Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum 2025-2028

Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum er skipað sbr. ákvæði 7. gr. reglugerðar nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum og 9. gr. reglugerðar nr. 326/2016 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í framhaldsskólum. Hlutverk fagráðsins er að vera stuðningsaðili við skólasamfélagið og leita að fullnægjandi niðurstöðu í eineltismálum sé þess nokkur kostur eða gefa út ráðgefandi álit um úrlausn á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga er ráðinu berast í tilteknum málum.

Fagráðið er þannig skipað:

  • Bergdís Wilson, formaður
  • Lára Guðrún Magnúsdóttir
  • Þórdís Hauksdóttir

Skipunartími er frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2028.

Umsýsla fagráðsins er hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.