Atvinnuvegaráðherra hefur skipað nefnd um aðgerðir til að draga úr meðafla djúpkarta. Hlutverk nefndarinnar er að skila tillögum til ráðherra til að draga úr meðafla djúpkarfa við veiðar á gulllaxi og grálúðu. Einkum er litið til lokunar svæða, fiskiskilju eða annara veiðiaðferða. Jafnframt á nefndin að skoða mögulegar aðrar leiðir innan fiskveiðistjórunarkerfisins til að mæta mögulegum meðafla djúpkarfa við áðurnefndar veiðar. Þá mun nefndin fjalla um ástand djúpkarfastofnins byggt á mati Hafrannsóknarstofnunar og ráðgjöf hennar.
Í nefndinni eiga sæti:
- Guðmundur Þórðarsson, skipaður formaður, tilnefndur af Atvinnuvegaráðherra
- Skúli Kristinn Skúlason, tilnefndur af Atvinnuvegaráðherra
- Jónas Páll Jónasson, tilnefndur af Hafrannsóknarstofnun
- Pálmi Gauti Hjörleifsson, tilnefndur af Félagi Skipstjórnarmanna
- Þórarinn Sigurður Traustason, tilnefndur af Fiskistofu
- Guðmundur Kristjánsson, tilnefndur af SFS
Varamenn:
- Hallveig Ólafsdóttir, tilnefnd af Atvinnuvegaráðherra
- Agnar Bragi Bragason, tilnefndur af Atvinnuvegaráðherra
- Pamela J. Woods, tilnefnd af Hafrannsóknarstofnun
- Árni Sverrisson, tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna
- Hákon Þröstur Guðmundsson, tilnefndur af SFS
- Dóróthea Jónsdóttir, tilnefnd af Fiskistofu