Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Brexit, Utanríkismál, Heimasendiherrar
Ráðherrarnir ræddu loftferðasamning Íslands og Bretlands
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, átti í dag fjarfund með Robert Courts, ráðherra flug- og siglingamála og almannaöryggis í bresku ríkisstjórninni. Tilefni fundarins var nýafstaðin undirritun loftferðasamnings á milli Íslands og Bretlands sem tryggir flugsamgöngur á milli ríkjanna eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.