Framkvæmdahópur um borgarstefnu

Innviðaráðherra skipaði framkvæmdahóp um borgarstefnu í janúar 2025.

Alþingi samþykkti þann 22. október sl. þingsályktun um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040. Aðaltillaga borgarstefnu er að innviðaráðherra var falið að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem hér eru settar fram leiði til beinna skilgreindra aðgerða og/eða samþættingar við aðgerðir í fyrirliggjandi áætlunum hins opinbera.

Samkvæmt ákvörðun innviðaráðherra mynda innviðaráðherra, borgarstjóri í Reykjavík og bæjarstjóri á Akureyri hinn formlega samráðsvettvang sem skal funda a.m.k. árlega.

Framkvæmdahópurinn heyrir undir samráðsvettvang um borgarstefnu og hefur það hlutverk að móta fáar en vel skilgreindar aðgerðir í samræmi við þá framtíðarsýn sem birtist í þingsályktun um borgarstefnu. Hópurinn skal skila til samráðsvettvangs um borgarstefnu tillögum að aðgerðum eigi síðar en í júní 2026.

Framkvæmdahópurinn er þannig skipaður:

  • Jóhanna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri og fulltrúi innviðaráðuneytisins, formaður hópsins,
  • Guðjón Björn Guðbjartsson, sérfræðingur og fulltrúi forsætisráðuneytisins,
  • Íris Huld Christersdóttir, sérfræðingur og fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins,
  • Reinhard Reynisson, sérfræðingur og fulltrúi Byggðastofnunar,
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri og fulltrúi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
  • Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra og fulltrúi Akureyrarbæjar,
  • Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri og fulltrúi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
  • Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari, fulltrúi Reykjavíkurborgar.

Fulltrúar annarra ráðuneyta, sveitarfélaga, landshlutasamtaka og annarra hagaðila verða kallaðir til samstarfs eftir atvikum.