Ferðakostnaðarnefnd

Nefndinni er falið að endurskoða upphæðir dagpeninga starfsmanna á ferðalögum innanlands og erlendis. Jafnframt skal nefndin endurskoða flokkun landa eftir dvalarkostnaði svo og greiðslu fyrir starfstengd afnot eigin bifreiða starfsmanna. Nefndin starfar samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Nefndin skal skipuð einum fulltrúa BSRB, einum fulltrúa BHM og tveimur fulltrúum fjármála- og efnahagsráðherra. Skipunartími er ótímabundinn.

Nefndarmenn:

  • Þórdís Steinsdóttir, formaður, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Júlíana Guðmundsdóttir, tilnefnd af BHM
  • Ragnheiður Gunnarsdóttir tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Stefán Örn Arnarson, tilnefndur af BSRB

Kjartan Dige Baldursson er ritari ferðakostnaðarnefndar

Skipunartími er ótímabundinn

Nánari upplýsingar um ferðakostnað