Atvinnustefnuráð

Atvinnustefnuráð starfar sjálfstætt og veitir ráðgjöf í tengslum við mótun og eftirfylgni atvinnustefnu stjórnvalda. Ráðið starfar með samstarfshópi ráðuneyta að tillögugerð um mótun atvinnustefnu og veitir forsætisráðherra, ráðherranefnd um efnahagsmál og ríkisstjórn ráðgjöf um áherslur og framkvæmd stefnunnar.

Skipað var í ráðið í september 2025.

Í atvinnustefnuráði eiga sæti:

  • Robert-Jan Smits, fyrrverandi formaður stjórnar Eindhoven-háskóla, formaður
  • Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
  • Nana Bule, ráðgjafi og stjórnarkona
  • Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
  • Tanya Zharov, lögfræðingur