Áfrýjunarnefnd samkeppnismála 2025-2028
Ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins má áfrýja til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í áfrýjunarnefnd samkeppnismála sitja þrír menn og jafnmargir til vara, skipaðir af ráðherra eftir tilnefningu Hæstaréttar. Skipunartími er til fjögurra ára í senn. Formaður og varamaður hans skulu uppfylla hæfisskilyrði hæstaréttadómara en aðrir nefndarmenn skulu hafa faglega kunnáttu á sviði samkeppnis- og viðskiptamála.
í nefndinni eiga sæti
- Björn Jóhannesson, formaður
- Katrín Ólafsdóttir
- Friðrik Árni Friðriksson Hirst
- Lárus L. Blöndal, varamaður
- Kristín Þ. Flygenring, varamaður
- Hildur Ýr Viðarsdóttir, varamaður