Fagráð um umferðarmál

Hlutverk fagráðs um umferðarmál er að vera vettvangur samráðs og upplýsingaskipta. Jafnframt skal það beita sér fyrir auknu umferðaröryggi og bættum umferðarháttum. Ráðið skal vera óháð þeim stofnunum sem eiga aðild að því og starfa í umboði innviðaráðherra.

Fagráðið tók við af umferðarráði og er skipað í samræmi við lög um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála. Er þar kveðið á um heimild til skipunar fagráðs um umferðarmál með fulltrúum Samgöngustofu, hagsmunaaðila og annarra aðila. 

Fagráðið er þannig skipað:

  • Rúnar Sigurjónsson, formaður, án tilnefningar,
  • Gauti Daðason, varaformaður, án tilnefningar,
  • Jón Þór Jónsson, tilnefndur af Akstursíþróttasambandi Íslands,
  • Daníel Orri Einarsson, tilnefndur af Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra,
  • Þorgerður Guðmundsdóttir, tilnefnd af Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglar,
  • Benedikt S. Benediktsson, tilnefndur af Bílgreinasambandinu,
  • Einar Guðmundsson, tilnefndur af Brautinni - bindindisfélagi ökumanna,
  • Runólfur Ólafsson, tilnefndur af Félagi íslenskra bifreiðaeigenda,
  • Líney Rut Halldórsdóttir, tilnefnd af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands,
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, tilnefnd af Landssambandi hestamannafélaga,
  • Grétar Haukur Guðmundsson, tilnefndur af Landssambandi vörubifreiðastjóra,
  • Árni Davíðsson, tilnefndur af Landssamtökum hjólreiðamanna,
  • Árni Friðleifsson, tilnefndur af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
  • María Þorgerður Guðfinnsdóttir, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneytinu,
  • Hlynur Gíslason, tilnefndur af ríkislögreglustjóra,
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
  • Gunnar Geir Gunnarsson, tilnefndur af Samgöngustofu,
  • Þorsteinn H. Þorgeirsson, tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar,
  • Hrefna Sigurjónsdóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja,
  • Ragna Vala Kjartansdóttir, tilnefnd af Samtökum verslunar og þjónustu,
  • Svanfríður Anna Lárusdóttir, tilnefnd af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
  • Auður Þóra Árnadóttir, tilnefnd af Vegagerðinni,
  • Valur Örn Arnarson, tilnefndur af Ökukennarafélagi Íslands,
  • Lilja Sveinsdóttir, tilnefnd af ÖBÍ réttindasamtökum.

Skipun formanns og varaformanns fylgir embættistíma ráðherra.