Krabbameinsráð

Heilbrigðisráðherra hefur skipað Krabbameinsráð, samstarfsvettvang heilbrigðisráðherra um veitingu krabbameinsþjónustu á Íslandi.
Ráðið er breiður samstarfsvettvangur helstu aðila sem koma að veitingu krabbameinsþjónustu á Íslandi og hagsmunasamtaka til að tryggja framgang nýsamþykktrar krabbameinsáætlunar til ársins 2029 með yfirsýn og ráðgjöf til heilbrigðisráðherra varðandi málaflokkinn.

Hlutverk ráðsins er eftirfarandi:

  1. Hafa yfirsýn yfir árangur af aðgerðum í krabbameinsáætlun og vera heilbrigðisráðherra til ráðgjafar þar að lútandi
  2. Koma með tillögur að verkaskiptingu krabbameinsþjónustu yfir öll stig heilbrigðisþjónustunnar út frá greiningu á fyrirkomulagi núverandi þjónustu, tækifærum til samvinnu og umbóta
  3. Fylgjast með framþróun innan málaflokksins og koma með tillögur að breytingum hér á landi, þar að lútandi

Ráðið er þannig skipað:

  • Halla Þorvaldsdóttir, formaður
  • Agnes Smáradóttir, tilnefnd af Landspítala
  • Friðbjörn R. Sigurðsson, tilnefndur af Sjúkrahúsinu á Akureyri
  • Helgi Hafsteinn Helgason, tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Suðurlands
  • María Heimisdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
  • Sólveig Ása Tryggvadóttir, tilnefnd af Krafti
  • Áslaug H. Aðalsteinsdóttir, tilnefnd af Ljósinu 
  • Halldóra Hálfdánardóttir, tilnefnd af Landspítala

Selma Margrét Reynisdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, er starfsmaður hópsins.