Nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar sbr. lög nr. 58/2016

Skv. 3. gr. laga nr. 58/2016 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, með síðari breytingum (framlenging gildistíma, hækkun á hlutfalli endurgreiðslu o.fl.), kemur fram að ráðherra skipar þriggja manna nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og skulu ráðherra sem fer með kvikmyndir og ráðherra sem fer með fjárreiður og fjármál ríkisins tilnefna sinn fulltrúa hvor, en sá þriðji skal skipaður án tilnefningar og vera
Formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Gildistaka laga nr. 58/2016 er frá 31. desember 2016.

Aðalmenn:
Jónas Már Torfason, skipaður af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Helgi Einarsson, tilnefndur af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Þorsteinn Júlíus Árnason, tilnefndur af fjármála og efnahagsráðuneyti.

Varamenn:
Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Ása María Guðmundsdóttir, tilnefnd af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.