áfangaskýrsla um bætta starfshætti eftirlitsstofnana

Forsætisráðherra skipaði í júní sl. vinnuhóp sem falið var að fara yfir lög, reglur og stjórnsýslu mikilvægra eftirlitsstofnana og meta hvernig viðmið um vandað regluverk og stjórnsýslu eru uppfyllt, með einföldun, samræmi og skilvirkni að markmiði.

14. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Rafbílavæðing á Íslandi

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á ráðstefnu um rafbílavæðingu á Íslandi, fimmtudaginn 13. nóvember 2014.

10. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Þjóðhátíðardagur Þýskalands og tuttugu ár frá falli Berlínarmúrsins

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í tilefni af þjóðhátíðardegi Þýskalands og því að tuttugu ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins, haldin í Háskólabíói 10. nóvember 2014.

10. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Leiðréttingin í höfn

„Í dag verða niðurstöður leiðréttingar á verðtryggðum húsnæðislánum kynntar og á morgun verða niðurstöðurnar birtar 69 þúsund heimilum á heimasíðu verkefnisins, leiðrétting.is. Þetta er gleðistund fyrir heimilin í landinu.“ segir meðal annars í grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem birtist í Morgunblaðinu 10. nóvember 2014.

31. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra heldur opnunarávarp í Hringborði norðurslóða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti í dag opnunarerindi í Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið er í Hörpu um helgina, en um 1.400 þátttakendur frá um 40 löndum sækja ráðstefnuna.

28. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í þemaumræðu á 66. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi, þriðjudaginn 28. október 2014.

24. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp á málþingi Jafnréttissjóðs, Kyn og fræði - ný þekking verður til

Ávarp forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á málþingi Jafnréttissjóðs Kyn og fræði - ný þekking verður til sem haldið var á kvennafrídeginum 24. október á Grand Hótel Reykjavík. Þar afhenti forsætisráðherra styrki til rannsókna á sviði jafnréttismála úr Jafnréttissjóði.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

542/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

A kærði þá ákvörðun landlæknis að færa tiltekin gögn, sem hann hafði fallist á að afhenda kæranda á stafrænu formi, á annað snið en þau voru þá á. Það gerði hann í því skyni að læsa þeim,þ.e. gera þau óbreytanleg. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit m.a. lagaákvæða endurnot opinberra upplýsinga og féllst ekki á að landlækni hafi verið heimilt að breyta sniði gagnanna svo „tryggt væri að ekki væri unnt að breyta þeim eftir afhendingu“.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

541/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

Í framhaldi af ákvörðun úrskurðarnefndar um upplýsingamál, um að endurupptaka mál varðandi kæru [A] yfir þeirri ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að synja um aðgang að skýrslu sem ber heitið: „Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011“ var málið tekið til úrskurðar að nýju. Eftir nýja yfirferð á efni skýrslunnar varð það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að veita bæri aðgang að henni, en með þeim takmörkunum sem taldar eru upp í úrskurðarorði.  Í úrskurðinum er ekki tekin afstaða til þess hluta skýrslunnar sem kærandi hafði þegar fengið í hendur (um uppl. sem höfðu birst í fjölmiðlum).

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

540/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

Mál þetta varðaði tvær kærur. Sú fyrri laut að því að FME hafi ekki svarað beiðni A um gögn. Við meðferð málsins kom í ljós að beiðninni hafði verið svarað, þ.e. með ákvörðun dags. 4. júlí. Því var sú kæra ekki talin eiga við rök að styðjast og var henni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Sú seinni laut að efni ákvörðunarinnar frá 4. júlí. Þar sem sú kæra hafði ekki borist fyrr en að liðnum kærufresti var henni einnig vísað frá.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

539/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

Tryggingamiðstöðin hf. kærði þá ákvörðun FME að synja félaginu um aðgang að upplýsingum um Glitni. Gagnabeiðnin tengdist málaferlum vegna stjórnendatryggingar, sem Glitnir keypti fyrir stjórnendur bankans vorið 2008, en kærandi hafði hafnað gildi tryggingarinnar, m.a.  vegna meints brots á reglum um upplýsingaskyldu. Úrskurðarnefndin taldi umrædd gögn lúta reglum um sérstaka þagnarskyldu, en sú skylda færðist yfir á FME vegna upplýsinga sem það tæki við, og staðfesti því synjun FME um að veita aðgang að gögnunum.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

538/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

B kærði þá ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga að synja honum um afrit af fundargerðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þótt fundargerð teldist vera vinnuskjal gæti bókun í henni átt að vera aðgengileg almenningi, að hluta eða öllu leyti, ef hún hefði að geyma endanlega niðurstöðu um afgreiðslu mála. Það ætti að hluta til við í þessu tilviki. Því lagði nefndin fyrir framkvæmdanefnd búvörusamninga að afhenda kæranda afrit af tveimur fundargerðum. Synjun um aðgang að einni fundargerð var staðfest.

25. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Lokaorð forsætisráðherra á málþingi SÞ um vopnaviðskiptasamninginn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt ræðu á málþingi um vopnaviðskiptasamninginn, sem haldið var til hliðar við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, en Ísland var fyrsta ríkið til að fullgilda samninginn sem hamla mun gegn ólögmætum vopnaviðskiptum og treysta mannréttindi og mannúðarlög frekar í sessi.

24. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á ársfundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti erindi á ársfundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins í Scandinavian House í New York, 24. september 2014. Í erindi sínu fjallaði ráðherra um samskipti Íslands og Bandaríkjanna, ekki síst á sviði verslunar og viðskipta, og aukin tækifæri þar að lútandi.

23. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á leiðtogafundi um loftslagsmál

Í ræðu sinni fór ráðherra yfir áherslur Íslands í loftslagsmálum, m.a. á sviði jarðhita og landgræðslu. Hvatti forsætisráðherra þjóðir heims til að ganga til liðs við alheimsbandalag á sviði jarðhitanýtingar og tilkynnti um stuðning íslenskra stjórnvalda til sérstakrar jarðhitaáætlunar sem unnin er í samvinnu við Alþjóðabankann.

22. sep. 2014Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið, Lagasetning, Lög og réttur

Ríkisstjórnin tekur fyrir stöðuskýrslu um einfaldara regluverk

Á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn var tekin fyrir stöðuskýrsla um einföldun gildandi regluverks. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að einfalda regluverk og er það verkefni sérstaklega tekið upp í núverandi stjórnarsáttmála.

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra í tilefni opnun sýningarinnar Hallgrímur Pétursson – 400 ára

Ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra 11. september 2014 í tilefni opnun sýningarinnar Hallgrímur Pétursson – 400 ára.

12. sep. 2014Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Stjórnarskrárnefnd kallar eftir athugasemdum við fyrstu áfangaskýrslu

Stjórnarskrárnefnd gaf út sína fyrstu áfangaskýrslu í júní síðastliðnum, í þeim tilgangi að skapa forsendur fyrir samráði og frekari faglegri greiningu áður en lengra er haldið. Gefinn var athugasemdafrestur til 1. október

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

552/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

Þess var krafist af hálfu A að fá, frá Reykjavíkurborg, afhent útboðsgögn – þ.e. án þess að af þeim hefðu áður verið afmáðar upplýsingar um einingarverð og sundurliðaðar fjárhæðir. Niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál varð sú að Reykjavíkurborg bæri að afhenda kæranda gögnin með þeim hætti sem hann bað um.

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

551/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

Brit Insurance Ltd., QBE Insurance (Europe) Ltd., Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., Allianz Global Corporate & Specialty AG, Novae Syndicate 2007, Dan Re Syndicate 1400 og QBE Syndicate 1886 kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins („FME“) um að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum í ellefu liðum. Beiðnin laut að nánar tilteknum gögnum varðandi einn aðila á ákveðnu tímabili. Nefndin taldi FME ekki hafa afgreitt beiðnina með fullnægjandi hætti og féllst ekki á varakröfu FME um að beiðninni mætti synja á grundvelli 1. tl. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi beiðnina ekki hafa hlotið þá umfjöllun hjá FME, sem kæruheimild 20. gr. upplýsingalaga, og almennar reglur stjórnsýsluréttar um kæruheimildir á stjórnsýslustigi, gera ráð fyrir.…

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

550/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

Málið varðaði þríþætta kæru A vegna Vestmannaeyjabæjar. Í fyrsta lagi kæru yfir að bærinn hafi ekki svarað A, í öðru lagi yfir að A hafi ekki fengið tilteknar upplýsingar varðandi ráðningu í starf forstöðumanns og í þriðja lagi yfir að hafa ekki fengið upplýsingar varðandi stefnumótun og starfshætti bæjarins. Fyrsta liðnum var vísað frá nefndinni, þar sem fyrir lá að A hafði verið svarað. Varðandi annan liðinn var lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að veita A nákvæmar upplýsingar um laun forstöðumannsins. Þriðji þátturinn þótti ekki varða nægilega vel tilgreind gögn og varð honum vísað frá.

09. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra við upphaf 144. löggjafarþings

Stefnuræða forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, við upphaf 144. löggjafarþings, 9. september 2014.

08. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

549/2014. Úrskurður frá 1. september 2014

Hinn 24. júlí 2014 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð nr. A-540/2014 í máli ÚNU 13070006. Síðar barst beiðni um frestun á réttaráhrifum úrskurðarins. Við meðferð þess máls kom í ljós að hann hafði ekki verið byggður á réttum lagagrundvelli og var þá ákveðið að fella hann úr gildi. Af sömu ástæðum varð að vísa umræddri kæru frá nefndinni.

15. ágú. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

548/2014. Úrskurður frá 13. ágúst 2014

Þess var krafist af hálfu sveitarfélags að réttaráhrifum úrskurðar nr. 541/2014, sem kveðinn var upp 24. júlí 2014, í máli ÚNU 14040010, yrði frestað. Að mati úrskurðarnefndarinnar var frestur til að gera slíka kröfu runninn út og því var henni vísað frá.

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-547/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki vera en mat hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. þeirrar greinar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri. Því hafi FME verið rétt að synja kærendum um aðgang að skýrslu um útlánaáhættu Kaupþings banka hf., umfram þá hluta hennar sem kærendur hefðu þegar fengið aðgang að. Þau sjónarmið ættu við um svo stóran hluta skýrslunnar að ekki kæmi til greina að veita aðgang að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-546/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja þeim um aðgang að 15 fundargerðum lánanefndar samstæðu Kaupþings banka hf. og lánanefndar stjórnar bankans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þagnarskylda samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 færðist yfir á Þjóðskjalasafnið vegna upplýsinga sem stofnunin tæki við, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Allar fundargerðirnar innihéldu umsóknir viðskiptamanna Kaupþings banka hf.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-545/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

A kærði þá ákvörðun Isavia ohf. að veita honum ekki aðgang að samningi um leigu á húsi til farþegaafgreiðslu. Fyrir lá að þetta skjal varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga, eða árið 2009. Féll ágreiningur um aðgang að því þar með utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og varð að vísa málinu frá.

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-544/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki en lagði mat að það hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. greinarinnar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri og FME bæri ekki að veita aðgang að skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins PWC, að undanskildum þeim hlutum sem kærendum hafði þegar verið veittur aðgangur að, en það átti við um svo stóran hluta hennar að ekki kom til álita að leggja fyrir FME að afhenda hana að hluta.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-543/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

A kærði ákvörðun Orkustofnunar um að synja beiðni um aðgang að skýrslum stofnunarinnar skv. 2. mgr. 31. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Synjunin byggðist á því að umbeðnar skýrslur væru „flestar lokaðar skýrslur“ og því þyrfti „verkkaupi að afhenda efnið“. Var kæranda því bent á að senda beiðni sína til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.  Úrskurðarnefnd taldi, með vísun til 16. gr. upplýsingalaga, að Orkustofnun hafi ekki verið heimilt að áframsenda beiðnina til annars stjórnvalds, sem einnig hefði umbeðin gögn í sínum vörslum, og lagði fyrir hana að fjalla um og taka afstöðu til gagnabeiðni A.

• First
• Prev
• 55
• 56
• 57
• 58
• 59
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband