Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema

Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðar í málum, þar sem námsmenn í ríkisháskólum eða háskólum sem hlotið hafa staðfestingu menntamálaráðherra, telja brotið á rétti sínum sbr. ákvæði reglna nr. 1152/2006 um áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema skv. 20. gr. laga nr. 63/2006.

Nefndin er þannig skipuð:

Aðalmenn:

  • Helga Vala Helgadóttir, formaður, án tilnefningar,
  • Eva Halldórsdóttir, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins,
  • Arnaldur Starri Stefánsson, tilnefndur af Landssamtökum íslenskra stúdenta.

Varamenn:

  • Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, skipaður af ráðherra án tilnefningar,
  • Davíð Þór Björgvinsson, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins,
  • Rebekka Karlsdóttir, tilnefnd af Landssamtökum íslenskra stúdenta.

Nefndin starfar í tvö ár. Skipunartímabil núverandi nefndar er frá 18. maí 2024 til 17. maí 2026.

Hafa má samband við nefndina með tölvupósti á [email protected].