Hlutverk bókasafnaráðs er m.a. að vinna að stefnumörkun um starfsemi bókasafna í samvinnu við Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn, að veita umsögn um styrkumsóknir úr bókasafnssjóði, setja reglur um söfnun og úrvinnslu tölfræðiupplýsinga. Skv. 4. gr. bókasafnalaga nr. 150/2012.
Skipunartímabil bókasafnaráðs er frá 1. október 2025 til 30. september 2029. Ráðið er
þannig skipað:
Aðalmenn:
Hólmkell Hreinsson formaður, skipaður án tilnefningar
Lísa Zachrison Valdimarsdóttir, varaformaður, tilnefnd af Upplýsingu
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, tilnefnd af Upplýsingu,
Njörður Sigurðsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Pálína Magnúsdóttir, tilnefnd af Samtökum forstöðumanna almenningsbókasafna.
Varamenn:
Martha Ricart, skipuð án tilnefningar
Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir, tilnefnd af Upplýsingu
Guðmann Kristþórsson, tilnefndur af Upplýsingu
Jónína Brynjólfsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Kolbrún Erla Pétursdóttir, tilnefnd af Samtökum forstöðumanna almenningsbókasafna.