Úkraína, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Úkraínuforseta
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag þátt í norrænum leiðtogafundi með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í Stokkhólmi. Við þetta tilefni skrifuðu Bjarni og Zelensky einnig undir tvíhliðasamning landanna um öryggissamstarf og langtímastuðning.