Flugvirktarráð

Flugvirktarráð er skipað til þriggja ára í senn í samræmi við ákvæði 9. gr. í lögum um loftferðir nr. 80/2022 og 8. gr. reglugerðar um flugvirkt nr. 1025/2012

Hlutverk flugvirktarráðs er meðal annars:

a) að vera samráðsvettvangur opinberra aðila og annarra um framkvæmd, samvinnu, samhæfingu og áætlanagerð á sviði flugvirktar,
b) gerð tillagna um breytingar á reglum eða löggjöf sem miða að aukinni samhæfingu og skilvirkni við framkvæmd flugvirktar eins og tilefni er til og
c) annað sem ráðherra felur því.

Flugvirktarráð er þannig skipað:

  • Jón Gunnar Jónsson, formaður, fulltrúi innviðaráðherra,
  • Friðfinnur Skaftason, varaformaður, fulltrúi innviðaráðherra,
  • Hrund Hólm, fulltrúi Matvælastofnunar,
  • Bjarni Páll Tryggvason, fulltrúi Isavia ohf.,
  • Guðrún Aspelund, fulltrúi Embættis landlæknis,
  • Alda Karen Svavarsdóttir fulltrúi Útlendingastofnunar,
  • Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir, fulltrúi Ríkisskattstjóra,
  • Arngrímur Guðmundsson, tilnefndur af Embætti ríkislögreglustjóra,
  • Ómar Mehmet Annisius, tilnefndur af Lögreglunni á Suðurnesjum,
  • Júlía Þorvaldsdóttir, tilnefnd af Þjóðskrá Íslands.
     

Skipunartími er til og með 15. febrúar 2029.