09. júl. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19
450 milljarðar króna í mótvægisaðgerðir vegna heimsfaraldurs
Mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru á árunum 2020 -2022 námu alls um 450 milljörðum króna, eða 4,5% af landsframleiðslu áranna. Með þeim tókst að varðveita kaupmátt heimila svo innlend eftirspurn hélst sterk, auk þess að koma í veg fyrir fjölda gjaldþrota og atvinnumissi. Hvort tveggja ruddi brautina fyrir kröftugan efnahagsbata sem hófst árið 2021.