Ættleiðingarnefnd

Ættleiðingarnefnd er skipuð skv. 17. gr. ættleiðingarlaga nr. 130/1999.

Verkefni nefndarinnar er að veita umsagnir í ættleiðingarmálum sem sýslumaður eða ráðuneytið leggur fyrir hana. Ráðherra getur falið nefndinni fleiri verkefni og sett nánari reglur um störf hennar. Nefndarmenn eru þrír og jafnmargir til vara. Skal einn nefndarmanna vera lögfræðingur og skal hann vera formaður, annar læknir og þriðji sálfræðingur eða félagsráðgjafi.

Nefndarmenn eru skipaðir til fjögurra ára. Eftirtalin eiga sæti í nefndinni:
  • Hrefna Friðriksdóttir, dósent og jafnframt formaður nefndarinnar
    Varamaður: Vigdís Häsler, lögfræðingur og jafnframt varaformaður nefndarinnar ,
  • Hafþór Ingi Ragnarsson, læknir
    Varamaður: Kristín Haraldsdóttir, læknir
  • Hrund Þrándardóttir, sálfræðingur
    Varamaður:¨Magnús Friðrik Ólafsson, sálfræðingur