Í bótanefnd eiga sæti þrír menn sem dómsmálaráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Ráðherra skipar einn þeirra formann nefndarinnar og þrjá menn til vara.
Nefndarmenn og varamenn þeirra skulu fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Um hæfi nefndarmanna til að fara með mál skal fara eftir reglum laga um sérstakt hæfi dómara.
Nefndarmenn eru:
- Hulda Elsa Björgvinsdóttir, lögfræðingur, formaður
- Helga Kristín Biering Auðunsdóttir, lögfræðingur
- Erlendur Gunnarsson, lögmaður
Varamenn eru lögfræðingarnir Ásdís Ármannsdóttir, Kolfinna Tómasdóttir og Kristján Baldursson.
Öll umsýsla varðandi mál hjá nefndinni og afgreiðsla þeirra er hjá sýslumanninum á Norðurlandi eystra, sýsluskrifstofunni á Siglufirði. Ber að senda allar umsóknir á Gránugötu 6, 580 Siglufjörður.
Sími er 458 2600. Opið frá kl. 9.00-15.00 og símaþjónusta í skiptiborði er frá kl. 8.00-15.00.
Netfang: [email protected]