09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
A-529/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014
<p>A kærði afgreiðslu innanríkisráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að verklagsreglum lögreglu um beitingu skotvopna. Upphaflega hafði beiðninni verið beint að embætti ríkislögreglustjóra, sem hafði haft hin umbeðnu gögn í sínum vörslum, en hafði þó framsent beiðnina til innanríkisráðuneytisins. Nefndin taldi embættinu ekki hafa verið rétt að gera það, en taldi sér þó vera skylt að taka afstöðu til kærunnar, í stað þess að hafa bein afskipti af málsmeðferðinni. Þar sem reglurnar hefðu að geyma lýsingu á verklagi lögreglu, þegar upp kæmu alvarleg mál á sviði löggæslu, þar sem beita yrði valdi, og þær hefðu að geyma upplýsingar um skipulag löggæslu, gæti það raskað almannahagsmunum að veita almenningi aðgang að þeim. Var ákvörðun innanríkisráðuneytisins því staðfest.</p>