Flugþróunarsjóður

Flugþróunarsjóður hefur það að markmiði að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þanng að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina Akureyri og Egilsstaði. Með því er stuðlað að dreifingu ferðamanna um landið, betri nýtingu innviða, betri búsetuskilyrðum og lífsgæðum heimamanna og betri rekstrarskilyrðum atvinnureksturs á Norður - og Austurlandi. Sjóðurinn er í vörslu Ferðamálastofu sem annast móttöku umsókna og almenna umsýslu.

Í sjóðum eiga sæti: 

  • Friðrik Fraser, formaður, skipaður af Atvinnuvegráðherra
  • Bjartur Aðalbjörnsson, tilnefndur af Forsetisráðuneyti
  • Arnheiður Jóhannsdóttir,tilnefnd af Markaðsstofu Norðurlands
  • Bryndís Fiona Ford, tilnefnd af Austurbrú
  • Ingunn Heiða Inigmarsdóttir, tilnefnd af Fjármála - og efnahagráðuneyti
  • Sigrún Björk Jakobsdóttir, tilnefnd af Isavia
  • Þorleifur Þór Jónsson, tilnefndur af Íslandsstofu