15. sep. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Málþing um jafnlaunamál 16. september 2022
Alþjóðlega jafnlaunabandalagið (EPIC) stendur fyrir rafrænu málþingi um jafnlaunamál á morgun, föstudaginn 16. september, í tilefni alþjóðlega jafnlaunadagsins. Í ár verður sjónum beint að launagagnsæi en nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að launagagnsæi skiptir máli við að útrýma kynbundum launamun og draga úr öðru kynjamisrétti á vinnumarkaði.