Áfrýjunarnefnd neytendamála 2025-2029

Ákvarðanir Neytendastofu má kæra til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar neytendamála. Heimild til áfrýjunar er að finna í 4. gr. laga um Neytendastofu, nr. 62/2005. Í áfrýjunarnefnd neytendamála sitja þrír menn og jafn margir til vara, skipaðir af ráðherra til fjögurra ára í senn.
Formaður nefndarinnar og varamaður hans skulu fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara.

Áfrýjunarnefndin er þannig skipuð:

Aðalmenn:
Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari, formaður.
Sindri M Stephensen, lögmaður, dósent, nefndarmaður.
Gunnar Páll Baldvinsson, lögfræðingur, nefndarmaður.

Varamenn:
Hjördís Halldórsdóttir, lögmaður, varaformaður. 
Víðir Smári Petersen, lögmaður, dósent, varamaður. 
Hildur Leifsdóttir, lögmaður, varamaður.