09. júl. 2026Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Standard og Poor's
S&P Global Ratings staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs - horfur eru áfram stöðugar
Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum. S&P reiknar með neikvæðum hagvexti um 7,5% á yfirstandandi ári vegna verulegra neikvæðra áhrifa Covid-19 á ferðaþjónustu. Hógvær nettó skuldastaða hins opinbera veitir þó viðspyrnu við því áfalli sem kórónufaraldurinn hefur á íslenskt efnahagslíf.