Skipað 17. október 2025.
Hlutverk teymisins er að:
a. Greina hvaða svæði á ríkisjörðum henti til aðgerða í þágu loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni, með áherslu á endurheimt vistkerfa á stórum samfelldum svæðum og með hliðsjón af nýtingu og gildandi samningum.
b. Skilgreina hvaða skilyrði slíkar aðgerðir þurfi að uppfylla varðandi hliðaráhrif, m.a. með tilliti til náttúrufars og annarra umhverfisþátta og hagsmuna nærsamfélags, s.s. núverandi nýtingu og skuldbindandi samninga.
c. Leita samstarfs við umsjónarstofnanir ríkisjarða um aðgerðir á landi í þeirra umsjón.
d. Gera tillögu að verklagi við ráðstöfun réttinda innan ríkisjarða til aðgerða sem fela í sér breytta landnotkun í þágu loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni, þar á meðal skilgreindan nýtingarrétt og tekjumódel vegna kolefniseininga sem gætu falist í breyttri landnotkun.
e. Gera tillögu að heildstæðri framkvæmdaáætlun til fimm ára sem tekur til endurheimtar votlendis (forgangsaðgerð), verndar votlendis og verndar og endurheimtar náttúruskóga. Í tillögu að framkvæmdaáætlun skal tilgreina svæði, tegund aðgerða, tímaáætlun, ábyrgð og kostnað og jafnframt leggja mat á hvort aðgerðir skuli unnar af ríkinu sjálfu eða boðnar út til einkaaðila. Tillögunni skal skilað til ráðaherra eigi síðar en 30. nóvember 2025.
f. Vinna að innleiðingu framkvæmdaáætlunar og eftirfylgni.
Gert er ráð fyrir að teymið starfi til loka árs 2026.
Í nefndinni sitja:
Án tilnefningar
Salome Hallfreðsdóttir, formaður
Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
Hrafn Hlynsson
Samkvæmt tilnefningu Framkvæmdasýslu-Ríkiseigna
Ása Margrét Einarsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Lands og skógar
Bryndís Marteinsdóttir
Hreinn Óskarsson