Skipuð 27. október 2025.
Nefndin hefur það hlutverk að vera umhverfis- orku- og loftslagsráðherra til ráðgjafar um það sem lýtur að framkvæmd laga nr. 54/1995, um vernd Breiðafjarðar, með síðari breytingum.
Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn og í henni eiga sæti sjö fulltrúar. Sveitarfélög sem liggja að Breiðafirði tilnefna sameiginlega fjóra fulltrúa, Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum einn sameiginlega og einn er tilnefndur af Minjastofnun. Ráðherra skipar einn án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Aðsetur nefndarinnar er hjá Náttúrustofu Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi.
Sími: 433-8121
Netfang: [email protected].
Vefsíða: www.breidafjordur.is
Formaður skipaður án tilnefningar
Erla Friðriksdóttir, formaður
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varamaður formanns
Samkvæmt tilnefningu Minjastofnunar
Magnús A. Sigurðsson
Lísabet Guðmundsdóttir, til vara
Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu Náttúrufræðistofnunar, Náttúrustofu Vesturlands og Náttúrustofu Vestfjarða
Sunna Björk Ragnarsdóttir
Róbert A. Stefánsson, til vara
Samkvæmt tilnefningu Reykhólahrepps
Karl Kristjánsson
Rebekka Eiríksdóttir, til vara
Samkvæmt tilnefningu Vesturbyggðar
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir
Gerður Björk Sveinsdóttir, til vara
Samkvæmt tilnefningu Dalabyggðar
Valdís Einarsdóttir
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, til vara
Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu Stykkishólmsbæjar, Grundafjarðarbæjar og Snæfellsbæjar
Arnar Kristjánsson
Steinunn I. Magnúsdóttir, til vara