Mannanafnanefnd

Um mannanafnanefnd gilda ákvæði 21. - 23. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996.

Mannanafnanefnd er skipuð í samræmi við ákvæði 21. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996. Mannanafnanefnd er skipuð þremur aðalmönnum og jafnmörgum til vara. Skal einn nefndarmaður skipaður að fenginni tillögu heimspekideildar Háskóla Íslands, einn að fenginni tillögu lagadeildar Háskóla Íslands og einn að fenginni tillögu Íslenskrar málnefndar. Varamenn eru skipaðir með sama hætti. Nefndin skiptir sjálf með sér verkum.

Nefndin er þannig skipuð:

Aðalmenn:

  • Aðalsteinn Hákonarson, rannsóknaraðjúnkt við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, tilnefndur af Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, sem áður var hluti af fyrrum Heimspekideild Háskóla Íslands.
  • Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður, tilnefnd af Lagadeild Háskóla Íslands.
  • Hrafn Sveinbjarnarson, skjalavörður, tilnefndur af Íslenskri málnefnd.

Varamenn:

  • Sigrún Margrét Guðmundsdóttir, aðjúnkt við Íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands, tilnefnd af Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, sem áður var hluti af fyrrum Heimspekideild Háskóla Íslands.
  • Tómas Hrafn Sveinsson, lögmaður, tilnefndur af Lagadeild Háskóla Íslands.
  • Tinna Frímann Jökulsdóttir, Háskóla Íslands, tilnefnd af Íslenskri málnefnd.

Skipunartími er frá og með 4. mars 2026 til og með 3. mars 2030 eða til næstu fjögurra ára.

Beiðni til mannanafnanefndar um eiginnafn eða millinafn, sem ekki er á mannanafnaskrá

Skriflegum erindum til mannanafnanefndar skal beint til:

Mannanafnanefnd
b.t. Þjóðskrár Íslands
Borgartúni 21
105 Reykjavík

Netfang: [email protected]

Helstu verkefni mannanafnanefndar eru þessi:

  1. Að semja skrá um eiginnöfn og millinöfn sem teljast heimil skv. 5. og 6. gr. laga um mannanöfn og er hún nefnd mannanafnaskrá. Unnt er að fara inn á slóð skrárinnar hér að neðan. Skráin er uppfærð eftir hvern fund mannanafnanefndar.
  2. Að vera prestum, forstöðumönnum skráðra trúfélaga, Þjóðskrá Íslands og forsjármönnum barna til ráðuneytis um nafngjafir og skera úr álita- og ágreiningsefnum um nöfn samkvæmt lögum um mannanöfn.
  3. Að skera úr öðrum álita- eða ágreiningsmálum sem upp kunna að koma um nafngjafir, nafnritun og fleira þess háttar.

Úrskurðum mannanafnanefndar er ekki unnt að skjóta til æðra stjórnvalds.

Ath. gjald fyrir beiðni til mannanafnanefndar um samþykki fyrir nýju nafni á mannanafnaskrá er 4.300 kr. og greiðist hjá Þjóðskrá Íslands við innlagningu beiðnarinnar. 

Nánari upplýsingar um ýmislegt sem snýr að mannanafnalögum.