Skipað 12. september 2025.
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð skipar ráðherra ráðgefandi fagráð sjóðsins. Fagráðið skal skipað eigi færri en þremur sérfræðingum sem saman fara með þekkingu á loftslagsmálum, orkumálum og hringrásarhagkerfi.
Fagráð starfar í samræmi við reglugerð nr. 1566/2024 og verklagsreglur sem ráðherra gefur út. Fagráðið skilar stjórn Loftslags- og orkusjóðs skriflegri greinargerð þar sem fram kemur tillaga ráðsins um forgangsröðun umsókna um styrkveitingar sjóðsins á grunni faglegs mats. Mat fagráðs á umsóknum skal ávallt byggjast á gæðum umsókna, ákvæðum reglugerðar þessarar og verklagsreglum fagráðs.
Fagráðið er þannig skipað:
María Stefánsdóttir, umhverfisverkfræðingur,
Ragnar Ásmundsson, sjálfstæður ráðgjafi í orkumálum,
Þröstur Þorsteinsson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði.