07. sep. 2026Gervigreind, Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Starfshópur metur nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar
Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar hefur tekið til starfa en hann er skipaður að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Hlutverk hópsins er að meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um aðgerðir, forgangsröðun og úrbætur.