Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní 2024 og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins er lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Í september sama ár var ákveðið að fjölga aðgerðum og auka fjármagn til þeirra. Með aðgerðunum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi. Um er að ræða tveggja ára verkefni til þess að innleiða aðgerðirnar með reglubundinni eftirfylgni og árangursmælingum.
Aðgerðahópurinn er þannig skipaður:
Aðalmenn:
- Eygló Þóra Harðardóttir, formaður, án tilnefningar
- Páll Ólafsson, samkvæmt tilnefningu Barna- og fjölskyldustofu
- Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir, samkvæmt tilnefningu heilbrigðisráðuneytis
- Erna Sif Jónsdóttir, samkvæmt tilnefningu dómsmálaráðuneytis
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Bergdís Wilson, samkvæmt tilnefningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
- Guðrún Halla Jónsdóttir, samkvæmt tilnefningu Reykjavíkurborgar
- Helgi Eiríksson, samkvæmt tilnefningu Reykjavíkurborgar
- Ástþóra Kristinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar
- Sigurður Sigurðsson, samkvæmt tilnefningu Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra
- Þóra Jónasdóttir, samkvæmt tilnefningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
- Halldór Tumi Ólason, samkvæmt tilnefningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra
- Hanna Dóra Hólm Másdóttir, samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
- Bjarney S. Annelsdóttir, samkvæmt tilnefningu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Varamenn:
- Áslaug Magnúsdóttir, varaformaður, án tilnefningar
- Anna María Káradóttir, samkvæmt tilnefningu heilbrigðisráðuneytis
- Guðmundur Bjarni Ragnarsson, samkvæmt tilnefningu dómsmálaráðuneytis
- Ingimar Guðmundsson samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Margrét Edda Ingvarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Barna- og fjölskyldustofu
- Sigrún Sveinbjörnsdóttir, samkvæmt tilnefningu Reykjavíkurborgar
- Hulda Björk Finnsdóttir, samkvæmt tilnefningu Reykjavíkurborgar
- María Rut Beck, samkvæmt tilnefningu Landspítala
- Dagbjört Harðardóttir, samkvæmt tilnefningu Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra
- Marta Kristín Hreiðarsdóttir, samkvæmt tilnefningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
- Páley Borgþórsdóttir, samkvæmt tilnefningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra
- Elmar Björnsson, samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
- Guðmundur Sigurðsson, samkvæmt tilnefningu lögreglunnar á Suðurnesjum
- Anna Lára Pálsdóttir, samkvæmt tilnefningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
Skipunartímabil er 17.9.2024-16.9.2026.
Útgefið efni
- Minna um vopnaburð og börnum líður betur - stöðuskýrsla (janúar 2026)
- Ný stöðutaka undirstrikar þörf á bættri þjónustu og vernd fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis (október 2025)
- Vinnufundur aðgerðahóps: Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna
- Vel heppnað samstarf félagsmiðstöðva og lögreglu á Menningarnótt
- Unnið að verkefnum til að stytta bið barna eftir greiningum og þjónustu
- Öflugt foreldrastarf í þágu barna
- Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna á breiðum grunni – stöðutaka (júní 2025)
- Auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki í þágu farsældar barna
- Skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum og þjónusta við þolendur
- Staða aðgerða gegn ofbeldi meðal barna - stöðuskýrsla (mars 2025)
- Flotinn gegn ofbeldi meðal barna
- Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum
- Efling samfélagslögreglu í aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna
- Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna
- Upphafleg skýrsla um aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna (frá júní 2024 - hefur tekið breytingum með fjölgun aðgerða og auknu fjármagni)
- Börn eru ekki litlir fullorðnir - skýrsla starfshóps um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis