Innflytjendaráð

Samkvæmt lögum um málefni innflytjenda nr. 116/2012.

Hlutverk innflytjendaráðs er að:

  • vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málefnum innflytjenda og hafa eftirlit með framkvæmd hennar,
  • stuðla að samhæfingu og samráði milli ráðuneyta, sveitarfélaga og innan stjórnsýslunnar,
  • stuðla að opnum umræðum um málefni innflytjenda með ráðstefnum og fundum með hagsmunaaðilum,
  • gera árlega tillögu til ráðherra um hverjar áherslur þróunarsjóðs innflytjendamála skulu vera,
  • gera árlega tillögu til ráðherra um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála,
    skila ráðherra árlega skýrslu um störf sín,
  • vinna önnur verkefni í samræmi við markmið laganna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.

 Innflytjendaráð er þannig skipað:

  • Tomasz Paweł Chrapek formaður, án tilnefningar
  • Hanna Guðmundsdóttir varaformaður, án tilnefningar
  • Arnar Sigurður Hauksson, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti
  • Pétur Örn Pálmarsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti
  • Donata Honkowicz Bukowska, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Helena N. Wolimbwa, tilnefnd af Reykjavíkurborg
  • María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Varafulltrúar eru: 

  • Sigurður H. Ingimarsson, án tilnefningar
  • Grace Achieng, án tilnefningar
  • Ása Dagmar Jónsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneyti
  • Drífa Jónasdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
  • Óttarr Ólafur Proppé, tilnefndur af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Dagbjört Ásbjörnsdóttir, tilnefnd af Reykjavíkurborg
  • Ingimar Guðmundsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Starfsmaður innflytjendaráðs er Áshildur Linnet, sérfræðingur í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.