09. maí 2024Velferðarvaktin, Félags- og fjölskyldumál, Annað
Velferðarvaktin á Vestfjörðum
Þann 3. september sl. stóð Velferðarvaktin fyrir fjarfundi á Vestfjörðum, sem sendur var út frá stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Meginefni fundarins var að kynna fyrir fulltrúum Velferðarvaktarinnar stöðuna á Vestfjörðum í þeim málaflokkum sem vaktin lætur sig varða þ.m.t. félagslegar aðstæður viðkvæmra hópa. Þá voru helstu störf og verkefni á vegum Velferðarvaktarinnar kynnt. Auk fulltrúa Velferðarvaktarinnar bauðst sveitarstjórnarfólki á Vestfjörðum, skólastjórnendum, fulltrúum frjálsra félagasamtaka sem starfa á svæðinu og ýmsum öðrum aðilum sem koma að starfi með eldra fólki, fötluðu fólki o.fl. að taka þátt í fundinum og umræðum.